Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 42

Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 42
42 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Hvar endar þetta? Ekki er langt síðan einn þekktasti útgefandi leið- sögubóka í heiminum, Lonely Plan- et, útnefndi Akureyri eftirsóttasta ferðamannastað Evrópu og nú leyfir bandarískur vefur sér að telja skíða- svæðið í Hlíðarfjalli upp sem eitt þeirra 12 mest heillandi í heiminum!    Vefurinn Unofficial Networks, sem er samstarfsaðili bandaríska dagblaðsins USA Today, birti í síð- ustu viku val sitt á 12 „most exotic“ skíðasvæðum heims og á þeim lista er Hlíðarfjall að finna. Exotic mætti þýða sem framandi en í þessu tilfelli verður orðið heillandi að sjálfsögðu fyrir valinu enda líka mögulegt!    Ég segi eins og maðurinn sem heyrði af þessu í gær: Guð sé oss næstur! Fyllist bærinn jafnvel af ferðamönnum að vetri til líka? Verð- ur hugsanlega ekki pláss fyrir mig sjálfan á kaffihúsi?    Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri gera það ekki enda- sleppt. Formaðurinn, Jóhannes Bjarnason, brosir breitt þessa dag- ana enda sogast að honum fé. Rétt er þó að taka fram að hann er ekki saddur; aldrei er of mikið af pen- ingum í þessum bransa.    Um daginn var haldið hagyrð- inga- og söngkvöld í stóra salnum í Hofi þar sem var nánast fullt hús og Jóhannes fór heim með ávísun upp á 2,2 milljónir króna! Það voru Lions- menn á Akureyri sem höfðu frum- kvæði að samkomunni.    Allir sem fram komu gáfu vinnu sína og hver króna sem kom í kass- ann rann til Hollvinasamtakanna.    Annar viðburður og ekki síður skemmtilegur, að sögn Jóhannesar – Sviðakvöld – fór fram á Akureyri Backpackers á dögunum. „Þetta var hugarfóstur þeirra góðu hjóna sem eiga Backpackers, Geirs og Ingu Lilju. þau höfðu samband og vildu hjálpa til. Þau lögðu til sal, þjónustu, mat og drykk, stóðu sem sagt straum af öllum kostnaði, en við seldum bara miðana og hirtum ágóð- ann!“ segir Jóhannes.    Jóhannes nefnir þetta sem gott dæmi um þann mikla velvilja sem hann finni í bænum gagnvart Holl- vinasamtökunum. Ekki eru mörg misseri síðan þau voru stofnuð en hafa þó þegar safnað tugum milljóna og keypt tæki og tól fyrir sjúkra- húsið. Á sviðakvöldinu kostaði að- göngumiðinn 5.000 að lágmarki og margir greiddu mun meira. Alls komu nokkur hundruð þúsund króna í kassann það kvöld.    Oddur Helgason, ættfræðingur í Reykjavík, gjarnan kallaður „spek- ingur“, vísiteraði gamla heimabæinn nýverið. Kom í 60 ára fermingar- afmæli, ætlaði að dvelja nyrðra í fjóra daga en þeir urðu 14! Þurfti að tala svo mikið; aldrei þessu vant, segir hann sjálfur …    Oddur er kominn í samstarf við góða menn í safnabransanum nyrðra, bæði varðandi sjóminjar og norðurhjarann, og segir: Þetta verð- ur unnið í grasrótinni, í samstarfi við fólkið í landinu.    Eitt af verkefnunum sem Oddur vinnur að er saga danskra kaup- manna. Það gerir hann í samstarfi við Hallgrím Guðmundsson, dótt- urson Hallgríms Einarssonar ljós- myndara á Akureyri. „Við erum að rannsaka sögu dönsku kaupmann- anna sem voru á Akureyri, Hofsósi og Grafarósi,“ segir Oddur.    Á dögunum var settur upp hjólaviðgerðastandur í göngugöt- unni. Það er Hjólreiðafélag Akur- eyrar sem hafði frumkvæði að þessu en félögum fjölgar jafnt og þétt. Sí- fellt fleiri hjólríða um bæinn.    Græjan mun sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi en er víst al- geng í útlandinu. Þar er loftpumpa auk ýmissa tóla til að gera við hjólið ef það bilar. Gæti hugsast að Akur- eyri yrði valin besti hjólreiðabær í heimi fljótlega? Mestir, bestir og flottastir – í velflestu … Morgunblaðið/Skapti Hlíðarfjall Mjög gott og fallegt, segja heimamenn og renna sér ótt og títt. Eitt mest heillandi skíðasvæði í heimi, segja nú útlendingar! Ljósmynd/Sigurður E. Sigurðsson Tvær komma tvær Jóhannes Bjarnason, formaður Hollvinasamtakanna, með táknræna ávísun eftir hagyrðinga- og tónlistarkvöldið í Hofi. Ættfræði Hallgrímur Guðmundsson og Oddur „spekingur“ Helgason. Morgunblaðið/Skapti Hjól Viðgerðartólið, það rauða, er við þennan fallega gafl í miðbænum. Jarðvegsvinna hófst fyrir nokkru í nýjasta hluta Naustahverfis, sem telst númer þrjú og kennt er við haga. Götur í hverfinu verða nefndar eftir þekktum borgurum á Akureyri. Hverfið verður rammað inn með götunum Kjarnagötu, Naustabraut, Naustagötu og Wilhemínugötu, sem nefnd er eftir Wilhelmínu Lever kaupmanni, sem kaus fyrst kvenna á Íslandi, í sveitarstjórnarkosningum árið 1863. Aðrar götur í hverfinu verða þess- ar: Davíðshagi (eftir Davíð Stef- ánssyni, skáldi frá Fagraskógi), Ein- arshagi (Einar Olgeirsson stjórn- málamaður sem bjó ungur maður á Akureyri), Elísabetarhagi (Elísabet Sigríður Geirmundsdóttir lista- kona), Finnshagi (Finnur Jónsson prófessor), Geirþrúðarhagi (Geir- þrúður Thyrrestrup sem átti sér merka kvennasögu á Akureyri), Gudmannshagi (Gudmannsfeðgar sem lengi ráku verslun á Akureyri, sá yngri, Friðrik, gaf bænum spít- alann Gudmanns Minde), Halldóru- hagi (Halldóra Bjarnadóttir, skóla- stjóri Barnaskóla Akureyrar), Kristjánshagi (Kristján Einarsson skáld frá Djúpalæk), Matthíasarhagi (Matthías Jochumsson, skáld og prestur), Ólafarhagi (Ólöf Sigurð- ardóttir skáld frá Hlöðum) og Stein- dórshagi (Steindór Steindórsson, náttúrufræðingur og skólameistari). Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hálfnað er verk … Vinna er hafin í Naustahverfi 3, beint upp af flugvell- inum, á svæðinu milli Kjarnaskógar og núverandi byggðar á Akureyri. Wilhelmína, Davíð, Matthías og þau öll  Byrjað að vinna við Naustahverfi 3 www.gilbert.is ISLANDUS CLASSIC VIÐ KYNNUM TÍMALAUS HÖNNUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.