Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 32

Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 32
Deplar Gistihúsið í Fljótum er langt komið og líklega opnað næsta vor. Það- an munu þyrlur fljúga með auðuga gesti í fjallaskíðaferðir á Tröllaskaga. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fljótabakki með Orra Vigfússon í forsvari og bandaríska ferðaþjón- ustufyrirtækið Eleven Experience hafa ekki aðeins fjárfest í Fljótum í Skagafirði, líkt og Morgunblaðið fjallaði um nýver- ið, heldur festu einnig kaup á jörðinni Hrepps- endaá, innst í Ólafsfirði við ræt- ur Lágheiðar. Seljandi var Guðjón Þórð- arson knatt- spyrnuþjálfari en móðir hans, Marselía Guð- jónsdóttir, ólst upp á Hrepps- endaá. Amma hans og afi, Her- dís Sigurjóns- dóttir og Guðjón Jónsson, bjuggu þarna þar til á sjöunda áratug síðustu aldar. Síðan þá hefur jörðin verið í eyði en hún er landmikil og nær upp á Lágheiðina að sýslumörkum Skaga- fjarðar þar sem Fljótin taka við. Guðjón segir áform þessara fjár- festa spennandi og jákvæð fyrir svæðið. Umhverfið sé bæði fallegt og hrjóstrugt en jafnframt snjó- þungt. Þarna liggi fjölmörg tækifæri í ferðaþjónustu. Tækifæri í skíðamennsku Orri og félagar hafa til að byrja með uppi áform um að setja upp litla veðurathugunarstöð við Hrepps- endaá og sjá einnig fyrir sér að Lág- heiðin bjóði upp á ýmsa möguleika í skíðamennsku. Eftir að Héðinsfjarð- argöngin voru opnuð heldur Vega- gerðin veginum um heiðina ekki lengur opnum yfir vetrartímann. Eleven Experience áformar að gistihúsið á Deplum verði opnað næsta vor en fjárfestarnir hafa einn- ig fest kaup á jörðunum Knapps- stöðum og Stóru-Brekku í Fljótum, auk áhuga á fleiri jörðum eins og kom fram í umfjöllun Morgunblaðs- ins 24. september sl. Jennifer Jeffery hjá Eleven Ex- perience segir jörðina í Ólafsfirði bjóða upp á ýmsa möguleika. Auk góðra aðstæðna til skíðaiðkunar sé hægt að vera þarna með hesta- og gönguferðir að sumri til. Þá séu hug- myndir á algjöru frumstigi um að endurbyggja íbúðarhúsið á Hrepps- endaá í upprunalegri mynd og hafa það sem afdrep fyrir þá viðskiptavini fyrirtækisins sem myndu stunda einhvers konar útivist þarna á heið- inni, hvort sem er að vetri eða sumri til. Orri og félagar beggja vegna Lágheiðarinnar  Festu kaup á innstu jörðinni í Ólafsfirði, Hreppsendaá Ólafsfjörður Siglufjörður Stífluvatn Miklavatn Lá gh ei ði Stóra Brekka Bergland-veiðihús Deplar-gistihús Hreppsendaá Fjárfestingar í Fljótum Eign Í leigu Fljótabakki og Eleven Experience Guðjón Þórðarson Orri Vigfússon 32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Markmiðið var að benda á hinar neikvæðu hliðar íþróttaiðkunnar svo hægt væri að vinna gegn þeim áhrif- um,“ segir Hanna Rut Heimisdóttir sem skrifaði BA-ritgerð í íþrótta-, tómstunda og þroskaþjálfadeild við Háskóla Íslands sem nefnist „Nei- kvæðar hliðar íþróttaiðkunnar. Leiðir til lausna“ ásamt Guðnýju Birnu Ólafsdóttur. Þær komust að því að neikvæðar hliðar íþróttaiðkunnar eru tals- verðar sem bæði iðkendur, foreldrar og þjálfarar þurfa að vera opnir fyr- ir svo unnt sé að sporna gegn þeim. Í ritgerðinni voru skoðaðir iðk- endur á aldrinum 13 til 25 ára og þeir greindir út frá níu þáttum sem flokkast til neikvæðra hliða, þeir eru: brottfall, áhrif foreldra, fæðing- ardagsáhrif, sérhæfing, getuskipt- ing, áhrif þjálfara, átraskanir, lyfja- notkun og ofþjálfun. Það var margt sem kom þeim á óvart þegar þær unnu ritgerðina. Helst nefndu þær þáttinn átrask- anir en það kom þeim á óvart hversu faldar þær eru. Ofþjálfun ekki mikið rannsökuð Þær skoðuðu einnig ofþjálfun en hún hefur ekki verið mikið rann- sökuð á Íslandi og því fáar rann- sóknir til um ofþjálfun íslensks íþróttafólks. Sá þáttur í þjálfun er vanmetinn að stóru leyti, segir Hanna Rut. Hún bendir þó á að nú sé meiri fagmennska og þekking á meðal margra þjálfara og þeir eru því betur meðvitaðir um hættuna sem fylgir henni. Andlega þáttinn segja þær að skipti miklu máli í íþróttaiðkun sem verði að gefa meiri gaum. Í ritgerðinni benda þær á nei- kvæðar hliðar en það eru einnig leiðir til lausna. Þær vilja leggja meiri áherslu á að veita öllum í yngri flokkum tækifæri til að láta ljós sitt skína og í því tilliti eiga þjálfarar ekki að einblína of mikið á sigur. Það geti t.d. spornað gegn áhrifunum fæðingardags. Þá sé stuðningur foreldra alltaf mik- ilvægur á öllum aldri. Forvarnastarf er sterkt og mikilvægt mótvægi gegn neikvæðum hliðum íþróttaiðk- unnar. Vinna gegn neikvæðum áhrifum íþrótta  Þjálfarar yngri flokka þurfa að veita öllum tækifæri til að láta ljós sitt skína  Stuðningur foreldra skiptir miklu máli  Forvarnarstarf er mikilvægt mótvægi gegn neikvæðum áhrifum íþrótta Vinkonur Hanna Rut Heimisdóttir og Guðný Birna Ólafsdóttir. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Íþróttir Allir þurfa og vilja fá tækifæri til að sprikla á vellinum. Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Full búð af flottum flísum Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæðaflokki frá þekktum ítölskum framleiðendum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.