Þjóðmál - 01.06.2013, Qupperneq 75
74 Þjóðmál SUmAR 2013
því var til dæmis haldið fram að sérstök
þjóðar einkenni gerðu Íslendinga betri í við-
skiptum en aðrar þjóðir .“
Eðalborin þjóð af konungakyni
Stjórnendur fjármálafyrirtækja veltust um í
sjálfshóli síðustu ár fyrir bankahrun og mál-
uðu þá glansmynd að fjármálafyrirtækin
væru sterk og mundu í fyrirsjáanlegri
framtíð veita síauknum fjölda velmenntaðs
fólks frábær atvinnutækifæri . Auk þess
mundu þau verða þriðja stoðin undir sókn
þjóðarinnar til aukinnar velmegunar, þ .e .
stoðirnar þrjár yrðu sjávarútvegur, stóriðja
og fjármálastarfsemi .
Helstu stjórnendur þjóðfélagsins, með
forsetann í broddi fylkingar, ítrekuðu hvað
eftir annað að við værum þvílík heims und ur
að á auðlegð okkar og möguleikum mundi
enginn endir verða .
Á grundvelli velmegunar ákvað ríkis stjórn -
in að leggja til við Alþingi að það sam þykkti
fjárlög fyrir árið 2008, sem fólu í sér rúmlega
20% raunvirðishækkun á ríkis útgjöldum .
Á sama tíma og frumvarp til eyðslu fjár-
laganna fyrir árið 2008 var til annarrar um -
ræðu á Alþingi birti breska stórblaðið The
Financial Times fréttir og úttekt á efna hags-
málum á Íslandi þar sem bent var á að ofhitn-
un væri í íslenska hagkerfinu og það mundi fá
harða lendingu á árinu 2008 . Hins vegar var
hvorki í greinum Financial Times né í skýrslu
Den danske Bank spáð hruni eða vanda
fjármálafyrirtækja . Því var hins vegar spáð að
það yrði kreppa þegar lokið af Pandóruboxi
ofhitnunar efnahagslífsins færi af . Mitt í þessu
umhverfi lagði ríkisstjórnin til að enn skyldi
dælt olíu á eld ofhitnunar efnahagslífsins .
Hnípin þjóð í vanda
Höfundur bókarinnar bendir rétti lega á þá
miklu reiði sem blossaði upp við banka-
hrunið og skilgreinir með einföld um en
glöggum hætti hvað varð til þess að þessi
mikla reiði braust út .
Þegar Geir H . Haarde, þáverandi for-
sætisráðherra, flutti ávarp sitt til þjóðarinnar
6 . október 2008, þar sem hann lauk ræðu
sinni með orðunum „Guð blessi Ísland“, þá
urðu þau orð í huga þjóðarinnar yfirlýsing
um að hér væri allt komið á vonarvöl og
meiri háttar kreppa yfirvofandi . Allt í einu
var velmeguninni kippt undan fótum
fólksins og hyldýpi öryggisleysis, ótta og
fjárhags legra erfiðleika blasti við .
Þrátt fyrir að þáverandi forsætis ráð herra
og stjórnkerfið hafi brugðist við með þeim
hætti sem best varð á kosið í kjölfar banka-
hrunsins var staðan sú að hvorki þáverandi
forseti né forsætisráðherra eða aðrir helstu
ráðherrar ríkisstjórnarinnar áttu möguleika
á að tala kjark í þjóðina eða öðlast traust
hennar af því að vonbrigðin urðu svo mikil
og skyndileg .
Ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið
rangt mat ráðherra og ríkisstjórnarflokka
haustið 2008 að ríkisstjórnin gæti setið
áfram óbreytt . Ástandið var með þeim hætti
að heppilegasta leiðin var þjóðstjórn undir
nýrri forustu, hugsanlega utan þings .
Búsáhaldabylting
Þegar vikið er að heitinu búsáhaldabylting
er verið að vísa til mótmæla fólks sem
barði potta og pönnur við Alþingishúsið
daginn út og daginn inn í janúarmánuði
2009 . Hávaðamengunin, sem hlaust af bús -
áhöldunum og öðrum þeim tækjum og tól-
um sem voru notuð, olli því að þing menn
voru undir auknu álagi, en það truflaði
að öðru leyti ekki eðlileg störf þingsins .
Þessi barsmíð hafði ekki nein afgerandi
áhrif í sjálfu sér eða olli straumhvörfum í
íslenskri pólitík . Það sem olli hins vegar
straumhvörfum var að áhrifamikil öfl, eins