Þjóðmál - 01.06.2013, Page 73
72 Þjóðmál SUmAR 2013
ráð keppinauta þannig að það verður varla
hægt að skilja orð hans öðru vísi en svo
að hann sé að játa langvarandi aðild að
mjög alvarlegum samkeppnislagabrotum
í þessu viðtali við þig .“
Hér leikur forstjórinn tveim skjöldum .
Honum er ljóst að „fyrirtækið“ (þ .e . stjórn
sem skipuð er fulltrúum eigenda) hefur ját að
brot á félagið, en ekki ég . Annmarkar þeirra
játninga, sem raktir hafa verið í grein þessari,
eru honum fullkunnir . Honum er líka ljóst
að „kartel“ (misbeiting sameiginlegra mark-
aðs yfirráða) var hið raunverulega brot og
að það liggur hjá eigendum félaga en ekki
starfsmönnum . „Kartel“ skilgreinir hann
ranglega, það er annað brot en „ólöglegt
samráð“ . Hann leyfir sér samt að lýsa því
yfir að ég hafi játað aðild að samkeppnislaga-
broti á þessum forsendum, sem hann veit
að eru ekki haldbærar . Felst að mínu mati
óleyfileg sakbending í því . Ég lýsti þeirri
skoðun minni að forstjóranum bæri að
segja af sér og ítreka það nú . Af fjölmörgum
annmörkum málsmeðferðar hans virðist
mér mega draga þá ályktun að hann valdi
ekki vandasömu starfi forstjóra SE .
Fákeppnisstofnun
Sérstök lög voru fyrst sett 1993 um sam keppni . Síðan hefur orðið mikil
sam þjöpp un í viðskiptalífinu . Fákeppni á
mörgum sviðum varð til fyrir augum stjórn-
valdsins, oftast með því að yfirvaldið sam-
þykkti samruna með skilyrðum, í stað þess
að synja . Samruninn var alltaf rökstuddur
með hag ræðingu en þess ekki getið að mesta
hag ræðið fólst í þeirri stjórn á verðlagi sem
fá keppni fylgir . Þetta hefur valdið þjóðinni
óbætan legu og líklega óafturkræfu tjóni .
Nú eltist stofnunin við afleiðinguna, meint
samráð . Vaxandi fákeppni hefur m .a .s . verið
notuð sem rök fyrir auknum umsvifum
SE! Augljóst er að samráð nær ekki tilgangi
sínum ef raunverulegur virkur markaður er til
staðar . Stjórnvaldið tapaði hverju stórmálinu
á fætur öðru á áfrýjunarstigi, sem sýnir ástand
lögfræði þekkingar innanhúss . Það leiddi til
kennitölu flakks, skipt var um nafn (áður
Sam keppnis stofnun, nú Samkeppniseftirlit),
kenni tölu og forstjóra . Næst þegar skipt
verður um nafn, forstjóra og kennitölu ber að
velja henni nafnið „Fákeppnisstofnun“, henni
til áminningar um tómlæti sitt og vanhæfni .
Völdum verður að fylgja ábyrgð . Lögmenn,
dómarar eða aðrir ámóta, með mikla starfs-
reynslu, ættu einir að fara með þetta stjórn-
vald . Gömlu Samkeppnisstofnuninni var
stýrt af viðskiptafræðingum sem allt sitt líf
hættu sér aldrei út í viðskipti . Þeim var fengið
úr skurðar vald sem jafna má til dómsvalds .
Sú nýja er háð forystu lögfræðings sem ekki
hefur viðeigandi starfsreynslu . Reynsla hans
er einkum úr eftirlitsiðnaði . Hann er tengdur
stjórnmálaflokki, var skipaður af Finni Ing-
ólfssyni sem forstjóri FME og forstjóri SE
af Valgerði Sverrisdóttur . Embættismanni
sem hefur hlotið frama vegna stjórnmála
og starfar í skjóli þeirra verður líklega ekki
oft hugsað til stjórnsýslulaga . Tímabært er
að finna nýja kennitölu og nýjan forstjóra .
Nafnið liggur fyrir .
É g lýsti þeirri skoðun minniað forstjóranum bæri
að segja af sér og ítreka það nú .
Af fjölmörgum annmörkum
málsmeðferðar hans virðist
mér mega draga þá ályktun að
honum sé ekki treystandi til að
gegna vandasömu starfi forstjóra
Samkeppniseftirlitsins . . .