Morgunblaðið - 02.10.2015, Blaðsíða 84
84 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Fyrir þúsund árum stóðstyrjöld um heim allan,sjöunda heimsenda-stríðið, milli mannkyns
og dauðaherranna sem beittu fyrir
sig ófreskjum og illum galdri.
Leiðtogi mannkyns varð Jukiala,
sem stofnaði ríki sem bar nafn
hennar, vel
studd af sveit
magnaðra stríðs-
manna og
kvenna sem köll-
uðu sig Rauð-
kuflana, en
dauðaherrarnir
biðu ósigur og
fóru í felur. Ríki
Jukaia leystist upp eftir hennar
dag og við tóku viðsjárverðir
tímar stríðsherra og átaka og hin
illu öfl tóku að sækja í sig veðrið
að nýju.
Þessi heimur er sögusvið bóka
Elís Freyssonar Meistara hinna
blindu, Ógnarmána, Kallsins, Kist-
unnar og Eldmána.
Þrjár síðustu bækurnar eru
þríleikur, segja frá einum af
Rauðkuflunum, stúlkunni Kötju,
sem er utanveltu í mannheimi, en
verður henni til happs að dular-
full kona birtist, Serdra, og tekur
hana að sér, kennir henni bar-
dagalistir og galdra. Þessar
Kötju-bækur þrjár eru dæmigerð
þroskasaga þar sem við fylgjumst
með því hvernig Katja vex inn í
það hlutverk sem henni er ætlað,
en verður þó ekki bara afrit af
lærimeistara sínum, heldur er
hún sami glanninn í lok þriðju
bókarinnar og í upphafi þeirrar
fyrstu: „Bardagi, bardagi, bar-
dagi! hugsuðu taugar og æðar
Kötju í takt við hjartsláttinn.
Menn öskruðu af sársauka, sjúk
ára djöflagaldra lék um Kötju,
hætta var allt í kring, framtíð
borgarinnar og Innhafsins var í
stórkostlegri hættu og hún var
hrædd. En hún naut þess.“
Það er og styrkur þessara bóka
að Elí tekst að glæða Kötju lífi,
hún getur verið ólíkindatól og hún
er hörkutól, en hún getur líka ver-
ið tilfinningasöm og nærgætin,
eins og sést til að mynda í sam-
skiptum hennar við Lindu vinkonu
sína. Elí fer líka fram sem höfundi
með hverri bók og sérstaklega eru
orrustur vel skrifaðar hjá honum
með allri þeirri eymd og óreiðu
sem slíku fylgir. Aðalorrusta Kist-
unnar var mögnuð, en það eru líka
mikil og mögnuð átök í þessari
bók, sérstaklega þegar Katja legg-
ur af stað til að glíma við upp-
sprettu illskunnar.
Spennan dettur reyndar aðeins
þó niður um miðbik bókarinnar
eins og vill vera á meðan herirnir
stilla sér upp, sanka að sér vistum
og búa sig undir átökin. Stundum
stytta menn sér leið í slíkum frá-
sögnum, sem gerir söguna ótrú-
verðuga, en þó að Elí forðist það,
láti allt gerast á sínum hraða, þá
hefði framvindan mátt vera hrað-
ari frá því Katja kemur til Greni-
borgar og þar til illþýðið birtist
við borgarhliðin.
Bækurnar þrjár eru sjálfstæðar
að nokkru, en stefna þó allar að
lokaorrustunni sem háð er undir
lok Eldmána, sérstaklega eru
Kistan og Eldmáni samþættar, en
Kallið leggur grunninn að öllu
saman. Það er því kjörið að lesa
þær allar og þá í röð, enda er leit-
un að slíku og þvílíku hörkutóli
sem Kötju.
Mögnuð saga með ánægjulegum
endi og Elí Freysson vex með
hverri bók.
Bardagi, bardagi, bardagi!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vex Elí Freysson rithöfundur vex með hverri bók, að mati rýnis.
Fantasía
Eldmáni bbbmn
Eldmáni eftir Elí Freysson.
303 bls. kilja. Höfundur gefur út.
ÁRNI
MATTHÍASSON
BÆKUR
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Söngkonan og fiðluleikarinn Unnur Birna
Björnsdóttir er meðal þeirra tónlistarmanna
sem koma fram í rokkóperu Ians Andersons
og hljómsveitar hans Jethro Tull, Jethro Tull
The Rock Opera, eins og sjá má á vef hljóm-
sveitarinnar, jethrotull.com. Unnur er að vísu
ekki í holdinu í sýningunni heldur leikur hún
og syngur í myndböndum í henni.
Í upphafi sýningar sést hún í hlutverki
fréttakonu sem talar á íslensku og tilkynnir
áhorfendum að því sé spáð að öskuský frá
gosinu í Eyjafjallajökli muni hafa slæmar af-
leiðingar á nágrannaríkin. Lífefnafræðing-
urinn frægi, Jethro Tull, hafi því hannað
nýja tegund af korni sem eigi að þola betur
afleiðingarnar af öskufalli og minnkandi sól-
arljósi.
