Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 44
REYKJAVÍK
Á FERÐ UM
ÍSLAND
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Við lendum ekki á viðkvæmum stöð-
um enda viljum við ekki skilja eftir
okkur ummerki. Oft erum við að
lenda á snjó og yfirleitt er það þann-
ig að það sér ekki nokkur maður að
þyrla hafi lent á staðnum,“ segir
Friðgeir Guðjónsson, sölu- og mark-
aðsstjóri hjá Reykjavík Helicopters.
Góður uppgangur hefur verið í
þyrluferðamennsku hér á landi und-
anfarin ár og eru nokkur þyrlufyrir-
tæki starfrækt á landinu.
Saga Reykjavík Helicopters er
stutt en farsæl. Í janúar 2013 hóf
fyrirtækið störf og var strax vel tek-
ið á markaðnum. Friðgeir segir að
það hafi verið stöðugur vöxtur frá
fyrsta degi og gerir ráð fyrir að svo
verði áfram ef marka má spár um
fjölgun ferðamanna. „Það er samt
ekki enn byrjað að gjósa á þessu
ári,“ segir hann og hlær, en fyrir-
tækið var fullbókað alla dagana sem
gosið í Holuhrauni stóð yfir.
Skilur ekki eftir sig spor
Þar sem þyrla þarf hvorki flug-
brautir né vegi bendir Friðgeir á að í
fimm klukkustunda þyrluferð megi
komast yfir og sjá svæði sem gæti
tekið marga daga að komast yfir
með hefðbundnum leiðum. Að auki
skilur þyrla ekki eftir sig nein spor í
náttúrunni.
„Náttúran er með öllu ósnortin
eftir okkar ferð um svæðið. Auðvitað
brennum við eldsneyti en miðað við
yfirferðina, ef við berum saman
jeppa og þyrlu í Diamond-ferðinni
okkar, þá er eyðslan líklega svipuð í
lítrum talið. Þar erum við á flugi í
tvo og hálfan tíma, en á ferðinni í
fimm. Það tæki viku eða tíu daga að
fara á þessa staði með hefðbundnum
leiðum, s.s. á jeppum, vélsleðum eða
gangandi. Fólk fer Laugaveginn, frá
Landmannalaugum til Þórsmerkur,
á lakkskónum með okkur. Þess
vegna held ég því fram að þetta sé
mjög umhverfisvænn ferðamáti. Það
er hins vegar hávaðamengun frá
okkur, en við reynum að taka tillit til
þess eins og við getum,“ segir hann.
Alls staðar vöxtur
Á síðunni TripAdvisor er fyrir-
tækið eingöngu með einkunnina
„Excellent“, en þegar þetta er skrif-
að má þar finna 70 ummæli um fyrir-
tækið og eru þau öll á einn veg. „Það
er eitthvað sem við erum mjög stolt-
ir af og lýsir metnaðinum hjá okkur.
Excellent-einkunn kemur ekki að
sjálfu sér og skiptir hún miklu máli.
Fólk úti í heimi skoðar þessa síðu áð-
ur en það leggur af stað og bókar sér
þyrluflug,“ segir hann.
Friðgeir segir að fyrirtækið sé
tilbúið í að vaxa með auknum ferða-
mannastraumi. „Það er vöxtur alls
staðar í ferðamannabransanum og
við erum tilbúnir í það og erum alltaf
að skoða okkar mál,“ segir hann. Þá
er þyrlufloti fyrirtækisins einnig í
stöðugri skoðun, en þyrlurnar sem
Á lakkskóm um
náttúruperlur
Uppgangur í þyrluferðamennsku
Umhverfisvænn ferðamáti
Nýlistasafnið er til húsa í Völvufelli
13-21 í Breiðholti, en safnið flutti úr
miðbæ Reykjavíkur sumarið 2014.
Þorgerður Ólafsdóttir safnstjóri seg-
ist ánægð með nýja staðsetningu.
„Þetta hefur í raun verið mjög já-
kvæð breyting og um leið mikil lyfti-
stöng fyrir Breiðholtið og útvíkkun á
menningu og myndlist í Reykjavík,“
segir hún og bendir á að safnið hafi
að undanförnu verið afar vel sótt.
„Gestahópur safnsins hefur fyrst
og fremst breikkað til muna frá því
sem áður var,“ segir Þorgerður og
heldur áfram: „Nú sækja okkur
grimmt heim sex ára guttar úr hverf-
inu. Þeir eru mjög duglegir við að
spyrja okkur út í samtímamyndlist.“
Krakkarnir í hverfinu eru ekki þeir
einu sem hafa gaman af þeirri list
sem Nýlistasafnið geymir því þangað
koma einnig skólahópar að meðaltali
tvisvar sinnum í viku. Þá er vert að
geta þess að einkasýning lista-
mannsins Emils Magnússon Bor-
hammar, sem nefnist Art-Works,
verður opnuð 10. október nk.
khj@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Nýló Þorgerður Ólafsdóttir safnstjóri og Eva Ísleifsdóttir safneignarfulltrúi.
