Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 6

Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 V-KARÍBAHAF & FLÓRÍDA 8.–20. APRÍL 2016 Sigling á einu stærsta og glæsilegasta skemmtiferðaskipi heims Freedom of the Seas. Hin vinsæla Kristín Tryggva verður fararstjóri í þessar ferð. 388.900 KR. Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is VERÐ FRÁ 12 NÆTUR BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Umferð á landinu hefur aldrei mælst jafnmikil og er hún nú talsvert meiri en þensluárið 2007. Það á jafnt við höfuðborgarsvæðið og landið allt. Friðleifur Ingi Brynjarsson, sér- fræðingur hjá Vegagerðinni, segir umferðina veita góðan mælikvarða í rauntíma á ganginn í hagkerfinu. Úr umferðartölum megi lesa margt sem síðar muni koma fram í opinberum hagtölum. „Hagvöxtur og umferðartölur eru samhangandi. Það má enda segja að umferðarmælar séu hitamælar á hagkerfið. Hægt er að mæla hagvöxt milli svæða með umferðarteljurum. Víða erlendis eru umferðartölur not- aðar sem vísbending um ganginn í hagkerfinu í rauntíma,“ segir hann. Aukning síðustu ára vitnar um efnahagsbatann. Hrun í olíuverðinu kann að eiga þátt í meiri umferð. Hér til hliðar má sjá tvö gröf. Annað grafið sýnir fylgni milli meðalumferðar á þremur mælistöð- um á höfuðborgarsvæðinu og hag- vaxtarspá Seðlabankans. Merki um svarta starfsemi? Línurnar fylgjast að nema hvað ár- in 2009 og 2010 er umferðin heldur meiri en hagvöxturinn segir til um. Kann það að vera vísbending um að öll umsvif í hagkerfinu á þessum kreppuárum hafi ekki komið fram í hagtölum, til að mynda svonefnd svört atvinnustarfsemi. Spurður um árin 2009 og 2010 bendir Friðleifur á að ferðalög innan- lands hafi aukist á þessum tíma. Þá hafi niðurskurður hjá hinu opinbera ekki verið að fullu kominn fram. Þetta tvennt kunni að hafa haft áhrif á að umferðin var heldur meiri en vænta mátti út frá hagvexti. Friðleifur Ingi segir aðspurður að tölurnar nái aftur til ársins 2005. Það sé vegna þess að síðan hafi verið gerðar samfelldar og sambærilegar mælingar á þremur mælistöðum. Hitt grafið sýnir áætlaða heildar- umferð á landinu öllu. Verður hún sennilega fjórfalt meiri í ár en 1975. Reiknað er út frá eknum milljón kílómetrum og voru þeir samtals 3.218,1 milljón kílómetri í fyrra, skv. áætlun Vegagerðarinnar, 91,6 milljón km meiri en gamla metárið 2007. Hún hefur aukist meira í ár. Heildarumferðin jókst um 156,8 milljón kílómetra milli ára 2013 og 2014. Til samanburðar jókst hún um 157,9 milljón kílómetra milli ára 2004 og 2005, um 169,6 milljón kílómetra milli ára 2005 og 2006 og um 150,1 milljón kílómetra milli ára 2006 og 2007. Aukningin milli ára 2013 og 2014 er því sambærileg við þessi mestu þensluár Íslandssögunnar. Má geta þess að heildarumferðin snarm- innkaði milli ára 2010 og 2011, eða um 111,9 milljón ekna kílómetra. Það var einmitt þá sem botninum var náð í niðursveiflunni eftir efnahags- hrunið. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir umferð- arkerfið á Íslandi sprungið. Vegna vaxandi umferðar þurfi íbú- ar á höfuðborgarsvæðinu að verja sí- fellt meiri tíma í bíl á leið til og frá vinnu. Lítið hafi verið fjárfest í vega- málum á höfuðborgarsvæðinu frá efnahagshruninu og fátt bendi til að það breytist mikið á næstunni. Verja lengri tíma í bílnum „Uppbygging á nýjum vegum hef- ur verið nær engin, sérstaklega á höf- uðborgarsvæðinu. Þar hefur ekkert verið gert. Við sjáum það á umferð- inni á höfuðborgarsvæðinu. Það tek- ur fólk orðið mun meiri tíma að koma sér til og frá vinnu. Umferðin er stopp. Göturnar anna ekki þessari umferð. Fyrir nokkrum árum var t.d. rætt um að byggja Sundabraut en þar er ekkert að fara að gerast. Það sama mætti segja um aðrar fram- kvæmdir sem rætt hefur verið um, þar með talin mislæg gatnamót. Það er ánægjulegt að notkun strætis- vagna og reiðhjóla sé að aukast. Það kemur hins vegar ekkert í staðinn fyrir fjölskyldubílinn á Íslandi.“ Özur segir líka skorta viðhald á vegum á landsbyggðinni. Víða séu vegastæði farin að síga undan þunga umferðar, m.a. flutningabifreiða. Umferðarkerfið sé ekki hannað skv. neinum stöðlum. Merkingar og skilti séu löngu úrelt og ekki í samræmi við það sem þekkist erlendis. Breidd vega sé víða óviðunandi. Skv. nýrri spá Arion banka gæti ferðamönnum fjölgað í 2 milljónir árið 2018. Özur segir þessa þróun kalla á vegabætur. „Vegakerfið mun ekki anna þeim fjölda miðað við núverandi aðstæður. Það sér það hver maður. Það þarf að fara í verulega uppbyggingu á gatna- kerfinu. Við erum að bjóða upp á vegakerfi sem útlendingar eru ekki vanir að nota. Þess vegna sjáum við mikla aukningu í umferðarslysum hjá erlendum ferðamönnum. Þá eru mörg dæmi um bílaleigubíla sem eru illa farnir eftir sumarið eftir akstur á vondum vegum. Við erum enn dálitlir sveitamenn og teljum okkur góða að aka á malarvegum. Slík viðhorf eiga ekki við lengur ef við ætlum að taka á móti öllum þessum ferðamönnum. Margir þeirra hafa hafa enda enga reynslu af slíkum vegum.