Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
sumarbústað þar sem við gleymd-
um okkur við að teikna og lita,“
rifjar hún upp.
„Trúlega eiga litabækur fyrir
fullorðna síauknum vinsældum að
fagna því fólki finnst gott að slaka
á við skemmtilega iðju og hvíla sig
frá áreiti alls konar margmiðlunar
í umhverfinu.“
Nokkrir í facebookgrúppunni
Leynigarðurinn og aðrar fullorð-
ins litabækur hafa spreytt sig á
myndunum úr bókinni. „Árangur-
inn lofar góðu,“ segir Elsa. „Mér
finnst mjög gaman að sjá hvernig
mismunandi myndir eru tæklaðar.
Það skemmtilega við að lita í
svona litabækur er að engar regl-
ur gilda og hver og einn litar eins
og honum einum er lagið.“
Landslag Ísland er fagurt og frítt og getur tekið á sig margar myndir í nýju
litabókinni fyrir fullorðan eftir grafíska hönnuðinn Elsu Nielsen.
Til marks um litabókaáhugann hafa um4.700 manns skráð sig á facebooksíðunaLeynigarðurinn og aðrar fullorðins lita-
bækur, sem Hrönn Traustadóttir stofnaði rétt
eftir að bókin kom út á íslensku í júní. Síðan er
býsna lífleg því hópurinn er iðinn við að pósta
afrakstri vinnu sinnar, bera saman bækur sínar
og leita ráða. Hátt í sjö hundruð manns hafa
einnig skráð sig á facebooksíðuna Námskeið
með Hrönn, sem hún setti á laggirnar nokkrum
vikum síðar.
„Ég hef lengi verið í litahópum á netinu sem
eru þekkt fyrirbrigði víða um heim. Þegar ég
fékk Leynigarðinn að gjöf frá manninum mín-
um kannaði ég strax hvort hér hefði myndast
hópur áhugafólks á Facebook og þar sem ég
fann engan slíkan stofnaði ég síðuna sjálf.“
Hrönn hafði í nógu að snúast í sumar því hún
hélt námskeið heima hjá sér á Selfossi, í heima-
húsum hér og þar og var á ferð og flugi um allt
land til að anna eftirspurninni. Hún þurfti þó
svolítið að hægja á í haust því hún er kennari í
fullu starfi í Tækniskólanum þar sem hún
kennir teikningu, litafræði og hönnun.
Naglalakk og klessulitir
„Fyrir mér vakir fyrst og fremst að koma
þessari afþreyingu á hærra plan, ef svo má
segja. Hver og einn getur litað og valið liti nán-
ast blindandi. Hins vegar má alltaf gera betur,
fara nýjar leiðir, beita mismunandi tækni og
nota mismunandi gerðir af litum, jafnvel bara
kúlupenna. Það er í rauninni ekkert sem ekki
er hægt að nota,“ segir Hrönn og nefnir til
sögunnar naglalakk, galdraliti, gömlu klessulit-
ina og augnskugga.
Hún býður upp á byrjendanámskeið þar sem
áhersla er lögð á grunnkennslu í litatækni og
kynningu á litum og litasamsetningum. Einnig
heldur hún einstaklingsmiðuð námskeið og
námskeið ætluð mæðgum og fjölskyldum eða
vinahópum. „Kennaramenntun mín og reynsla
nýtast vel til að miðla til þeirra sem vilja læra
um leið og þeir lita,“ segir Hrönn, sem eftir
nám í listasögu í Þýskalandi lærði fatahönnun í
Mílanó.
Pælingar á faglegum nótum
„Ég sérhæfði mig í „trendum“,
sem líka má kalla tískufræði eða
tískustefnur, og vann síðan sem
trendhönnuður í Mílanó og París.
Pælingar mínar í mynstrum og
litasamsetningum eiga því að miklu
leyti rætur að rekja til faglegs
áhuga, þótt sjálfri þyki mér
skemmtileg afþreying að lita í lita-
bækurnar, sjá hvað aðrir eru að
gera og leiðbeina þeim. Samkvæmt
litafræðinni hafa litir mikil áhrif á
líðan fólks eins og ég hef sann-
reynt á sjálfri mér og í mínu starfi.
Mér finnst því bæði jákvætt og
uppbyggilegt að lita í litabækur af
þessu tagi.“
Hrönn hefur litað í litabækur fyrir fullorðna
árum saman, keypt bæk-
urnar í útlöndum eða á net-
inu þar sem þær hafa verið
fáanlegar í miklu úrvali í
áratugi, til dæmis litabæk-
ur með Mandala-trúar-
bragðatáknunum. „Af
markaðssetningunni mætti
ætla að Leynigarðurinn
eftir Johönnu Basford frá
2013 hefði verið fyrsta lita-
bókin fyrir fullorðna en því
fer víðsfjarri. Það er ekk-
ert nýtt undir sólinni þegar
öllu er á botninn hvolft.“
Hrönn spáir því að lita-
framleiðendur og bóka-
forlög bjóði alls kyns nýj-
ungar á næstunni og litagleðin muni ríkja á
Íslandi enn um sinn.
Ekkert nýtt undir sólinni
Litatækninámskeið Hrönn segir mun fleiri konur en karla lita í litabækur. Faðir hennar, Trausti
Valsson, prófessor, virðist þó býsna áhugasamur á litatækninámskeiði hjá dóttur sinni.
Leynigarðurinn Í þessum blómahrin
g sem lit-
aður er með trélitum eru engin tvö b
lóm eins.
Hestur Litað ofan í fyrirfram
skyggða mynd af netinu.
Froskur Skyldi froskurinn í bókinni TropicalWonderland geta breyst í prins?
Blóm og fiðrildi Blómaskr
úðið er með
eindæmum fagurt í Leynig
arðinum.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Ljós og hiti
TY2007X
Vinnuljóskastari ECO perur
2x400W tvöfaldur á fæti
6.590
TY2007K
Vinnuljóskastari
m handf 400W ECO
pera, 1,8m snúra
3.290
T38 Vinnuljós
5.590
Rafmagnshitablásari
5Kw 3 fasa
12.830
Rafmagnshitablásari
2Kw 1 fasa
6.890
TY2007W
Vinnuljóskastari
á telescope fæti
400W ECO pera
5.390
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
SHA-2625
Vinnuljóskastari
Rone 28W m.
innst. blár. 1,8m
snúra
6.990
SHA-8083 3x36W Halogen
16.990
Telescopic þrífótur
fyrir halogen lampa
6.790
Nýjar
vörur
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
www.selena.is • Næg bílastæði
Selena undirfataverslun