Krakkarnir í Breiðholti eru æstir
í bæði menningu og listmuni
„Okkur langaði til að vera pínu
öðruvísi – vera kósí og hrá í bland,“
segir Hjördís Andrésdóttir, eigandi
veitingastaðarins Bike Cave, en stað-
urinn er staðsettur í Skerjafirði og
við helsta reiðhjólastíg borgarinnar.
Þar innandyra er hægt að taka
létta pásu frá hjólatúrnum, snæða
dýrindis veitingar, taka nokkur vel
valin lög á píanóið eða lagfæra far-
arskjótann. „Við erum með verk-
færakistu með öllum verkfærum í.
Það er því til dæmis hægt að umfelga
hjólin og jafnvægisstilla,“ segir Hjör-
dís, en markmiðið með staðnum er
að bjóða fólki upp á ódýran og góðan
mat og aðstöðu til þess að dytta að
reiðhjólum. Þá er þar einnig boðið
upp á vespuleigu á sumrin. Í vetur
verður hins vegar mikið um að vera
og alls kyns uppákomur eru í farvatn-
inu hjá Bike Cave. laufey@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litríkt Þegar komið er inn í hjólahellinn í Skerjafirði blasir við manni hugguleg
og hlý stemning, en þar er meðal annars hægt að fá sér ljúffengar veitingar.
Hjólahellir leynist í Skerjafirði
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Hugmyndin kviknaði á kaffihúsi í
París um að láta gott af sér leiða og
styrkja Unicef,“ segir Róbert Gunn-
arsson, landsliðsmaður í handbolta,
sem ásamt öðrum landsliðsmanni,
Gunnari Steini Jónssyni, hannar og
selur handþrykkta boli og peysur
undir vörumerkinu Bob Reykjavík.
Vörurnar eru umhverfisvænar
og framleiddar við siðferðislega við-
urkenndar aðstæður, að sögn Ró-
berts en hann og Gunnar Steinn
stofnuðu fyrirtækið sumarið 2015 og
hefur því verið tekið vel hér á landi.
„Þetta hefur gengið vel hingað
til og við vonum að fólk haldi áfram
að taka vel í þetta,“ segir Róbert, en
bolirnir eru uppseldir sem stendur.
Peysurnar má hins vegar enn nálg-
ast á heimasíðu fyritækisins, þ.e.
www.bobreykjavik.com.
Lítið fyrirtæki en stór gjöf
„Við löbbuðum strax inn til Uni-
cef og sögðumst vilja gefa þeim pen-
inga, en við ættum bara eftir að
safna þeim,“ segir Róbert léttur í
bragði um fyrsta skrefið þegar fyr-
irtækinu var ýtt úr vör í sumar. Fyr-
ir hvern seldan bol eða peysu styrkir
fyrirtækið Unicef um eitt teppi og
nýlega voru framkvæmdastjóra Uni-
cef á Íslandi afhent alls 250 teppi.
„Við erum mjög stoltir af því
Handboltakappar og
Bob styrkja Unicef
Hluti af hverri seldri vöru til góðs
Morgunblaðið/Eva Björk
Bob Róbert Gunnarsson og Gunnar Steinn Jónsson, eigendur fyrirtækisins Bob Reykjavík fagna góðu gengi.
Friðgeir Guðjónsson afhenti Krabbameinsfélagi Íslands í fyrra alls
521.045 krónur sem safnast höfðu hjá fyrirtækinu í október sama ár við
sölu á Bleikum þyrluferðum. Hafði þyrla fyrirtækisins þá verið máluð
bleik á litinn og skreytt bleiku slaufunni. Bauð fyrirtækið þannig upp á
„bleikar útsýnisferðir“.
Friðgeir segir þetta verkefni hafa verið skemmtilegt en krefjandi. „Ég
veit ekki hvort við gerum þetta aftur. Það var örlítið flóknara að gera
þetta en við héldum. Það voru fimm menn í tvo daga að mála þyrluna.
Það var þó sannarlega þess virði enda til styrktar góðu málefni, sem er
eitthvað sem við munum reyna að gera meira af í framtíðinni.“
Rúmlega hálf milljón safnaðist
BLEIKA ÞYRLAN SLÓ Í GEGN