Þjóðmál - 01.06.2013, Qupperneq 80
Þjóðmál SUmAR 2013 79
kúgaðir, niðurlægðir og arð rændir en gegn
þeim, sem arðræna, kúga og niður lægja
aðra í krafti eigna og for réttinda . . . Ég
myndi aldrei sætta mig við að kalla mig
kommúnista . Það er vegna þess að á bak við
það orð er lenínisminn og alræði öreig anna;
á bak við það orð er atlaga
að lýðræðinu .“
Í mínum huga hafa sósíal-
istar ekki einkarétt á því að
standa með þeim, sem eru
„kúgaðir, niðurlægðir og
arðrændir“ .
Reyndar tel ég að enginn
geti lengur neitað því að í
nafni sósíalisma hefur fólk
verið „kúgað, niðurlægt og
arðrænt“ á okkar tímum .
Svavar Gestsson ber ekki
ábyrgð á því, en kannski
má halda því fram, að bæði
hann og samherjar hans hér á Íslandi hafi
lengst af lagt minna á sig en efni stóðu til
við að vekja athygli á þess konar framferði í
nafni sósíalismans bæði í Sovétríkjunum og
annars staðar . En lagt þeim mun meira á sig
til að gera lítið úr þeim, sem héldu því fram
að svo væri .
Frásögn Svavars af þeirri veröld vinstri
manna í Reykjavík, sem hann gekk inn í
ungur að árum er skemmtileg . Kannski
finnst mér það vegna þess að ég þekkti hana
sjálfur að hluta til og marga þá einstaklinga,
sem hann nefnir til sögunnar en í hópi þeirra
voru æskuvinir mínir á borð við Magnús
Jónsson, kvikmyndaleikstjóra — menntaður
í Moskvu . Og vegna þess að ég hafði kynni af
þessum heimi vissi ég mæta vel, að þar voru
engir pólitískir misindismenn á ferð . Þeir
voru bara annarar skoðunar, hvort sem um
var að ræða innanlandsmál eða heimsmálin .
Laugavegur 11, sem mátti þekkja sinn fífil
fegri, þegar Svavar kom til sögunnar, var á
margan hátt miðstöð þessa hóps .
Mér verður ljóst af lestri ævisögu Svavars
að tengsl hans við Einar Olgeirsson hafa
orðið til vegna vináttu Svavars og Ólafs
heit ins Einarssonar, sonar Einars . Það er
ekkert ljótt við það að hafa haft tengsl við
Einar Olgeirsson . Hann er einn af merkustu
stjórn málamönnum 20 . ald-
arinnar á Íslandi og styrk-
leiki hans var ekki sízt sá,
að hann barðist af ein-
lægri sannfæringu fyrir rétti
lítilmagnans . Það breytir
hins vegar engu um þá
mótsögn í lífi hans og póli-
tísku starfi að á sama tíma
og hann taldi sig berjast
fyrir sjálfstæði og fullveldi
Íslands gegn auðvaldinu
varð hann einn helzti lið-
þjálfinn hér heima fyrir í
sókn einræðisstjórnarinnar
í Sovétríkjunum til áhrifa hér á Íslandi .
Og nú liggur fyrir að hinir miklu leiðtogar
sósíalismans á heimsvísu á 20 . öldinni,
Jósef Stalín og Mao Tse Tung, voru mestu
fjöldamorðingjar okkar tíma . Hitler var í
þriðja sæti .
Það er misskilningur hjá Svavari, að fréttir
Morgunblaðsins á Viðreisnarárunum af innri
málefnum Alþýðubandalagsins og deilum
þar innan dyra hafi komið frá tengdaföður
mínum, Finnboga Rúti Valde mars syni . Þær
komu úr annarri átt . Hins vegar höfðu þau
fjölskyldutengsl þýðingu á árum vinstri
stjórnarinnar 1971–1974 fyrst og fremst
vegna þess, að þar hafði ég kynnzt Birni
Jónssyni og Karli Árnasyni (Hannibal þekkti
ég frá fyrri tíð) . Þeir treystu mér vegna þessara
tengsla en sú saga er rakin að verulegu leyti
í bók minni, Sjálfstæðis flokkurinn — Átök og
uppgjör, sem út kom á síðasta ári .
Í ævisögu Svavars eru fróðlegar upplýs ing-
ar um átökin í Alþýðubandalaginu bæði fyrr
og síðar . Mér þótti fyndið að sjá, að Svavar