Þjóðmál - 01.06.2013, Síða 67
66 Þjóðmál SUmAR 2013
játa samráðsbrot vegna debetkorta að þeir
játuðu það á hendur félögum sem ekki áttu
aðild . SE var augljóslega ekki heimilt að
taka slíka játningu gilda . SE var ekki heldur
heimilt að halda RB utan rannsóknar
sinnar, fyrst stofnunin komst að niðurstöðu
um að gerð debetkortakerfisins hafi falið í
sér óleyfilegt samráð .
Þóknun fyrir vernd?
Ísamkeppnislögum er fjallað um „mis-beitingu sameiginlegs eignarhalds“
keppinauta á fyrirtækjum . Ég bendi á að
það eru hvorki stjórnir né forstjórar félaga
sem lúta sameiginlegu eignarhaldi sem bera
ábyrgð á slíku broti, það gera eigendurnir .
Sterkar vísbendingar, ef ekki fullgildar
sannanir, voru um að þetta hafi verið hið
raunverulega brot (m .a . lögfræðiálit í
rammagrein 1, sjá bls . 66–67), en ég fékk
ekki að koma þeim á framfæri . Þó hafði
stofnunin þær undir höndum . Getur verið
að sú sátt sem SE gerði við þá sem játuðu á sig
lögbrot hafi falið í sér að opinbert stjórnvald
í réttarríkinu Íslandi hafi samið við brotlega
aðila um að játa önnur og léttvægari brot
en í raun voru framin og greiða væna sekt
möglunarlaust, gegn samkomulagi um að
stofnunin léti staðar numið og hjá líða að
fella RB undir rannsókn sína? Hvergi var
nánara samstarf keppinauta en þar . Var
greidd þóknun fyrir „vernd“ að suður-
ítölskum hætti? Náið vináttusamband for-
stjóra SE við stjórnarformann Visa Íslands,
sem greint er frá í meðfylgjandi bréfi mínu
til SE (sjá rammagrein 2, bls . 71 og 73),
ljær þeirri hugsun vængi að um sérstakan
vinargreiða hafi verið að ræða . Eignarhald
RB var áfram sameiginlegt í nokkur ár og
í höndum keppinauta . Var sniðganga SE á
rannsóknarskyldu stjórnsýslulaga sæmandi
og eins og við viljum að stjórnvald komi
fram? Þessari spurningu er ósvarað . Nú
hefur RB verið breytt í hlutafélag, það
tók sinn tíma og var án vafa óbirtur hluti
af samkomulagi SE og banka í „Stóra
kortasamráðsmálinu“ .
Forstjórinn talar af sér
Bankar úthýstu samkeppni — Sam-keppn is stofnun horfði framhjá enn
stærra broti“ sagði í fyrirsögn DV hinn 14 .
mars 2011 . Í viðtali við blaðið staðfestir for-
stjóri SE að tekið hafi verið á sam eiginleg-
um yfirráðum í meðferð málsins, en það
brot var samt ekki það sem var játað (!):
„Ragnar Önundarson fyrrverandi for stjóri
Kreditkorta sakar Samkeppniseftirlit ið um
að hafa horft framhjá stórfelldum brot um
bankanna um sameiginleg markaðs yfir ráð .
Það hafi verið látið gott heita að bank arnir
hafi komið sök á kortafyrirtæki sín . Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis eftir-
litsins, segir „að tekið hafi verið á sameigin-
legum yfirráðum í meðferð máls sem lyktaði
með sátt og alls 735 milljóna króna greiðslu
stjórnvaldssektar kortafyrirtækjanna árið
2008 . Bankarnir hafa í kjölfarið verið knún-
ir til að gera mannabreytingar í stjórn um
dótturfyrirtækja sinna til að hindra sam-
eigin leg markaðsyfirráð . Engu að síður hafa
V ar greidd þóknun fyrir„vernd“ að suður-ítölskum
hætti? Náið vináttusamband
forstjóra Samkeppniseftirlitsins
við stjórnarformann Visa Íslands
ljær þeirri hugsun vængi að um
sérstakan vinargreiða hafi verið
að ræða . . .