Þjóðmál - 01.06.2013, Síða 93

Þjóðmál - 01.06.2013, Síða 93
92 Þjóðmál SUmAR 2013 sérstaklega góð sem fræðirit . Margar betri og frumlegri bækur hafa verið gefnar út . Hugsanlega kemur tvennt til: Hagfræðin í bókinni er „mainstream“, þ .e . fylgir hinum „viðurkenndu“ línum hagfræðinga um orsök og afleiðingar, tengsl og vensl, aðgerðir og eftirköst . Neysla er hagvöxtur, peningaprentun (eða verðbólga) getur aukið verðmætasköpun og seðlabankar björguðu heiminum frá glundroða eftir hrunið haustið 2008 eins og þeir gerðu árið 1929 (bls . 289) . Sprenglærðir hagfræðingar ríkisháskóla og opinberra stofnana hafa ekkert út á hagfræðiskilning höfundar að setja . „Enginn“ þeirra hagfræðinga sem höfundur þekkir til sá fyrir hrunið (bls . 285), en samt skal hagfræði þeirra hampað . Hugsanleg ástæða þeirrar athygli sem þessi bók hefur hlotið er svo einmitt stærsti veikleiki hennar: Hin handahófskennda, mót - sagnakennda og óskipulagða rök semda færsla sem höfundur býður upp á . Les and inn fær það á tilfinninguna að hægt sé að vera með og á móti sömu hlutum, jafnvel á sama tíma, án þess að neitt sé athugavert við það . Fjármagni má bæði verja í neyslu (og fá fram hagvöxt), en líka sóa í neyslu (svo að ekkert verður eftir til fjárfestinga) . Seðlabankar eiga að fá að bjarga heiminum með peningaprentun, en „aukning fjármunaeigna“ er engu að síður slæm og gerir bankana of nýjungagjarna og leikglaða . Er ekki þægilegt að lesa bók sem réttlætir nánast hvaða skoðun sem er, jafnvel tvær um sama málefni, án þess að nokkuð sé athugavert við það? Hnignun hagfræðinnar sem fræðigreinar er ekki ný á nálinni . Sú hnignun hófst að margra mati fyrir alvöru þegar „ofur- hagfræðingurinn“ Keynes gaf út fræga bók sína árið 1936 (The General Theory of Employment, Interest and Money) sem gaf ríkisvaldinu fræðilega afsökun til að leggja smátt og smátt undir sig hagkerfið . Ríkisvaldið víðast hvar greip það tækifæri á lofti og tók sér það vald að geta prentað peninga ofan á rýrnandi forða af góðmálm- um og verða sér þannig úti um nýjan tekju- stofn fyrir utan beina skattheimtu; verð- bólguna . Peningaprentunarvaldið verður ekki tekið svo auðveldlega af ríkisvaldinu, en einmitt af þeirri ástæðu er mikilvægt að koma ríkinu úr þessari starfsemi . Öngstræti hagfræðinnar hafa afvegaleitt stjórn málamenn í næstum 100 ár og afleið - ingarnar hafa verið hrikalegar fyrir almenn- ing allan . Kaupmáttur peninga okkar rýrnar sífellt, og peningaframleiðslu er stöðugt hraðað til að viðhalda áhrifum hennar, og okkur talin trú um að það sé til þess fallið að tryggja „stöðugleika“ og forða okkur frá miklum sveiflum í hagkerfinu . Fjármála kreppur skella reglulega á og með aukinni tíðni og síversnandi afleiðingum . Verðbólga étur upp sparnað okkar, skekkir alla útreikninga á fjárfestingum, færir stjórn- málamönnum mikil völd og gerir hagkerfið allt háð nýprentuðu fé því að enginn sparn- aður er til staðar fyrir fjárfestingar . Alla þessa hagfræði hefur höfundur étið hráa og boðar lesendum sínum aukin ríkis- afskipti, meiri peningaprentun, fleiri regl- ur, höft á fjárfestingar og fjármagnsflutn- inga, aukin umsvif hins opinbera, stofnun ríkisfyrirtækja, hærri tolla, aukinn tilflutn- ing á fé úr vösum þeirra sem þess afla og í vasa einhverra annarra og ríkismataraðstoð, svo að fátt eitt sé nefnt . Er þá línan milli höfundar sem kallar sig umbótasinnaðan kapítalista og yfirlýstra sósíalista orðin ansi þunn . Bókin 23 atriði um kapítalisma sem enginn segir okkur frá gefur okkur kærkomið tæki- færi til að henda ranghugmyndum og sósíal- isma í gervi umbótatillagna í ruslatunn- una og snúa aftur á braut traustra peninga, hagfræðikenninga sem skýra meira en þær rugla og aðskilnaði ríkisvalds og hagkerfis, þ .e . skattheimtu og peningaprentunar .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.