Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 46

Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 46
46 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015                                    !  "# $ $ $"$ !% %" # # $ &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 !   $ " %! $%!# $ !%! %"  !# #%$ " !!# "# %# $% $ !%"" %"#    ##$  % Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöll Íslands námu í september 38,6 milljörðum króna. Er það 123% aukning frá sama mánuði í fyrra. Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group eða 6,6 milljarðar en þar á eftir kom Marel með rétt rúma 6 milljarða. Úrvalsvísitalan hækkaði í mánuðinum um 5,9% frá fyrra mánuði og stóð í lok mánaðarins í 1.680 stigum. Á aðal- markaði var hlutdeild Landsbankans mest í viðskiptum eða 28,9%. Í sept- ember námu viðskipti með skuldabréf 228 milljörðum, sem samsvarar 10,4 milljarða veltu á dag. Felur það í sér 34% aukningu frá sama mánuði 2014. Umsvif jukust í Kaup- höllinni í september ● Forsvarsmenn Starwood, sem á meðal annars W-hótelkeðjuna, eru áhugasamir um að finna tækifæri á ís- lenska markaðnum, að því er fram kem- ur á vefnum turisti.is. Fjárfestahópurinn sem stendur að byggingu hótels við Hörpu átti á sínum tíma í viðræðum við forsvarsmenn W-hótelanna. Í sumar var hins vegar tilkynnt að hótelið yrði rekið undir merkjum Marriott Edition. Starwood á og rekur nokkrar alþjóð- legar hótelkeðjur, þar á meðal Sheraton og Westin, auk W. Eigandi W-hótelanna hefur áhuga á Íslandi STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Margrét Kr.Sigurðardóttir margret@mbl.is „Við fyrstu sýn virðist okkur þessi útfærsla vera töluvert meira íþyngj- andi en gerist í löndunum í kringum okkur og teljum við óvíst að þetta sé rétt innleiðing á tilskipuninni,“ segir Marta Guðrún Blöndal, lögfræðing- ur hjá Viðskiptaráði Íslands. Í ViðskiptaMogganum í gær var greint frá því að óheimilt verður að greiða út arð á grundvelli reiknaðs hagnaðar, ef nýtt frumvarp um árs- reikninga, sem leggja á fyrir Alþingi á næstunni, verður samþykkt óbreytt. Nú er heimilt að færa virðis- breytingar á eignum til hagnaðar sem er reiknuð stærð en með fyrir- huguðum breytingum verður inn- leystur hagnaður að vera lagður til grundvallar útgreiðslu arðs. Mest áhrif á fasteignafélögin Marta segir að þær breytingar sem gera á hafi mest áhrif á fast- eignafélögin. „Þetta snýst um ólíkar heimildir til ráðstöfunar hagnaðar vegna matsbreytinga, annars vegar á fastafjármunum og hins vegar á fjárfestingareignum. Áhrifin eru mikil á fasteignafélögin þar sem matsbreytingar á fasteignum hjá þeim eru verulegur hluti af þeirra rekstrargrundvelli. Félögin meta hækkun á gangvirði fasteigna sinna og greiða arð meðal annars á þeim grundvelli. Það gæti því orðið að arð- greiðslur þeirra muni lækka veru- lega þótt reksturinn sé áfram arð- bær. Félögin þurfa þá að selja eignir til þess að geta greitt út arð á grund- velli virðisbreytinga.“ Hún segir að athugasemdum verði komið til atvinnuvegaráðuneytisins. „Við hvetjum ráðuneytið til að skoða þetta betur og munum í okkar um- sögn benda á fleiri þætti sem við ger- um athugasemdir við,“ segir Marta en meðal þess eru breytingar á við- urlagaákvæðum sem frumvarps- drögin kveða á um, þar sem skuli krefjast gjaldþrotaskipta ef félag hefur ekki skilað inn ársreikningi innan átta mánaða. Tekur ábyrgð af stjórnum „Það er óskiljanlegt af hverju þarf að vera aukin forræðishyggja hvað þetta varðar í íslensku viðskiptaum- hverfi, frekar en í því viðskiptaum- hverfi sem við ætlum að bera okkur saman við. Ég get alls ekki séð af hverju íslensk löggjöf á að ganga lengra hvað þetta