Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Síða 34
34 35
ganga frá samningnum og úttekt á húsnæði Skálholtsskóla og ljúka samningagerðinni f.h.
kirkjuráðs við lok úttektarinnar. Í samningnum eru m. a. ákvæði um lögbundnar skyldur
Skálholtsskóla sem leigutaka er skylt að taka tillit til við reksturinn. Kirkjuráð hefur nú
ákveðið að kirkjuþing 2014 kynni sér samninginn áður en hann verður undirritaður. Drög
að samningnum er að finna á skrifstofu þingsins.
Leigusamningur um gisti - og veitingaþjónustu í Skálholtsskóla
Ákveðið að ganga til samninga við Óla Jón Ólason, hótelstjóra á Hvolsvelli, um leigu á
rekstri á gisti- og veitingaþjónustu í Skálholti.
Kirkjuráð hefur ákveðið að kirkjuþing 2014 kynni sér samninginn áður en hann er
undirritaður.
- Uppbygging ferðaþjónustu í Skálholti
Eins og fram kom í skýrslu frá fyrra ári ályktaði Kirkjuþing 2012 um hugmyndir um
miðaldadómkirkju í Skálholti og að skoðað yrði ítarlega hvort þau áform gætu styrkt
rekstur staðarins. Unnið hefur verið að deiliskipulagi fyrir Skálholtsjörðina og þá fyrst og
fremst á svæðinu þar sem kirkjan og Skálholtsskóli standa, auk fleiri bygginga. Ljóst er að
kirkjan mun ekki taka fjárhagslega þátt í verkefninu eða bera áhættu af því að öðru leyti
en því að kosta gerð deiliskipulags.
Áhugamenn um byggingu menningarhúss í miðaldastíl í landi Skálholtsjarðarinnar ákváðu
að hverfa frá áformum sínum að svo stöddu síðla árs 2013 en nú hefur verkefnið verið
tekið á dagskrá og mun kirkjuráð vinna áfram að hugmyndinni ásamt áhugamönnunum.
Til að hefja umræður bauð kirkjuráð hagsmunaaðilum til samráðsfundar í Skálholti
fimmtudaginn 14. ágúst sl. þar sem ræddar voru hugmyndir að framtíðaruppbyggingu í
Skálholti. Á fundinum var kynnt tillaga að viljayfirlýsingu, með yfirskriftinni SAMFERÐ –
Samráðsvettvangur um uppbyggingu ferðaþjónustu á Skálholtsstað. Viljayfirlýsingin hefur
verið undirrituð af biskupi f. h. kirkjuráðs, vígslubiskupi í Skálholti f.h. Skálholtsstaðar,
Guðjóni Arngrímssyni f.h. Gestaþjónustunnar ehf. og Helga Júlíussyni f.h. Landsbréfa
Icelandic Tourism Fund 1.
Kirkjuráð leggur nú fram á þessu þingi tillögu til þingsályktunar um mál þetta.
Tónskóli þjóðkirkjunnar
Tónskóli þjóðkirkjunnar starfar samkvæmt starfsreglum um kirkjutónlist á vegum
þjóðkirkjunnar nr. 768/2002. Skólinn starfar eftir námskrá sem kirkjuráð samþykkir.
Skólastjóri Tónskólans er Björn Steinar Sólbergsson, organisti. Stjórn og varastjórn
Tónskóla þjóðkirkjunnar baðst lausnar síðla árs 2013 og samþykkti kirkjuráð að skipa
bráðabirgðastjórn til vorsins 2014. Aðalmenn í bráðabirgðastjórninni eru Sveinbjörg
Pálsdóttir, formaður, Kári Þormar og Helga Þórdís Guðmundsdóttir. Varamenn eru Kjartan
Sigurjónsson, Jón Bjarnason og Hlín Torfadóttir. Auk hefðbundinna stjórnarstarfa fékk
stjórnin það hlutverk að hrinda í framkvæmd tillögum starfshóps um tónlistarmál sem
kirkjuráð skipaði og skilaði af sér í apríl 2012. Biskup réði Margréti Bóasdóttur, söngkonu,
í starf verkefnisstjóra kirkjutónlistar frá 1. september 2014.