Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 50
50 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Bandarísk stjórnvöld saka Rússa um
að magna borgarastríðið í Sýrlandi
með því að auka hernaðaraðstoð sína
við einræðisstjórn landsins og hefja
loftárásir á andstæðinga hennar, m.a.
„hófsama“ uppreisnarmenn. Rúss-
neska stjórnin segir á hinn bóginn að
lofthernaðurinn beinist eingöngu að
Ríki íslams og fleiri samtökum ísl-
amista.
Charles Lister, sérfræðingur í bar-
áttunni gegn hryðjuverkastarfsemi í
Miðausturlöndum, segir að taka beri
þessa staðhæfingu Rússa með fyrir-
vara. Þótt stjórninni í Moskvu sé
greinilega mikið í mun að berjast
gegn íslamistum hafi hún hneigst til
þess að setja alla uppreisnarmennina
í Sýrlandi undir einn hatt, líta á þá
alla sem hryðjuverkamenn er ógni
öryggi annarra ríkja, m.a. Rússlands.
Bandaríska leyniþjónustan CIA
hefur þjálfað þúsundir sýrlenskra
uppreisnarmanna í Jórdaníu til að
reyna að efla „hófsamar“ hreyfingar
sem hafa barist gegn einræðis-
stjórninni frá því að stríðið í Sýrlandi
hófst í mars 2011 eftir að hún kvað
niður mótmæli stjórnarandstæðinga
með grimmilegum hætti. Bandarísk
stjórnvöld óttast að rússneskar her-
þotur geri árásir á þessa uppreisnar-
menn og fréttaveitan AFP hefur eftir
sérfræðingum í málefnum Mið-
austurlanda að það hafi þegar gerst.
Lofthernaðurinn hafi beinst að öllum
hreyfingum sem berjast gegn ein-
ræðisstjórninni.
Ekki allt sama tóbakið
Sergej Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, áréttaði að loftárásirnar
beindust eingöngu að Ríki íslams og
enginn fótur væri fyrir fréttum um
að ráðist hefði verið á aðrar hreyf-
ingar. Talsmaður Vladímírs Pútíns
Rússlandsforseta sagði að mark-
miðið með lofthernaðinum væri að
styðja sýrlensku stjórnina í barátt-
unni við Ríki íslams og „aðrar
hryðjuverka- og öfgahreyfingar“.
Talsmaðurinn var þá spurður hvort
loftárásirnar beindust að Frjálsa sýr-
lenska hernum, fylkingu uppreisnar-
manna sem njóta stuðnings vest-
rænna ríkja og berjast gegn
stjórnarhernum og Ríki íslams. Tals-
maður Pútíns dró þá í efa að Frjálsi
sýrlenski herinn væri í raun til.
„Hafa þeir ekki flestir gengið til liðs
við samtökin Ríki íslams?“ spurði
hann. „Frjálsi sýrlenski herinn var til
en enginn veit með vissu hvort svo er
ennþá.“
Charles Lister telur að þótt Ríki
íslams og fleiri hreyfingar íslamista
hafi sótt í sig veðrið í Sýrlandi sé það
„augljóslega rangt“ að setja alla and-
stæðinga einræðisstjórnarinnar und-
ir einn hatt. Hann gagnrýnir einnig
Bandaríkjastjórn og segir að stefna
hennar í málinu hafi misheppnast
með hörmulegum afleiðingum. Hann
skírskotar m.a. til frétta um að fyrsti
hópurinn, sem CIA þjálfaði og vopn-
aði, hafi beðið ósigur fyrir hreyfingu,
sem tengist al-Qaeda, í júlí sl. og seg-
ir að næsti hópur hafi afhent hreyf-
ingunni helming allra farartækja
sinna og 25% skotfæra sinna þegar
hann kom til Sýrlands fyrir nokkrum
dögum.
Reyndar sést þarna vandi Banda-
ríkjastjórnar í hnotskurn því að hún
var lengi treg til að vopna „hófsömu“
uppreisnarmennina af ótta við að
vopnin kæmust í hendur íslamskra
öfgasamtaka. Stjórnin vildi í fyrstu
einbeita sér að því að byggja upp
tengsl við sýrlensku stjórnarandstöð-
una og beita einræðisstjórnina þrýst-
ingi með hertum efnahagslegum
refsiaðgerum.
Stjórn Obama samþykkti þó að
lokum að þjálfa og vopna uppreisnar-
mennina og ákvað síðan með miklum
semingi fyrir ári að hefja loftárásir á
liðsmenn Ríkis íslams eftir að þeir
hófu fjöldamorð á jasídum á yfir-
ráðasvæðum sínum. Markmiðið með
loftárásunum er að gera sýrlensku
uppreisnarhreyfingunum og Kúrd-
um kleift að sigrast á liðsmönnum
Ríkis íslams, en það hefur ekki gerst
og segja má að þær hafi verið eins og
olía á eldinn. Lofthernaðurinn hefur
aðeins orðið til þess að borgarastríðið
hefur harðnað.
