Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 58

Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 58
HEIMILI OGhönnun Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 – Opið: Virka daga 9.30-18 ER KOMINN TÍMI Á NÝ GLERAUGU? FÁÐU SJÓNMÆLINGU HJÁ OKKUR Traust og góð þjónusta í 19 ár Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is „Það er oftast hægt að koma til móts við óskir fólks þegar kemur að því að hanna og smíða arin,“ segir Magnús. „Ef einfalt þak er fyrir ofan fyrir- hugað eldstæði á að vera tiltölulega einfalt að fara í gegnum það. Ég mæti heim til fólks að kanna aðstæður á staðnum og hlusta á hvað það er sem fólk vill. Það er yfirleitt þannig sem þetta vinnst,“ útskýrir hann en bætir þó við að fyrirtæki hans vinni líka eft- ir tilbúnum teikningum arkitekta, ef svo ber undir. „Svo er líka algengt að fólk sé með ljósmyndir og myndir sem það hefur klippt úr tímaritum, og er þá að hugsa sér eitthvað svipað því sem er á myndunum. Þá vinnum við bara eftir því þangað til við erum með lausn í höndunum sem fólk er ánægt með.“ Magnús bætir því við að auðvit- að þurfi að fylgja ákveðnum reglum við uppsetningu eldstæða og hann og félagar hjá fyrirtækinu sjái sam- stundis hvort uppástunga viðskipta- vinanna gangi heima hjá þeim eða ekki; fyrir menn með reynslu sé það auðsjáanlegt á svipstundu. Viðhald og varúð með eld Þegar draumaeldstæðið er svo komið upp þarf að ganga rétt um ar- ininn og að ýmsu er að huga í þeim efnum, bendir Magnús á. „Ég mæli til dæmis alltaf með því að fólk láti sérsmíða neista- grindina fyrir arininn, í stað þess að kaupa eitthvað tilbúið sem passar ekki nema að hluta til. Það er mjög mikilvægt,“ segir Magnús. „Netið á slíkum grindum er yfirleitt svo fín- gert að það hverfur alveg þegar búið er að kveikja upp og eldurinn logar. Þetta er aðalatriðið og að mínu mati er þetta mun mikilvægara en til dæmis að flísaleggja gólfsvæðið fyrir framan arininn eða álíka. Ef engin er neistagrindin þá geta neistar svifið hingað og þangað, og mun lengra en nemur einhverjum fermetra fyrir framan arininn. Best er að tala við járnsmið sem smíðar þá grind og festir svo net í með eldföstu lími.“ Magnús bendir ennfremur á að mjög gott ráð sé að vera með ösku- skúffu í arninum, ef mögulegt er. „Hún gerir það að verkum að fólk notar arininn miklu meira því ef það þarf að stússast í því að hreinsa upp öskuna eftir hvert einasta skipti sem kveikt er upp þá hættir fólk bara að nenna því að kveikja upp, og það er mikil synd. Við erum til að mynda með öskuskúffur sem taka um 20 uppkveikjur í einu, og það munar um að þurfa bara að hreinsa öskuna í tuttugasta hvert skipti.“ Misjafnlega hreinn bruni Eins og flestir vita er bæði hægt að kaupa náttúrulegan eldivið í til- höggnum trjábútum og svo fram- leidda innpakkaða eldiviðarkubba. Skyldi skipta máli hvort er, með tilliti til sóts, reyks og annars? Magnús er ekki í vafa um það. „Það er náttúrulega tjara í til- búnu kubbunum, reyndar mismun- andi mikið eftir framleiðendum. Það fást aftur á móti vaxkubbar erlendis sem hafa mjög hreinan bruna en þeir eru það dýrir að þeir eru ekki fluttir inn hingað til lands. En það sótar minna og safnast minna í skorstein- inn af náttúrulegu timbri og íslenska birkið er einfaldlega langauðveldast að kveikja upp í, ásamt því að það neistar sama og ekki neitt.“ Þó fólk noti eingöngu íslenska birkið til að kveikja upp í þá þarf engu að síður að hreinsa úr skorstein- inum einu sinni á ári, segir Magnús. „Yfirleitt er nú fólk hér á landi ekki að gera neitt, en erlendis, bæði víða í Evrópu og í Bandaríkjunum, kemur einfaldlega eftirlitsmaður að kanna stöðuna. Ef ástand skorsteins er ekki viðunandi er sett lok ofan á skorstein- inn, það er ekki flóknara. Ef sótið safnast fyrir í nægilegum mæli þá getur hreinlega kviknað í því.“ Magnús bætir því við að hægt sé að fá eldiviðarkubba sem innihaldi ákveðna sýru sem valdi því að þegar þeir séu brenndir þá losi þeir um sót í skorsteini sem berist svo upp og út með hitanum og reyknum frá arn- inum. Slíka hreinsikubba sé hæfilegt að brenna einu sinni á ári. „Þeir líta út eins og hefðbundnir eldivið- arkubbar og brenna nákvæmlega eins.“ Smíðað á einum mánuði Að endingu er Magnús inntur eftir því hvað smíðatími á arni sé alla jafna langur, fyrir þá sem áhuga hafa á slíku. Magnús segir það að ein- hverju leyti fara eftir verkefnastöð- unni hverju sinni en þó megi jafnan gera ráð fyrir um það bil einum mán- uði, frá því smíðin hefst og þar til ar- inninn er klár til uppkveikingar. „Sérsmíðaður arinn er þannig gerður að það þarf að hlaða vissan hluta og leyfa honum svo að þorna og taka sig áður en verkinu er haldið áfram. Þetta þarf að gerast í þrepum og er ekki unnt að gera það í einni lotu. Vinnutíminn er um hálfur mánuður og með biðtímanum milli verkþátta er þetta nokkurn veginn mánuður.“ Það er nú leggjandi á sig fyrir fallegan arin heim í stofu? „Jú, það finnst mér,“ segir Magnús að endingu. Íslenskt birki brennur best  Það er draumur margra að eiga kost á því að hafa snarkandi arineld heima við til að ylja sér við á síðkvöldum  Múrarameistarinn Magnús Böðvarsson, sem rekur fyrirtækið Ákast ehf. segir flesta geta látið drauminn rætast  Galdurinn sé að finna lausn sem henti aðstæðum. Morgunblaðið/Styrmir Kári Fyrirhyggja „Ég mæli til dæmis alltaf með því að fólk láti sérsmíða neistagrindina fyrir arininn, í stað þess að kaupa eitthvað tilbúið sem passar ekki nema að hluta til. Það er mjög mikilvægt,“ segir Magnús Böðvarsson. Notalegt Það tekur í heildina um einn mánuð að fá nýjan arinn í gagnið, frá því smíði hefst og þangað til kveikt er upp. Það telst vel þess virði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.