“ 6 þúsund nýir bílar í ár Að sögn Özurar hafa verið ný- skráðir liðlega 11 þúsund bílar á þessu ári en á móti afskrifaðir um 5 þúsund bílar. Hafa því bæst við 6 þúsund bílar á göturnar í ár. Um síð- ustu áramót voru um 218 þúsund fólksbílar á Íslandi. Rúmlega 251 þúsund ökutæki voru þá skráð og voru þar af um 205 þúsund í umferð. Umferðin mun þyngri en 2007  Umferðin í ár verður að óbreyttu sú þyngsta í Íslandssögunni  Hefur fjórfaldast frá árinu 1975  Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segir vegakerfið sprungið  Ferðalög taki lengri tíma Morgunblaðið/Árni Sæberg Á Miklubraut Umferðarþunginn getur verið mikill á álagstímum. **Talningarstaðir á höfuðborgarsvæðinu eru Hafnarfjarðarvegur sunnan Kópavogslækjar, Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi, Vesturlandsvegur (Nesbraut) til móts við Skeljung, austan Ártúnsbrekku. *Talan fyrir 2015 er spá byggð á þróun ársins. Vísitala umferðar Samanburður við hagvöxt (árið 2005 er haft sem grunnur = 100) 2005 2007 2009 2011 2013 2015* 125 120 115 110 105 100 95 Heimild: Vegagerðin Verg landsframleiðsla skv. spá Seðlabankans Umferð um höfuðborgarsvæðið** Umferð um hringveginn Áætlaður heildarakstur á landinu 1975-2014 Akstur 1975 myndar grunn sem er 100 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2014 400 350 300 250 200 150 100 50 0 Heimild: Vegagerðin 395 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Þátttaka íslenska karlalandsliðsins á EM í körfubolta hefur heldur betur smitað út frá sér ef marka má aukna ásókn í æfingar körfuknattleiks- félaga hjá yngstu hópunum og þá sérstaklega á meðal þeirra sem eru 12 ára og yngri. Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, segist hafa heyrt um tals- verða aukningu hjá sumum félögum og þeirra á meðal séu KR, Valur, Fjölnir, Selfoss og ÍA, svo einhver séu nefnd. „Svo hafa kennarar í Reykjavík komið að máli við mig og sagt mér að skyndilega sé allt fullt af krökkum á körfuboltavöllunum á skólalóðinni. Vonandi eiga þeir eftir að skila sér inn á æfingu líka,“ segir Hannes. Hann segist þó ekki tilbú- inn til þess að fullyrða að um nýtt körfuboltaæði sé að ræða enda stutt síðan æfingar hófust eftir sumarhlé. „Það koma oft fleiri á æfingar þegar september klárast,“ segir Hannes. Frábær þróun Böðvar Guðjónsson, varafor- maður körfuknattleiksdeildar KR, segir um augljósa iðkendaaukningu að ræða. Hann skýtur á að iðkendum hafi fjölgað um 20% það sem af er tímabilinu miðað við árið í fyrra, sér- staklega í yngstu flokkunum. „Að sjálfsögðu hjálpar EM mikið til en einnig hefur KR orðið Íslandsmeist- ari og krakkarnir fylgjast með því sem er í gangi í félaginu. Okkur finnst þetta vera frábær þróun,“ segir Böðvar. Bæði kynin á æfingar Ingi Ólason, formaður körfuknatt- leiksdeildar Fjölnis, segir að aukn- ingin sé hjá báðum kynjum. „Stelp- urnar koma meira í hópum en strákarnir og við höfum lagt svolítið upp úr því að fá þær. Það er að skila sér,“ segir Ingi. Fjölnir hefur verið í markaðsátaki og hélt t.m.a. körfu- boltadag í Grafarvogi þar sem íþróttin var kynnt fyrir börnum í hverfinu. Þá komu landsliðsmennirnir Ægir Þór Steinarsson og Haukur Helgi Pálsson á æfingar til þess að spjalla við krakkana eftir að EM í Þýska- landi lauk. Þátttakan á EM smitar  Talsverð iðkendafjölgun eftir þátttöku Íslands á EM í körfubolta  Margir í körfubolta á skólalóðinni Körfuboltadagur Haldinn var körfuboltadagur í Grafarvogi þar sem krakk- ar kynntu sér íþróttina. Mikill áhugi er á körfubolta um þessar mundir. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskatt- stjóri segist ekki vita til þess að einstaklingar sem hafi verið með fé í skattaskjóli hafi stigið fram til að telja fram eigur sínar. Eins og fram hefur komið var tekin ákvörðun um að kaupa gögn afla- ndsfélaga Íslendinga í skatta- skjólum. „Ég hef ekki séð þennan lista,“ segir Skúli, „en ég hef ekki vitneskju um að stórir aðilar hafi gefið sig fram.“ Að sögn Bryndísar Kristjáns- dóttur skattrannsóknarstjóra feng- ust upplýsingar um fjögur hundr- uð einstaklinga í gögnunum. Hún segir að enn sé verið að bera gögn saman við þær upplýsingar sem fengust. „Við erum að leggja lín- urnar fyrir næstu skref og setja það niður fyrir okkur hvaða mál ástæða er til að skoða betur,“ seg- ir Bryndís. vidar@mbl.is Enginn hefur gefið sig fram

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.