Skólavarðan - 01.12.2012, Page 18
18
Skólavarðan 2. tbl. 2012matstæki
Greinandi próf í talna- og aðgerða-
skilningi er matstæki sem Dóróþea G.
Reimarsdóttir sérkennslufræðingur
hannaði til að greina vanda þeirra
nemenda sem slökustum árangri ná á
samræmdu stærðfræðiprófi í 4. bekk.
Það hentar einnig til að skoða stöðuna
hjá yngri sem eldri nemendum. Þetta
er einstaklingspróf sem hver og einn
getur notað eins og honum þykir best
henta því það er ekki staðlað. Mögulegt
er að velja úr því nokkur viðfangsefni
eða nota prófið í heild sinni, allt eftir því
hvað þarf til að safna þeim upplýsingum
sem nauðsynlegar eru til að átta sig á
stöðu nemandans. Sá sem metur skoðar
vinnubrögð nemandans, skilning hans
og hvaða leiðir hann fer til að komast
að niðurstöðu. Greinandi próf sem þetta
miðar að söfnun upplýsinga sem nýtast
við að skipuleggja áframhaldandi kennslu
viðkomandi barns.
Uppbygging Greinandi prófs í talna- og
aðgerðaskilningi er í tveimur hlutum
og lagt fyrir munnlega. Fyrri hlutinn
metur nokkra undirþætti talna- og
aðgerðaskilnings en síðari hlutinn
aðgerðaskilninginn sérstaklega. Leitað
var í smiðju erlendra fræðimanna um
hvernig skilgreina mætti talna- og
aðgerðaskilning. Á þeim grundvelli setti
Dóróþea fram skilgreiningu sem fyrri
hluti prófsins byggist á. Áfangamarkmið
námskrár um talna- og aðgerðaskilning
við lok 4. bekkjar voru flokkuð undir
hvern lið skilgreiningarinnar og
matsverkefnin samin út frá því. Undir
hverjum lið eru nokkur verkefni sem eiga
að varpa ljósi á þekkingu nemandans á
viðkomandi sviði. Skipting fyrri hlutans í
undirþætti er sem hér segir:
1. Skilningur á merkingu og stærð talna,
t.d. röðun og fjölda.
2. Skilningur á fjölbreyttri og jafngildri
samsetningu talna, t.d. að 70 er jafn
mikið og 50+20 eða 2•35.
3. Skilningur á hlutfallslegri stærð talna,
t.d. að talan 47 er stór miðað við 4 en
lítil miðað við 1000 og u.þ.b. jafn stór
og 50.
4. Skilningur á áhrifum aðgerða á tölur,
t.d. hvaða aðgerð hentar best.
5. Tilfinning fyrir stærðum í umhverfinu,
t.d. hvað metri er langur..
6. Gott vald á útreikningum, t.d.
aðferðum við hugarreikning og lausn
dæma eins og 36 + 47.
7. Skilningur á tugakerfinu, t.d. leikni í að
lesa úr tölum, skrá tölur og breyta úr
einni einingu sætiskerfisins yfir í aðra.
Síðari hluti prófsins inniheldur orðadæmi
fyrir allar reikniaðgerðirnar af þremur
þyngdarstigum fyrir hverja þeirra í
samræmi við bandarískt flokkunarkerfi
á þyngdarstigi verkefna innan reikni-
aðgerðanna fjögurra; samlagningar,
frádráttar, deilingar og margföldunar.
Höfundar flokkunarkerfisins eru
fræðimennirnir Carpenter, Fennema
og Franke. Fyrst á að finna heildina
(a * b = ___), næst að finna hvað
breyttist (a * ____= c) og síðast upphafið
(____* b = c).
Niðurstöður
Dóróþea hefur um árabil lagt mat á talna-
og aðgerðaskilning nemenda á ýmsum
aldri og lagt hugmyndir Greinandi
prófs í talna- og aðgerðaskilningi til
grundvallar. Reynslan sýnir að flest þau
börn sem ná ekki tökum á stærðfræði
hafa takmarkaða færni í meðferð talna.
Að spila kasínu eflir rökhugsun og talnaskilningi.
Greinandi próf í talna-
og aðgerðaskilningi
Þeim hættir til að ruglast í talnaröðinni,
eiga erfitt með að telja aftur á bak, ráða
illa við að telja á tugum og skilningur
þeirra á tugakerfinu og sætiskerfinu
er slakur. Einnig er hugtakaskilningur
þeirra yfirleitt takmarkaður sem og
vitund þeirra um lengd, þyngd, tíma og
peninga. Mörg sitja föst í seinvirkum
lausnaleiðum, til dæmis að telja á
fingrum sér við samlagningu lágra talna.
Ein virkasta leið til úrbóta hefur verið
einfaldir lotubundnir heimapakkar sem
foreldrar hafa unnið að með börnum
sínum undir verkstjórn skóla. Spil hafa
einnig reynst vel.
Námskeið
Greinandi próf í talna- og aðgerðaskilningi
var lokaverkefni Dóróþeu til diplómaprófs
í sérkennslufræðum. Það fæst einungis
sem hluti af gögnum námskeiðs
en nokkur slík hafa verið haldin á
undanförnum árum. Núna standa
yfir námskeið á vegum Símenntunar
Háskólans á Akureyri og Skólaskrifstofu
Austurlands og eru þau námskeið að hluta
til fjarkennd. Á næstunni er stefnt að
námskeiði á vegum Menntavísindasviðs
Háskóla Íslands en fyrr á þessu ári
voru tvö námskeið haldin þar.
Dóróþea G. Reimarsdóttir
M.Ed. í sérkennslufræðum.
Verkefnisstjóri sérkennslu
á eldra stigi Dalvíkurskóla.
Texti: GG Myndir: Frá viðmælanda