Skólavarðan - 01.12.2012, Síða 32

Skólavarðan - 01.12.2012, Síða 32
32 Skólavarðan 2. tbl. 2012 Er nokkuð til sem er sameiginlegt tákn allra kennara? Nokkuð sem allir kennarar snerta á hvar sem er, hvað sem þeir kenna? Já, krít! En við erum löngu hætt að nota krít, fullyrða eflaust margir. Hafa tússtöflur algerlega leyst gömlu krítartöflurnar af hólmi eða þaðan af nútímalegri græjur eins og gagnvirkar snertitöflur? Sé farið inn á heimasíðu þekkts tölvuumboðs og smellt á skólaflipann blasir við eldgamaldags tafla á stærð við iPad og krítarmoli! Jú, líklega situr kennarastéttin uppi með gömlu góðu krítina sem tákn um sig og Krítin - spjall um skólamál er heitið á metnaðarfullu veftímariti fyrir kennara sem birtist í fyrsta sinn síðastliðið sumar. Brautryðjendur og ritstjórar Krítarinnar eru kennslufræðingarnir Edda Kjartansdóttir og Nanna Kristín Christiansen. Krítin er líflegur og nútímalegur vefur, með textum og myndefni sem ætti að höfða til kennara, sannkallaður suðupottur. Á forsíðu vefjarins er líf og fjör, myndir á hreyfingu og nýjustu pistlar koma til lesandans, eldri pistlar eru aðgengilegir á lista neðar á forsíðunni en þegar valinn hefur verið pistill færist ró yfir vefinn. Efnið er hvort tveggja frumsamið og þýtt, um einstök fög, kennslufræði og skólabrag. Kennurum gefst kostur á að skrifa á vefinn um efni sem brennur á þeim. Tekið er fram að höfundar séu sjálfir ábyrgir orða sinna en ritstjórar hafa lokaorð um hvað er birt. Einn flipinn ber heitið „Kennari mánaðarins“ en þar er kennari settur undir kastljósið og svarar nokkrum spurningum um sig sjálfan, störf sín og viðhorf til starfsins. Krítin er á Facebook og á marga aðdáendur þar. Aðspurðar segjast þær Edda og Nanna vinna við vefinn í sjálfboðavinnu í frístundum sínum. Þögn um skólamál í fjölmiðlum „Við stofnuðum Krítina vegna áhuga okkar á menntamálum og vegna þess að við skynjuðum þörf fyrir vettvang þar sem málefnum náms og kennslu er gert hátt undir höfði. Að okkar mati fer umræða um skólamál of hljótt, hún er ekki áberandi á opinberum vettvangi og það góða starf sem unnið er í skólum er sjaldan til umfjöllunar í fjölmiðlum. Það er helst þegar eitthvað bjátar á sem fjölmiðlar fjalla um skólamál og þess á milli ríkir þögnin ein um starf skólanna. Við lítum á kennarastarfið sem mjög mikilvægt starf og Texti: GG vefurinn Krítin Áhugaverður vefur um skólamál

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.