Morgunblaðið - 02.10.2015, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
19 daga ævintýraferð í byrjun júní 2016
með
KÍNAKLÚBBI UNNAR
Farið verður til SHANGHAI, SUZHOU, TONGLI,
GUILIN, XIAN og BEIJING. Einnig siglt
á LI fljótinu og farið upp á KÍNAMÚRINN.
Heildarverð á mann: Kr. 660 þúsund
Kínaklúbbur Unnar
Njálsgötu 33, 101 Reykjavík
sími: 551 2596, farsími: 868 2726
Vefsíða: www.kinaklubbur.weebly.com
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
Kínastund
Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínastund“, á Njálsgötunni, með mynda-
sýningu, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum, ásamt veitingum.
Kínasafn Unnar
Njálsgötu 33A, er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14.00–16.00.
Einnig er hægt að panta sérsýningar.
Allt innifalið, þ.e. full dagskrá skv. ferðaskrá, gisting í tvíbýli á 4-5 stjörnu
hótelum (einb. + 100 þ.), fullt fæði með máltíðardrykkjum, skattar og gjöld,
staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar Guðjónsdóttur, en þetta verður 38.
hópferðin, sem hún skipuleggur og leiðir um Kína. Ferðaskráin er á vefsíðunni.
Til Kína með konu sem kann sitt Kína
Spítalinn okkar, landssamtök um
uppbyggingu nýs húsnæðis Land-
spítala, fagnar því að framkvæmdir
eru nú að hefjast við uppbyggingu
og fullnaðarhönnun Landspítalans.
Tilgangur samtakanna er að afla
stuðnings við og fylgja eftir nauð-
synlegum úrbótum á húsakosti spít-
alans, tæknibúnaði og aðstöðu sjúk-
linga og starfsfólks. Við Íslendingar
höfum dregist hratt aftur úr öðrum
þjóðum á undanförnum árum og er
uppbygging Landspítala mjög mik-
ilvægt hagsmunamál allrar þjóð-
arinnar.
Frá stofnun landssamtakanna í
apríl 2014 hafa þau staðið að mörg-
um kynningarfundum um verkefnið.
Samtökin hafa átt samræður við
þingmenn og einstaklinga víðsvegar
í samfélaginu og haldin hafa verið
málþing bæði í Reykjavík og á Ak-
ureyri.
Fullnaðarhönnun á sjúkrahóteli
er lokið og stendur útboðsferli vegna
byggingar þess nú yfir. Gert er ráð
fyrir að byggingu þess ljúki árið
2017 og að það verði tekið í notkun
sama ár. Sjúkrahótelið verður á lóð
Landspítalans og bætir það úr
brýnni þörf, ekki síst fyrir sjúklinga
sem búa á landsbyggðinni.
Nútímaþarfir í fyrirrúmi
Í byrjun september skrifaði heil-
brigðisráðherra undir samning við
Corpus3 hópinn, sem er hópur arki-
tekta og verkfræðinga, um fulln-
aðarhönnun meðferðarkjarnans.
Það var stór og mikilvægur áfangi.
Meðferðarkjarninn er stærsta og
flóknasta byggingin af nýbygg-
ingum Landspítala. Hún er um
60.000 m² að stærð og er áætlað að
hægt verði að taka hana í notkun ár-
ið 2021. Þar verður bráðamóttaka,
myndgreining, gjörgæsla og skurð-
stofur með tækjabúnaði í takt við
nútíma þarfir. Einnig verða þar
legudeildir fyrir veikustu sjúk-
lingana sem verða um leið í nánd við
alla þá aðstöðu sem þeir þurfa á að
halda.
Starfsfólk tekur þátt
í hönnun nýs spítala
Ferli fullnaðarhönnunar meðferð-
arkjarnans er hafið og mun byggjast
meðal annars á notendarýni á þeirri
forhönnun sem liggur fyrir. Ánægju-
legt er að sjá hvernig Landspítali
virkjar starfsmenn í ferlinu enda er
afar dýrmætt að þeir sem best til
þekkja komi að verkefninu. Fjöl-
margir starfsmenn hafa á und-
anförnum vikum unnið með ráðgjafa
og Corpus3 hópnum við að yfirfara
fyrirliggjandi hönnun. Skoðað er
hvað má betur fara og hvernig hægt
er að ná sem bestum árangri við eitt
flóknasta hönnunarverkefni okkar
tíma. Lykilþættir við hönnunina eru
aukin þjónusta og hagkvæmni í
rekstri.
