Morgunblaðið - 02.10.2015, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 02.10.2015, Blaðsíða 60
Morgunblaðið/Styrmir Kári Feðgarnir Kjartan Páll Eyjólfsson og Eyjólfur Pálsson í Epal, umkringdir sígildri hönnun að vanda. Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is „Afmælisbarnið er í góðum gír og hefur sjaldan verið hressara, held ég bara,“ segir Kjartan þegar við tyllum okkur á efri hæð húsakynna Epal við Skeifuna. „Það er ekki svo algengt að fyrirtæki í þessum geira nái að verða fjörutíu ára, með sömu eigendur frá upphafi. En það er hægt þegar fyrirtæki eins og þetta fjárfestir í sjálfu sér og byggir upp traust í gegnum ár- in. Hér hefur tvisvar verið greidd- ur út arður, held ég, allan þennan tíma.“ Það leynir sér ekki að hér starf- ar fólk af ástríðunni. Hún er líka á sinn hátt laun sem ekki verða met- in til fjár. „Tækifærin hafa boðist til þess að fara á flugið, það vantar ekki, og hér hafa margoft komið inn á borð tilboð þar sem aðilar vilja festa kaup á versluninni og rekstri hennar. En því hefur alltaf verið neitað. Pabbi hefur líka sagt við þau tækifæri: „Ef ég sel, hvað geri ég þá?“ Því fyrir honum hefur þetta fyrirtæki aldrei snúist ein- göngu um peninga, eða verið hon- um eins og hver önnur vinna. Þetta er hugsjón og þú setur ekki verðmiða á hana.“ Eins og farsælt hjónaband Kjartan segir fyrirtækið vita- skuld hafa upplifað misjafna daga í gegnum tíðina, og þó Epal hafi ekki farið í þrot í kjölfar hrunsins, eins og margar aðrar verslanir með vandaða hönnunarvöru gerðu, þá hafi fyrirtækið svo sannarlega fundið fyrir kreppunni. Salan hafi í kjölfar bankahruns dregist saman um helming, jafnvel rúmlega það. „Samskiptin við birgjana eru líka eins og hjónaband, segi ég stund- um; stundum er hlegið og faðmast og stundum er öskrað,“ segir Kjartan og hlær. „En í lok dags er sambandið á góðum stað og Epal og birgjarnir eru enn í hjónabandi, 40 árum seinna.“ Hann bætir því hér við að verslunin hafi alla tíð lagt höfuðáherslu á að samskipti við birgja sem og viðskiptavini hafi verið á góðum og heiðarlegum nót- um, svo allir gangi sáttir frá sam- skiptum. „Það hjálpar okkur ósegj- anlega að hafa 40 ára samband að baki, bæði við kúnna og birgja. Við höfum byggt upp gott orðspor og Hugsjón og hönnun í 40 ár hjá Epal  Verslunin Epal fagnar um þessar mundir 40 ára afmæli en nafn hennar hefur frá upphafi verið eins og samnefnari fyrir fallega hönnun, oftar en ekki frá Norðurlöndunum, fyrir hús og híbýli Tímalaust Eggið eftir Arne Jacob- sen er með frægari hægindastólum. Stofustáss Corona-stóllinn eftir Poul M. Volther. Tímalaus hönnun í Epal. 60 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 HEIMILI og hönnun Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is Pantanir í síma 562 0200 Reykjavíkurganga með borgarstjóra Laugardaginn 3. október verður fræðsluganga með Degi B. Eggertssyni, borgastjóra, um gömlu höfnina í Reykjavík Lagt verður af stað kl. 11 frá Hörpu og gengið út á Granda og til baka með viðkomu á áhugaverðum stöðum á leiðinni. Þetta er kjörið tækifæri til að sameina hressandi útiveru og fræðast um framtíðar skipulag svæðisins. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is www.fi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.