Skólavarðan - 01.12.2012, Page 41
41
Skólavarðan 2. tbl. 2012rannsóknir
Hópastærðir
Fjöldi nemenda í námshópum er vaxandi vandamál frá efnahagshruni eins og
sjá má á mynd 10. Árið 2008 voru 510 (62%) framhaldsskólakennara sammála
fullyrðingunni samanborið við 743 (77%) kennara árið 2012. Mismunur á milli
tímabila eru fi mmtán prósentustig.
Mynd 10. Of stórir nemendahópar eru vandamál í mínum skóla.*
Marktækur munur er á milli kennarahópa hvað varðar hópastærðir (χ2 (4)=19,6,
p<0,001) og mestur er munurinn á milli bók- og starfsnámskennara, 528 (80%)
bóknámskennarar voru sammála fullyrðingunni samanborið við 15 (56%)
starfsnámskennara (mynd 11).
Mynd 11. Of stórir nemendahópar eru vandamál í mínum skóla og kennarahópar.
Eins og sjá má á mynd 10 þá fannst 743 (77%) kennurum hópastærðir vera
vandamál í þeim skóla sem þeir starfa við árið 2012. Þessum kennurum fi nnst
kennarastarfi ð andlega erfi ðara en þeim sem fi nna ekki fyrir vandamálum
tengdum fjölda nemenda í námshópum (χ2 (10)=34,5, p<0,001). Mynd 12 sýnir að
helmingur (665, eða 50%) þeirra kennara sem fi nnst hópastærðir vera vandamál
í þeim skóla sem þeir starfa við fi nnst kennarastarfi ð vera andlega erfi tt
samanborið við þriðjung (94, eða 34%) þeirra sem fi nnst hópastærðir ekki vera
vandamál.
Mynd 12. Erfi ðleikastig kennarastarfsins og hópastærðir.
Eins og fram kom á mynd 6 þá fi nna 570 (59%) kennarar fyrir streitu í starfi .
Þeim kennurum sem fi nnst fjöldi nemenda í námshópum vera vandamál
í skólanum sem þeir starfa við fi nna frekar fyrir streitu í starfi en þeir sem
Fjöldi nemenda í
námshópum er
vaxandi vandamál
frá efnahagshruni