Langþráð sameining
bráðastarfsemi spítalans
Þegar nýr meðferðarkjarni verð-
ur tekinn í notkun eftir 7 – 8 ár lýkur
sameiningu á bráðastarfsemi Land-
spítala. Sérgreinar spítalans verða
þá á einum stað sem hefur í för með
sér mikinn faglegan ávinning fyrir
starfsmenn og nemendur í heilbrigð-
isvísindagreinum en ekki síst fyrir
sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Ef fram fer sem horfir mun nýtt
þjóðarsjúkrahús við Hringbraut
marka þáttaskil í uppbyggingu á
góðri heilbrigðisþjónustu.
Alþingi er
mikilvægur bakhjarl
Endurnýjun á húsnæði Landspít-
ala nýtur mikils stuðnings á Alþingi.
Vorið 2014 var samþykkt þings-
ályktun þar sem ríkisstjórninni var
falið „að ljúka eins fljótt og verða má
undirbúningi á endurnýjun og upp-
byggingu Landspítala við Hring-
braut í Reykjavík og hefja fram-
kvæmdir þegar fjármögnun hefur
verið tryggð“. Ályktun Alþingis var
fylgt eftir í fjárlögum þessa árs en
þar er gert ráð fyrir 945 milljónum
króna í verkefnið. Í fjárlaga-
frumvarpinu fyrir árið 2016, sem nú
er til umfjöllunar á Alþingi, er til-
laga um 1.807 mkr. framlag. Þessi
fjárframlög eru í samræmi við áætl-
anir bygginganefndar Nýs Land-
spítala ohf.
(NLSH) sem
heldur utan um
framkvæmdina í
samræmi við
ákvörðun Alþing-
is með lögum nr.
64/2010 um bygg-
ingu nýs Land-
spítala við Hring-
braut í
Reykjavík. Þetta
eru aðeins fyrstu skrefin og nú þarf
að tryggja að framhald verði á og að
áætlanir byggingarnefndar gangi
eftir.
Á döfinni hjá
Spítalanum okkar
Spítalinn okkar, landssamtök um
uppbyggingu nýs húsnæðis Land-
spítala, fagnar þeim jákvæðu skref-
um sem tekin hafa verið á liðnum ár-
um en mikilvægt er að fylgja þessu
verkefni vel eftir.
Baráttu okkar er ekki lokið og
heilbrigðisstarfsfólk og almenningur
í landinu þarf að fylgjast vel með því
að ekkert bakslag verði í stuðningi
stjórnvalda og eftirfylgni. Samtökin
Spítalinn okkar standa fyrir mál-
þingi þriðjudaginn 13. október þar
sem rædd verða þau tækifæri sem
felast í framkvæmdinni, ekki síst
fyrir fyrir sjúklinga, starfsfólk og
landsmenn alla. Málþingið er öllum
opið og Spítalinn okkar býður
áhugafólk um uppbyggingu þjóð-
arsjúkrahúss hjartanlega velkomið á
hótel Reykjavík Natura þann dag.
Nýtt þjóðarsjúkrahús –
ávinningur okkar allra
Eftir Önnu Stefánsdóttur,
Gunnlaug Ottesen, Jón Ólaf
Ólafsson, Kolbein Kolbeinsson,
Oddnýju Sturludóttur, Sigríði
Rafnar Pétursdóttur og Þorkel
Sigurlaugsson
» Spítalinn okkar fagn-
ar því að fram-
kvæmdir eru nú að hefj-
ast við uppbyggingu og
fullnaðarhönnun Land-
spítalans.
Höfundar eru stjórnarmenn
Spítalans okkar.
Jón Ólafur
Ólafsson
Kolbeinn
Kolbeinsson
Anna
Stefánsdóttir
Oddný
Sturludóttir
Gunnlaug
Ottesen
Sigríður Rafnar
Pétursdóttir
Þorkell
Sigurlaugsson
mbl.is
alltaf - allstaðar