Þjóðmál - 01.06.2013, Page 86
Þjóðmál SUmAR 2013 85
haldið áfram að tefla hefði hann getað
hrundið atlögum að titlinum um nokkurn
tíma . Skákmenn spreyta sig enn á því að
spá í hversu sterkur skákmaður hann var
enda vinsæll samkvæmisleikur þeirra í
milli að bera saman skákmenn ólíkra
kynslóða .
Á bókarkápu segir að Fischer hafi færst
að mörkum vitfirringar og það er líklega
ekki ofsagt . Ofsóknaræðið og þverlyndið
ríður ekki við einteyming . Margt getur
þó skýrt það . Hann elst upp hjá einstæðri
móður sem á í vandræðum með að ala önn
fyrir Bobby og systur hans . Aðstæður eru
erfiðar og Regína, móðir Fischers, þarf að
glíma við margt um leið og hún reynir sjálf
að brjótast til mennta . Hún hefur stöðugar
áhyggjur af syni sínum sem hugsar aðeins
um skák og er með eindæmum einþykkur
í ofanálag . Brady skrifar af smekkvísi og
umhyggju um samband þeirra mæðgina
sem er ástríkt þó það sé stopult, meðal
annars vegna ferðalaga Regínu . Pólitísk
fortíð hennar virðist vekja athygli
bandarísku alríkislögreglunnar FBI og
hún hefur stöðugar áhyggjur af því að vera
færð til yfirheyrslu . Barnungur fær Fischer
kennslu í að bregðast við slíkum aðstæðum
og það hefur án efa ýtt undir ofsóknaræði
hans . Segja má að það sé eitt meginstef í lífi
Fischers að fólk laðast að honum, fær áhuga
á honum og sýnir honum margvíslega
vináttu . Að lokum hrekur hann alla frá
sér, jafnvel þá sem ekkert vilja honum
nema gott eins og á við um sómamanninn
Sæmund Pálsson . Lesandinn fær ákveðna
samúð með undarlegheitum Fischers
en undrast um leið þolinmæði margra
samferðamanna hans, sérstaklega þó
Boris Spasskys en örlög þeirra félaga eru
samtvinnuð á merkilegan hátt . Bókin um
Fischer er því öðrum þræði sálfræðiferðalag
þar sem einn sérstæðasti persónuleiki 20 .
aldarinnar situr í forsæti .
Saga hafnfirsks
athafnamanns
Hrafnkell Ásgeirsson: Tvö högg á tútommuna,
góði. Atvinnusaga Ásgeirs G. Stefánssonar bygg
inga meistara, útgerðarmanns og fram kvæmda
stjóra Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar . Oddný
Mar grét Ragnarsdóttir gaf út, Reykjavík 2012,
140 bls .
Eftir Björn Bjarnason
Hrafnkell Ásgeirsson hæstaréttar lög-maður hafði lagt lokahönd á bók ina
Tvö högg á tútommuna, góði þegar hann
kvaddi þennan heim á sjötugasta og fjórða
aldursári 10 . júlí 2012 . Hrafnkell barðist
í nokkur ár við erfitt krabbamein en milli
þess sem hann leitaði sér lækninga kom
hann gjarnan snemma morguns í Laugar-
dalslaugina, hress og kátur . Áhugamaður um
þjóðfélagsmál og viðræðugóður . Hann sagði
mér frá vinnu sinni við að afla efnis í þessa
bók, sem kölluð er á bókarkápu „athafnasaga
Ásgeirs G . Stefánssonar skráð af syni hans“
og „ný bók um gamla Hafnarfjörð“ .
Af lestri bókarinnar er ljóst að Hrafnkell
hefur lagt sig fram um að afla víða fanga . Í
bókinni er ekki aðeins brugðið upp mynd
af ævi og störfum Ásgeirs G . Stefánssonar
heldur einnig af stórhug og framkvæmdum
sem lögðu grunn að Hafnarfirði sem öflugu
bæjarfélagi í nágrenni Reykjavíkur . Ásgeir
átti þátt í uppbyggingu bæjarfélagsins bæði
sem byggingarmeistari og forstjóri bæjar-
útgerðarinnar . Hann hafði fingurinn á púlsi
bæjarfélagsins í orðsins fyllstu merk ingu og
valdist eðlilega til forystu í málefn um þess
enda virkur í starfi Alþýðuflokksins sem
háði baráttu um meirihluta í bæjar stjórn
við Sjálfstæðisflokkinn .
Undir niðri í bókinni krauma þungir
póli tískir straumar og hún lýsir vel hvernig
at vinnulíf og pólitík tvinnaðist saman í