Tull færður til nútímans
Fyrir þá sem ekki vita þá var Jethro Tull
enskur frumkvöðull á sviði landbúnaðar, var
uppi á 18. öld og fann upp sáðvél sem dregin
var af hesti. Í rokkóperu Andersons er hann
færður til nútímans og gerður að leiðandi
vísindamanni sem starfar fyrir stjórnvöld og
hagnast vel af uppfinningu sinni, erfða-
breyttu korni.
Unnur leikur ekki aðeins íslenskan frétta-
þul í sýningunni heldur einnig eiginkonu Tull
og syngur hátt í 20 lög og resítatíf. Hljóm-
sveitin leikur úrval laga Jethro Tull sem
passa við söguna og nokkur ný, að hennar
sögn.
Samstarf Unnar og Ians Anderson hófst
árið 2009 þegar hún lék með honum á tón-
leikum hér á landi og svo aftur árið 2013.
Varð þeim vel til vina og Anderson hefur
m.a. leikið á þverflautu í lagi eftir Unni sem
verður hugsanlega á væntanlegri plötu henn-
ar. Og nú tekur Unnur þátt í rokkóperu
Andersons og hljómsveitar hans.
Fyrir framan grænskjá
„Ég er svo heppin að geta farið í tónleika-
ferðalag um heiminn og setið heima á sama
tíma,“ segir Unnur og hlær, stödd í Mos-
fellsbæ við tónlistarkennslu þegar blaðamað-
ur slær á þráðinn til hennar. Hún viður-
kennir að fiðringur hafi farið um hana þegar
hún sá mynd af sér og nafn sitt á vef Jethro
Tull en segist þó vera í sýningunni en ekki
hljómsveitinni, sem heitir Ian Anderson’s
Jethro Tull til aðgreiningar frá hinni upp-
haflegu hljómsveit sem skipuð var öðrum
tónlistarmönnum. Anderson er eini upp-
haflegi liðsmaður Jethro Tull. „Mér finnst
ekkert leiðinlegt að vera þarna,“ segir Unnur
kímin.
Unnur segir sinn hluta sýningarinnar hafa
verið tekinn upp fyrir framan grænskjá. Líkt
og í óperu séu öll samtöl sungin og í fyrsta
laginu sem hún syngi séu þau Tull úti á engi.
Unnur tekur lagið fyrir blaðamann, syngur
nokkrar línur með glæsibrag þó að kvef sé
að hrjá hana.
Á ferð um Suður-Ameríku
Rokkóperan var frumsýnd í bænum Bas-
ingstoke á Englandi 9. september og næstu
sýningar fara fram í Suður-Ameríku, nánar
tiltekið Argentínu, Brasilíu og Síle. Þaðan er
förinni heitið aftur til Bretlands og í nóv-
ember verða sýningar í Bandaríkjunum.
Unnur segir óperuna hafa fengið ágæt-
isdóma í Bretlandi og segist eiga erfitt með
að lýsa henni, bendir á myndbandavefinn
YouTube. Á honum má m.a. finna upphaf
sýningarinnar með því að slá inn í leitar-
glugga „Jethro Tull - The Rock Opera Intro-
duction and part Of Heavy Horses“. Unnur
segir hljómsveitina leika undir söng og
myndböndum og það sé mikill vandi.
En mun Unnur leika og syngja með And-
erson og félögum á tónleikum á næstunni?
„Mögulega mun ég koma eitthvað fram með
þeim og þá sérstaklega ef þeir koma til Ís-
lands,“ segir hún. „Við höfum alltaf haldið
mjög góðu sambandi,“ segir hún um þau
Anderson.
Að lokum nefnir Unnur að faðir hennar,
Björn Þórarinsson, sé í hljómsveitinni Mán-
um sem eigi hálfrar aldar starfsafmæli í ár
og að þau hafi platað Anderson til þess að
taka eitt lag með hljómsveitinni á væntan-
legri plötu hennar. Ekki amalegur liðsauki
það.
„Ekkert leiðinlegt að vera þarna“
Unnur Birna Björnsdóttir fer með hlutverk í rokkóperu Ians Anderson, Jethro Tull The Rock
Opera Leikur íslenskan fréttaþul og eiginkonu Tull og syngur hátt í 20 lög í myndböndum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vinir Unnur Birna á sviði með Ian Anderson á tónleikum í Hofi á Akureyri 7. júní árið 2013. Unnur og Anderson eru góðir vinir.
Susannah Anderson tók þessa mynd af Unni
Birnu fyrir framan grænskjá. Unnur er þarna
í hlutverki Susönnuh, eiginkonu Tull.