Gerði Obama mát
Breski rithöfundurinn og blaða-
maðurinn Con Coughlin gagnrýnir
tvístígandi stefnu Bandaríkja-
stjórnar í baráttunni gegn Ríki ísl-
ams og segir að Pútín hafi notfært
sér „tómarúmið“ vegna ráðleysis
Obama til að taka frumkvæðið með
það fyrir augum að styrkja stöðu
Rússlands í arabalöndum. Rússar
ráði nú ferðinni í Sýrlandsmálinu og
Bandaríkjamenn geti lítið gert til að
stöðva þá. „Obama hefur skýlausan
rétt til að láta í ljós þá skoðun að ekki
komi til greina að Assad verði leyft
að halda forsetaembættinu, en hann
hefur engin raunveruleg ráð til að fá
þeirri stefnu framgengt. Pútín hefur
á hinn bóginn tryggt að Assad haldi
velli með því einfaldlega að senda
rússneskar vígvélar í höfuðvígi ala-
víta. Væru leiðtogarnir að tefla skák
teldist Pútín hafa gert Obama mát,“
segir Coughlin í grein í The Tele-
graph.
Peter Forster, fréttaskýrandi The
Telegraph, gagnrýnir einnig ráðleysi
ráðamanna á Vesturlöndum en segir
að vestrænu ríkin geti ekki orðið við
þeirri áskorun Pútíns að ganga til liðs
við Rússa og einræðisstjórnina í Sýr-
landi í baráttunni gegn íslamistum.
Það myndi ekki aðeins styrkja ein-
ræðisstjórnina í sessi, heldur einnig
verða til þess að „hófsamir“ upp-
reisnarmenn úr röðum súnní-
múslíma neyddust til að ganga til liðs
við Ríki íslams, ella ættu þeir á hættu
að verða fyrir árásum stjórnarhers-
ins og rússneskra bandamanna
þeirra. Slík íhlutun væri því eins og
að skvetta olíu á ófriðarbálið.
Ekki betri kostur
Charles Lister tekur í sama streng
í grein á fréttavef BBC og segir að
stjórnin í Sýrlandi sé ekki og geti
aldrei talist betri kostur en Ríki ísl-
ams. Hann bendir á að einræðis-
stjórnin ber ábyrgð á 95% dauðsfall-
anna í stríðinu og langflestir þeirra
sem hafa hrökklast frá heimkynnum
sínum flúðu vígamenn einræðis-
stjórnarinnar, ekki Ríki íslams eða
al-Qaeda. Einræðisstjórnin beri ekki
aðeins ábyrgð á glæpsamlegum
sprengjuárásum á almenna borgara
og grimmilegum pyndingum heldur
hafi hún hvað eftir annað ýtt af
ásettu ráði undir uppgang Ríkis ísl-
ams og annarra hreyfinga íslamista í
því skyni að sundra andstæðingum
sínum.
Olíu skvett á ófriðarbálið
Rússar sagðir gera loftárásir á sýrlenskar uppreisnarhreyfingar sem njóta stuðnings vestrænna
ríkja Pútín skaut Barack Obama ref fyrir rass Ráðleysi ráðamanna á Vesturlöndum gagnrýnt
AFP
Rúm milljón barna meðal flóttafólksins í Tyrklandi
Flóttamenn stíga af gúmmíbáti á grísku eyjunni Lesbos eftir siglingu yfir Eyjahaf frá Tyrklandi. Rúmar tvær milljónir sýrlenskra flóttamanna eru í Tyrk-
landi, þeirra á meðal rúm milljón barna. Um 600.000 barnanna eru á skólaaldri en aðeins um þriðjungur þeirra gengur í skóla. „Sýrlensku fjölskyldurnar
vilja það sem fjölskyldur úti um allan heim sækjast eftir. Þær vilja öryggi, vinnu til að geta séð fyrir börnum sínum, senda þau í skóla, tryggja þeim heilsu-
gæslu og veita þeim framtíð,“ sagði Philippe Duamelle, talsmaður Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Tyrklandi.
AFP
Deilt um hernað John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Sergej
Lavrov, starfsbróðir hans frá Rússlandi, ræddu Sýrlandsdeiluna á fundi í
höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í fyrrakvöld.
Rússland
Heimild: isw
JÓRDANÍA
LÍ
BA
N
O
N
TYRKLAND
DAMASKUS
SÝRLAND
Aleppo
Hama
Latakia
Tartus
Idlib
Í RAK
Kobane
Raqa
Deir
Ezzor
Palmyra
100 km
Lofthernaður Rússa í Sýrlandi
Ríki íslams
Uppreisnar-
hreyfingar
Stjórnarherinn
Stjórnarherinn
og Hizbollah
Kúrdar
Stöðvar
hermanna
Árásir
Yfirráðasvæði:
Homs
Hama
Salamiyah
10 km
Homs
Fáir styðja íhlutun
» Nýjustu skoðanakannanir
benda til þess að rúm 70%
Rússa styðji Vladímír Pútín
Rússlandsforseta.
» Nýleg könnun bendir til þess
að aðeins 14% Rússa séu
hlynnt hernaðaríhlutun í Sýr-
landi til stuðnings einræðis-
stjórn landsins. Margir Rússar
óttast að rússneski herinn
dragist inn í langvinn átök, líkt
og í Afganistan eftir innrás
sovéska hersins 1979.