Skólavarðan - 01.12.2012, Síða 20
20
Skólavarðan 2. tbl. 2012málþing
Samstarfsnefnd um símenntun og starfsþróun kennara boðaði
til málþings í Bratta í október sl. Katrín Jakobsdóttir mennta-
og menningarmálaráðherra ávarpaði þingið og tilkynnti
að ákveðið hefði verið að stofna fagráð um símenntun og
starfsþróun kennara. Guðjón Bragason, Jón Torfi Jónasson og
Elna Katrín Jónsdóttir tóku síðan til máls en aðalfyrirlesari var
John MacBeath prófessor emeritus við Cambridge háskóla og
forstöðumaður „Leadership for Learning“ netsins í Cambridge.
Erindi hans hét „The Importance of Continuous Professional
Development, some Alternative Routes“. Jón Torfi Jónasson setti
málþingið og greindi frá stofnun fagráðsins en ákvörðun um
stofnun þess var tekin í júní 2011.
Kennarastéttin skipar lykilhlutverkið
„Hlutverk kennarans er í brennidepli um allan heim,“
sagði Katrín Jakobsdóttir og vitnaði til alþjóðlegs samstarfs
í því samhengi. Almennt væri samhljómur um að breyta
menntakerfum og að bætt menntun væri lykill að því að
leysa flókin samfélagsleg verkefni um allan heim á nýrri öld.
Hún sagði að allir sem mynda skólasamfélagið legðu sitt af
mörkum til að bæta skólastarfið en kennarastéttin skipaði
lykilhlutverkið. Umhverfis væru svo allir hinir sem starfa innan
skólanna. „Hæfni, áhugi og fagmennska skipta sköpum um
nám og velferð nemenda. Við getum skrifað góðar námskrár,
byggt byggingar, keypt fullkomnustu tölvur og tæki en ekkert
kemur í stað góðra kennara.“
Katrín sagði að kennarar og skólastjórnendur væru fagstétt,
væru sérfræðingarnir, hlutverk þeirra væri að hrinda nýrri
skólastefnu í framkvæmd. Hún sagði það stefnu síns ráðuneytis
að efla þátt símenntunar þannig að hún væri sterkur þáttur í
ævilangri starfsmenntun kennara.
Fagráðið er lýðræðislegur vettvangur
Í máli ráðherra kom fram að símenntun kennara væri fjölbreytt
og styrkt með margvíslegum hætti úr sjóðum ráðuneytisins,
sveitarfélaganna og KÍ. Kerfið væri margslungið, ábyrgðin dreifð
og erfitt að greina hvernig fjármagnið dreifðist. Þess vegna hefði
verið ákveðið að stofan fagráð. Fagráðið yrði lýðræðislegt og
tilgangur þess væri að gera starfsþróun kennara markvissa og
árangursríka. Hún sagðist vilja forgangsraða þannig að fagráðið
yrði heillaspor á þeirri vegferð að innleiða hugmyndir og starfs-
aðferðir sem nýju námskrárnar gera ráð fyrir. Sérstaklega
er fjallað um fagráðið og hlutverk þess á bls. 21 - 22 hér í
Skólavörðunni.
Veldur hver á heldur
Elna Katrín Jónsdóttir rakti stuttlega aðkomu KÍ að símenntun
kennara undanfarin ár. Þá vitnaði hún í skólastefnu KÍ fyrir
árin 2011-2014 en þar segir m.a. að framboð á símenntun
þurfi að vera nægilegt og í sífelldri þróun og að nýbreytni og
þróunarstarf skuli meta jafngilt hefðbundinni símenntun. Þar
segir ennfremur að kennarar og samtök þeirra þurfi að geta
Texti: GG
Málþing um símenntun kennara í Bratta
Katrín Jakobsdóttir.
Jón Torfi Jónasson.
Elna Katrín Jónsdóttir.