Frón - 01.03.1945, Page 61
Orðabelgur
59
Tvær bækur eftir Skúla fógeta.
Skúli Magnússon: Beskrivelse af Gullbringu og Kjósar sýslur
(1785). Sami: Forsog til en kort Beskrivelse af Island (1786).
Udg. af Jón Helgason. (Bibliotheca Arnamagnæana IV—V)
1944.
UndirstaSa allra frekari rannsókna á sögu íslands eru öruggar
útgáfur heimildarrita. Ennþá á það langt í land aS þeirri útgáfu-
starfsemi sé komiS í viSunandi horf, svo aS full ástæSa er til aS
fagna hverri nýrri útgáfu slíkra rita sem létt geta starf þeirra
fræSimanna sem á eftir koma. RitgerSirnar sem nefndar eru hér
aS ofan sendi Skúli fógeti LandbúnaSarfélaginu danska (Det
danske Landhusholdningsselskab) sem svör viS verSlauna-
spurningum þess 1785 og 1786. Skúli var þá kominn nokkuS
yfir sjötugt (f. 1711) og búinn aS vera landfógeti í hálfan fjórSa
áratug. BæSi sakir stöSu sinnar og látlausrar baráttu viS ein-
okunarverzlunina var hann manna fróSastur um öll fjármál
landsins, verzlunar- og atvinnuhætti og alla afkomu. Enda eru
þessi atriSi kjarni beggja bókanna og sá þáttur þeirra sem
fróSlegastur er og nytsamastur hverjum þeim sem kynnast vill
ástandinu á lslandi á einhverjum mesta niSurlægingartíma sögu
vorrar. ÖIl lýsing Skúla aS heita má er miSuS viS afkomu lands-
manna og möguleika til betri atvinnuskilyrSa. l3egar hann lýsir
íslenzkum hraunum hugleiSir hann t. d. hverjar nytjar megi hafa
af hraungrjóti til bygginga; sjávarsíSunni Iýsir hann næstum
eingöngu meS tilliti til fiskiveiSa; af fuglum ræSir hann einkum
um fálka, gæsir og æSarfugla og þær tekjur sem af þeim megi
hafa; hitt er litiS annað en upptalningar eða þá lýsingar eins og
þessi á svaninum: »Dens Sang er behagelig samt Skind og Fiæder
Handelsvare«.
Lýsing Gullbringu- og Kjósarsýslna er bæði fyrirferSarmeiri
og í alla staSi merkilegri en íslandslýsingin, enda var Skúli þeim
sveitum nákunnugur eftir meira en 30 ára dvöl í ViSey. Lýsingin
á atvinnuháttum þessara sveita, fátækt þeirra og erfiSum verzl-
unarkjörum er undirstöðurit um íslenzka efnahagssögu á seinni
hluta 18. aldar. Veigamesti þáttur Islandslýsingarinnar eru verzl-
unarmálin, enda var Skúli þeim hnútum kunnugastur allra sam-
tiSarmanna sinna, og hann fer hvergi í launkofa meS skoðanir
sínar á einokunarverzluninni né hugarfar sitt til kaupmanna.
Lýsing Gullbringu- og Kjósarsýslna hefur áður veriS gefin út