Þjóðmál - 01.06.2013, Side 88
Þjóðmál SUmAR 2013 87
öll laugardagskvöld“ . Segir Hrafnkell að sér
hafi stundum orðið orða vant en gjarnan
svarað í þessum dúr: „Þetta var bara svona .“
Þá hafi oft verið sagt eitt orð: „Karlrembur .“
Hér skal efni þessarar litlu, snotru bókar
ekki frekar rakið . Hér hef ég þó aðeins
staldrað við svipmyndir úr fjölskyldulífi
Hrafnkels sem er raunar vel við hæfi því
öðrum þræði er þetta fjölskyldusaga þar
sem finna má upplýsingar um afkomendur
Sólveigar og Ásgeirs og myndir af þeim . Þá
er í bókinni mikill fjöldi mynda sem tengist
atvinnustarfsemi Ásgeirs .
Hrafnkell hefur ekki aðeins ritað eigin
minningar um foreldra sína heldur birtir
hann þarna á einum stað greinar sam-
ferðamanna Ásgeirs um föður sinn,
afmælisgreinar og minningargreinar . Ásgeir
lét ekki sjálfur eftir sig mikið af rituðu máli
því að fram kemur að hann hafi hvorki lagt
sig fram um ræðumennsku né skriftir .
Oddný Ragnarsdóttir gaf bókina út að
manni sínum látnum þannig að hún er á
sinn hátt hans bautarsteinn . Ræktarsemi og
virðing blasir við lesandanum þegar hann
les og fer höndum um bókina .
Þessa skemmtilegu mynd er að finna í bókinni um Ásgeir G . Stefánsson og hún sýnir nokkra helstu útgerðarmenn
landsins um miðja tuttugustu öld . Meðlimir í Félagi íslenskra botnvörpuskipaeigenda komu saman í Hafnarfirði
um 1950, ásamt starfsmönnum félagsins, — og þá var þessi mynd tekin við styttu Bjarna riddara Sívertsen . Bjarni
riddari hefur stundum verið nefndur faðir Hafnarfjarðar, en hann var kaupmaður og einn af brautryðjendunum
í íslenskri útvegssögu . Fremsta röð frá vinstri: Oddur Helgason, Aðalsteinn Pálsson, Þórarinn Olgeirsson,
Ásgeir G . Stefánsson, Kjartan Thors, Skúli Thorarensen, Halldór Jónsson, Björn Jóhannesson og Þórður G .
Hjörleifsson . Miðröð frá vinstri: Vilhjálmur Árnason, Hafsteinn Bergþórsson, Snæbjörn Ólafsson, Þórður
Ólafsson, Ólafur Tr . Einarsson, Björn Thors, Loftur Bjarnason og Kristján Kristjánsson . Efsta röð frá vinstri:
Ólafur H . Jónsson, Þorgeir Pálsson, Tryggvi Ófeigsson, Þórarinn B . Egilsson, Geir Thorsteinsson, Halldór
Gíslason og Huxley Ólafsson .