Morgunblaðið - 02.10.2015, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Nýlega hafa komið fram í dagsljósið
ljósmyndir sem Vigfús Sigurgeirs-
son tók fyrir 70 árum, haustið 1945
við útför Margrétar Þorbjargar Jen-
sen, eiginkonu athafnamannsins
Thors Jensens. Myndirnar eru frá
athöfninni í Dómkirkjunni og jarð-
setningu í gamla kirkjugarðinum við
Suðurgötu. Þær hafa ekki birst áður
og þykir fengur að þeim þar sem
ljósmyndir svo gamlar við aðstæður
sem þessar eru ekki algengar.
Margrét Þorbjörg var 78 ára göm-
ul þegar hún lést á heimili sínu á
Lágafelli í Mosfellssveit 14. október
1945 eftir nokkurra mánaða van-
heilsu. Þessi ættmóðir Thorsaranna,
sem á fyrri hluta síðustu aldar voru
ríkasta og voldugasta fjölskylda á
Íslandi, var einkar hlédræg hús-
móðir, fámál og dul í skapi að sögn
þeirra sem þekktu hana. En hún
kom börnum sínum til manns og
stýrði stóru heimili þar sem mikið
gekk á. Þótt Margrét Þorbjörg hefði
fjórar vinnukonur lét hún sjálf aldrei
verk úr henni falla. Hún kunni að
vinna og stjórna í senn er haft eftir
syni hennar Ólafi Thors. Hann var
forsætisráðherra þegar hún lést.
Það þótti því við hæfi að Alþingi
gerði hlé á störfum sínum þegar út-
förin fór fram.
Athöfninni var einnig útvarpað.
Viðstaddir auk fjölskyldunnar og
vinafólks voru Sveinn Björnsson for-
seti, erlendir sendiherrar og helstu
fyrirmenn í landinu. Húskveðju á
Lágafelli flutti séra Bjarni Jónsson
sem einnig kastaði rekunum í
kirkjugarðinum, en séra Friðrik
Hallgrímsson flutti líkræðuna í
kirkjunni.
Ekkillinn, Thor Jensen, hlýddi á
húskveðjuna en var svo yfirkominn
af harmi og trega að hann treysti sér
ekki í útförina. Slík var hugarkvöl
Thors eftir lát eiginkonunnar að
hann reis ekki úr rekkju í um það bil
mánuð eftir lát hennar.
Fjölmenni við útför ættmóður
Ljósmyndir frá útför Margrétar Þorbjargar Jensen í október árið 1945 nýlega komnar fram
Thor Jensen svo yfirkominn af harmi og trega að hann reis ekki úr rekkju í heilan mánuð
Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson
Rekum kastað Lengst t.v. er séra Bjarni Jónsson Dómkirkjuprestur. Síðan má m.a. þekkja f.v. Ólaf Thors, Stefaníu Bjarnadóttur, Mörtu Thors, Ingibjörgu
konu Ólafs og Maríu Louise Thors. Fyrir miðri mynd eru Kjartan Thors og Ágústa Björnsdóttir. Fyrir framan þau Camilla Hallgrímsson og Steinunn systir
hinnar látnu. Þá Soffía Hafstein og Haukur Thors og lengst til hægri Jóna og Richard Thors.
Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson
Líkfylgd Kistuna bera í garðinum Thorsbræður, Richard, Haukur, Ólafur,
Kjartan og Lorentz ásamt tengdasyninum Hallgrími Hallgrímssyni. Fyrir aft-
an má m.a. sjá séra Bjarna Jónsson, Ingibjörgu, Mörtu og Margréti Louise
Thors, Kristínu Vilhjálmsson, Ágústu Björnsdóttur Thors og Soffíu Hafstein.
Ljósmynd/Úr fórum fjölskyldunnar
Samrýnd Margrét Þorbjörg og Thor Jensen. Thor gat tæpast afborið fráfall
konu sinnar, treysti sér ekki í kirkjuna og hlýddi á athöfnina í útvarpi.
Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson
Útför Líkmenn úr kirkju eru t.v. fremst Ólafur Hallgrímsson, Thor Ó.
Thors, Thor Hallgrímsson og Jóhann Hafstein. T.h. fremst Richard Thors
yngri, Thor Vilhjálmsson þriðji í röð og aftast Tómas Hallgrímsson.
SÖLUAÐILAR:
Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 | Gullúrið Mjódd s: 587-4100 | GÞ skartgripir og úr Bankastræti 12
s: 551-4007 | Meba Kringlunni s: 553-1199 | Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150 |
Jón Sigmundsson skartgripaverslun Laugavegi 5 s: 551-3383 | Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 |
Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 | Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 |
Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 | Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 |
Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 | Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433