Þjóðmál - 01.06.2013, Side 69
68 Þjóðmál SUmAR 2013
bankarnir samráð, meðal annars í Reikni-
stofu bankanna“ .
Með þessum ummælum staðfesti for-
stjórinn að SE lauk málinu á annan hátt en
hin opinbera niðurstaða snerist um . Sam-
eiginleg markaðsyfirráð voru kjarni málsins!
Hann veit líka um ástandið í RB, en aðhefst
þó ekki á þeim vettvangi . Má hann þetta?
Engu er líkara en að vitneskja hans um
samráð innan RB réttlæti að kortafyrirtæki
játi samráð! Er stjórnvaldi heimilt að vinna
svona? Er þetta boðlegt?
Tekið á sameiginlegum yfirráðum
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-keppniseftirlitsins, segir í viðtalinu við
DV að „kartel“ vísi til samráðs keppinauta:
„„Upplýst var um markaðsráðandi stöðu
Greiðslumiðlunar (Visa Íslands) og einnig
um ólögmætt samráð þessara fyrirtækja . En
lyktir málsins fólu ekki aðeins í sér viður-
kenningu á brotum og greiðslu stjórn-
valdssektar heldur urðu félögin að fara að
fyrirmælum um miklar breytingar á starf-
semi sinni og skipulagi . Svo hefur líka orðið
breyting á eignarhaldinu . Nú er kveðið á um
að menn geti ekki setið saman í stjórnum
þeirra .“ Um rétt Ragnars og það að hann
hafi ekki verið skilgreindur sem aðili málsins
segir Páll Gunnar að það sé ekki endilega SE
að ákvarða hver sé málsaðili . „Rannsóknir
okkar á samkeppnislagabrotum beinast
að fyrirtækjum . Við getum beitt fyrirtæki
viðurlögum og sett þeim fyrirmæli . Eðli
málsins samkvæmt eru það fyrirsvarsmenn
fyrirtækjanna sem koma fram fyrir hönd
þeirra, hvort sem það eru lögfræðingar,
stjórnarformenn eða aðrir . Það var fyrir-
tækið sjálft sem ákvað að fyrirsvarið fyrir
Kreditkort væri í annarra höndum en
Ragnars . Þegar hann segist ekki hafa verið
þátttakandi eða málsaðili verður hann að
eiga það við yfirboðara sína .““
Svo mörg voru hans kúnstugu orð . Síðar
sagði Páll Gunnar Pálsson mér sjálfur að
þetta hefði verið „erfið ákvörðun“ . Það
orðalag sagði mér að það var hann sem tók
ákvörðunina, ekki stjórn Kreditkorts . Ég
ósk aði heldur aldrei eftir að vera „í fyrir svari“,
ég ætlaði aðeins að aðstoða við að upp lýsa
málið með því að vísa á mikilvæg raf ræn
gögn sem SE hafði haldlagt . Páll Gunn ar
hélt því fram í viðtalinu að stjórnvald ið hafi
verið í fullum rétti, þrátt fyrir rann sóknar-
skyldu sína skv . stjórnsýslulögum, að semja
við hinn seka, þann sem fallist hafði á að
játa brot, um að tiltekinn vitnisburður fengi
ekki að komast að . Hann vildi að ég ætti
um það við „yfirboðarana“, sem hann lét
komast upp með að skella skuld á aðra . Þess
má geta í þessu sambandi að Páll Gunnar er
löglærður .
Hlýt að bíta frá mér
R agnar segir [í sama viðtali] að hann hafi ekki komið þessu ástandi [sam-
eigin legra markaðsyfirráða, innskot RÖ] á,
S íðar sagði Páll Gunnar Pálsson mér sjálfur að þetta hefði verið
„erfið ákvörðun“ . Það orðalag
sagði mér að það var hann sem
tók ákvörðunina, ekki stjórn
Kreditkorts . Ég ósk aði heldur
aldrei eftir að vera „í fyrir svari“, ég
ætlaði aðeins að aðstoða við
að upp lýsa málið með því að
vísa á mikilvæg rafræn gögn
sem Samkeppniseftirlitið hafði
haldlagt . . .