Morgunblaðið - 02.10.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Dagbjört hefur gert mikið af því
af því að fara með bækurnar í skóla
og það hefur gefist mjög vel, að sögn
hennar. Og er afar skemmtilegt og
gefandi.
„Þær hafa verið notaðar mikið,
þessar bækur, í lestrarkennslu og
málörvun, bæði á leikskóla- og
grunnskólastigum, upp að 9 ára
aldri, og í hverri bók er ég aftast
með smávegis leiðbeiningar til for-
eldra og orðalista. Þetta finnst kenn-
urum mjög gott, þetta flýtir aðeins
fyrir þeirra vinnu.“
Dagbjört á tvö börn; Lovísa
Kristín er 23 ára og Guðjón Óskar
er 18 ára. Og svo á hún eina ömmu-
stelpu sem er þriggja ára, Emmu
Lilju.
„Maðurinn minn, Thurstan Stuart
Felstead, er Lundúnabúi en vill
hvergi vera nema hér á Dalvík, nafla
alheimsins. Það er bara þannig. Það
er allt of mikil þoka og rigning í
London, segir hann.“
Dagbjört á ekki langt að sækja
rithöfundarhæfileikana, því ömmu-
bróðir hennar var Böðvar frá Hnífs-
dal.
„Ég er búin að láta þýða fyrstu
þrjár bækurnar á ensku og þýsku.
Fyrsta bókin er til sem rafbók á
ensku á Amazon, sem og hljóðbók
sem ég les inn á, og það er ætlunin
að koma þeim öllum í það form, bæði
á ensku og þýsku. Ég veit það, eftir
að hafa unnið í ferðamennsku í
Laugarfelli upp af Fljótsdal hjá
Palla bróður mínum, en hann rekur
þar gistihús og er ferðamálafræð-
ingur að mennt, að Þjóðverjar,
þýskumælandi Svisslendingar og
Austurríkismenn eru hér í miklum
fjölda, og hafa reyndar – fyrst bæk-
urnar eru ekki enn fáanlegar á
þýsku – keypt þær á íslensku og
fengið svo skjalið frá mér sent út á
þýsku.“
Síðan 2011 hefur Dagbjört nær
eingöngu verið að sinna ritstörf-
unum en þó gripið í eitt og annað
með, var t.d. á Grímseyjarferjunni
Sæfara eitt sumar, en faðir hennar
var þar stýrimaður frá 1998 til
dauðadags, og svo í Laugarfelli. Nú
er á döfinni að styrkja sig í tungu-
málum, því henni líkar mjög vel að
vinna í ferðabransanum, og hún er
þegar byrjuð í frönskunámi, sem
hefur lengi verið á óskalistanum.
Svo er bara að vona að Gumma-
bækurnar komi út á sem flestum
tungumálum hér á landi.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Sigurður Áss Grétarsson og Andrés
Þ. Sigurðsson, sem sæti eiga í vinnu-
hópi um hönnun og smíði nýrrar
Vestmannaeyjaferju, hafa sent frá
sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Í Morgunblaðinu í gær birtist
viðtal við Sævar M. Birgisson en
hann sat fyrir tveimur árum síðan í
vinnuhópi um hönnun og smíði Vest-
mannaeyjaferju. Í viðtalinu lýsir
hann því yfir að þetta hafi verið „vit-
laus nálgun“ og hanna hefði átt öfl-
ugt skip til að sigla til Þorlákshafnar.
Í skipunarbréfi vinnuhópsins kom
skýrt fram að verkefnið var að hanna
ferju sem gæti siglt til Landeyja-
hafnar og því hefði það ekki átt að
koma honum á óvart hvert verkefnið
var. Hvað varðar fullyrðingar Sæv-
ars um að þetta hefði allt verið nið-
urneglt þá getum við sem sátum með
honum í smíðanefndinni ekki tekið
undir það. Sævar lagði til málanna á
fyrsta fundi en eftir það tók hann lít-
inn þátt í starfinu og hafði lítið til
málanna að leggja. Engar athuga-
semdir komu frá honum ef frá er tal-
ið innlegg hans á fyrsta fundi. Það
hefði verið betra að hann hefði bókað
þær athugasemdir sem hann nú
kemur fram með þegar hann sat í
nefndinni og þáði laun fyrir.
Hönnun nýrrar ferju fer að ljúka
og eins og fram hefur komið þurfti að
endurbæta hönnun hennar vegna
þess að rannsóknir leiddu í ljós að
hún uppfyllti ekki kröfur til siglinga í
Landeyjahöfn. Nú telja hæfustu
skipaverkfræðingar, eftir að hafa
endurhannað og endurreiknað, að
ferjan geti siglt í Landeyjahöfn. Það
yrði stórt skref afturábak að fresta
málinu enn og aftur eins og lagt er til
í Morgunblaðinu í gær.
Ástæða er til að taka skýrt fram að
sú ferja sem nú er verið að leggja
lokahönd á getur auðveldlega siglt til
Þorlákshafnar með fleiri farþega og
mun fleiri bíla. Rannsóknir sýna að
nýja ferjan er betra sjóskip en Herj-
ólfur. Erfiðleikar við Landeyjahöfn
felast í tvennu, að útreikningar
danskra sérfræðinga á sandburði
voru vanáætlaðir og ekki hefur enn
verið smíðuð ferja sem hentar Land-
eyjahöfn. Landeyjahöfn verður
heilsárshöfn þegar ný, hentug ferja
kemur. Að tryggja nægt dýpi fyrir
nýrri ferju verður erfitt en viðráð-
anlegt.“
Yfirlýsing vegna Vestmannaeyjaferju
Fulltrúar í vinnuhópi svara gagnrýni Sævars M. Birgissonar skipaverkfræðings