varðar heldur en nágrannalönd okkar,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri fasteigna- félagsins Reita, um frumvarpsdrög- in. Hann segir margt í þessum breyt- ingum ekki ganga upp. „Það er auð- vitað mjög sérstakt að menn telji það nauðsynlegt að taka þessa ábyrgð og þetta hlutverk af stjórnum félaga. Þær eiga að standa skil á gjörðum sínum þegar kemur að því að greiða út arð til hluthafa. Það gilda um þetta ákveðnar reglur í hlutafélagalögum en þarna á að gera breytingar á lög- um um ársreikninga. Þau lög fjalla um upplýsingaskyldu en eru ekki löggjöf um hvað má og ekki má í meðferð fjármuna þeirra fjárfesta sem setja peningana sína í hluta- félög.“ Guðjón segir að það sé langur vegur frá því að fasteignafélög geti ekki skilað verðmætum til hluthafa þó þessi breyting sé óneitanlega þröskuldur. „Að greiða út arð er bara ein aðferð til að skila verðmætum til hluthafa, það er hægt að kaupa eigin bréf eða hreinlega greiða út eigið fé.“ Þarf stöðugleika og gagnsæi Guðjón kallar eftir stöðugleika og gagnsæi í því regluverki sem at- vinnugrein hans eigi að vinna eftir. „Ég hélt að stjórnvöld væru á þeim stað að einfalda regluverk og hafa leikreglur skýrar hvað varðar þenn- an atvinnuvettvang. En menn virðast vera mjög áfjáðir í að breyta sífellt leikreglunum, hvort sem varðar þetta eða breytingarnar sem gerðar voru á fasteignagjöldunum sem höfðu mjög íþyngjandi áhrif á eig- endur atvinnuhúsnæðis. Það er mál að linni,“ segir Guðjón. Gætu þurft að selja eignir til þess að greiða út arð Morgunblaðið/ Ómar Arður Takmarkanir á arðgreiðslum sem fylgja nýju frumvarpi geta haft mikil áhrif m.a. á skráð fasteignafélög.  Viðskiptaráð telur drög að frumvarpi um ársreikninga óþarflega íþyngjandi Nefnd um heildarendurskoðun á lög- um um Seðlabanka Íslands skilaði lokaskýrslu sinni til fjármála- og efnahagsráðherra í gær. Meðal þess sem þar kemur fram er að Seðla- bankinn lagði til við nefndina að starfsmönnum hans yrði tryggð frið- helgi gegn hugsanlegum málsóknum sem stofnað kann að verða til gegn þeim vegna starfa þeirra í þágu bankans. Nefndin vísar þessari til- lögu til skoðunar í fjármála- og efna- hagsráðuneytinu. Í umfjöllun nefndarinnar um beiðni bankans er bent á að Seðlabankinn hafi í ákveðnum tilvikum veitt þeim sem vinna störf í þágu hans skaðleysi án þess að sérstaklega sé kveðið á um það í lögum. Vísar nefndin sérstak- lega til þess þegar formaður banka- ráðs Seðlabankans skuldbatt stofn- unina til að bera kostnað af mála- ferlum seðlabankastjóra við bankann. Vísar nefndin í umfjöllun sinni til svarbréfs Ríkisendurskoðunar frá 30. júní en þar kom fram það álit að bankaráðið hefði valdheimildir til að skuldbinda bankann með þeim hætti sem gert var. Nefndin gerir enn fremur grein fyrir því að óalgengt sé að friðhelg- isákvæði, eins og bankinn kallar eft- ir, séu lögfest. Dæmi finnist þó um það, m.a. í neyðarlögunum svoköll- uðu þar sem kveðið var á um að for- stjóri, starfsmenn og stjórnarmenn Fjármálaeftirlitsins væru ekki skaðabótaskyldir vegna ráðstafana sem heimilar voru til fjárveitinga úr ríkisskjóði. Nefndin, sem skipuð er þeim Þráni Eggertssyni og Friðriki Má Baldurssyni, bendir á að samkvæmt meginreglu um vinnuveitenda- ábyrgð þarf almennt mikið að koma til að starfsmenn bankans beri per- sónulega ábyrð í störfum sínum, svo sem að þeir fari verulega út fyrir starfsvið sitt eða valdi tjóni af stór- felldu gáleysi. Morgunblaðið/Ómar Lög Nefnd um endurskoðun laga um Seðlabankann hefur lokið störfum. Starfsmenn SÍ njóti friðhelgi  Bankinn hefur veitt skaðleysi án lagaheimildar mbl.is/askriftarleikur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.