Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 64
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Maður getur sjálfur gert svo ótal-
margt fallegt fyrir heimilið, bara ef
maður hefur til þess hugmynd-
irnar, efniviðinn og áhöldin. Það er
þar sem Handverkshúsið kemur til
sögunnar,“ segir Sigurbjörg sem
vinnur markvisst að því að gera
heimilisdeildina í Handverkshúsinu
stærri og viðameiri. „Auk þess ráða
allir við að gera það sem við erum
að bjóða upp á, bæði af því að það
þarf ekki sérstaka kunnáttu til og
svo eru hlutirnir á verði sem allir
ættu að ráða við. Foreldrar eða
ömmur og afar geta dundað með
krökkunum að búa til eitthvað fal-
legt ásamt því að saumaklúbbar og
vinahópar hittast mikið yfir hand-
verki frá okkur. Hvað er skemmti-
legra en að búa til eitthvað fallegt
til heimilisins, eða þá til gjafa, og
hafa gaman saman við að búa það
til?“
Handverkshúsið hefur und-
anfarna mánuði verið að byggja
upp það sem Sigurbjörg kallar
„Home Decor“ deild þar sem ým-
islegt nytsamlegt má fá til að
galdra fram ýmis konar prýði sem
er til þess fallin að gera húsið að
heimili. „Við erum með vörur til að
búa til skrautmuni, áhöld og efni til
að gera upp húsgögn, brennipenna
til að útbúa hvers kyns merkingar í
við og úða á brúsum sem gefur
gleri sandblásna áferð, eins og
filma nema bara miklu auðveldara í
meðförum.“
Innanhússarkitekt og hús-
gagnasmiður á staðnum
Næsta verkefni er svo að búa til
klukkur til heimilisins, með alls
konar fallegri hönnun. Möguleik-
arnir eru endalausir, það þarf bara
að virkja sköpunargáfuna hjá fólki,
eins og Sigurbjörg útskýrir.
„Stundum leiði ég fólk aðeins
áfram en oft fer það hreinlega á
flug af sjálfu sér. Við erum líka
með stóra hugmyndamöppu, með
hlutum eftir mig og eins eftir við-
skiptavini okkar og hún dugar oft
til að fá fólk í gang, ef það vantar
innblástur.“ Sigurbjörg bætir því
við að það sé ótvíræður kostur að í
Handverkshúsinu geti fólk leitað til
hennar, sem er innanhússarkitekt
eins og fyrr sagði, og einnig sé á
staðnum húsgagnasmiður sem geti
leiðbeint fólki og sagt til um hvað-
eina sem lýtur að mublum og um-
sýslu á þeim. „Við erum með
margs konar námskeið sem hafa
notið mikilla vinsælda og þessi „do-
it-yourself“ heimur er virkilega
skemmtilegur að sökkva sér í, enda
fátt skemmtilegra en að gefa sköp-
uninni lausan tauminn og fegra
heimilið um leið.“
Karlarnir skoða meðan kon-
urnar kaupa í matinn
Aðspurð hvort konurnar séu
uppistaðan í hópi viðskiptavina seg-
Skapandi lausnir fyrir heimilið
Handverkshúsið í Kópavogi hefur um árabil séð einstaklingum með sköpunarþörf fyrir margvíslegum lausnum,
bæði í formi námskeið, verkfæra og hugmynda Heimilið og hugmyndir þar að lútandi verða sífellt vinsælli
Sköpunargleði „Stundum leiði ég fólk aðeins áfram en oft fer það hreinlega
á flug af sjálfu sér,“ segir Sigurbjörg um námskeiðin hjá Handverkshúsinu.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Handverk „Við erum með margs konar námskeið og þessi „do-it-yourself“ heimur er virkilega skemmtilegur að
sökkva sér í, enda fátt skemmtilegra en að gefa sköpuninni lausan tauminn og fegra heimilið um leið.“
ir hún svo ekki vera, enda sé mikið
úrval í Handverkshúsinu af alls
konar verkfærum og öðru sem
höfði sterkt til strákanna. „Það er
einmitt gaman að segja frá því að
það er býsna algengt að konur fari
að kaupa inn í versluninni Kosti,
sem er hér rétt hjá, og sendi eig-
inmennina á meðan í Handverks-
húsið á meðan svo þeim leiðist ekki
á meðan. Við erum stundum hálf-
gerð gæsla fyrir karlana,“ bætir
hún við og hlær. „En ég vinn að
því að fá konurnar inn í enn meiri
mæli því það er svo mikið af fín-
gerðu handverki að fá hér hjá okk-
ur í bland við veigameiri verkfæri.
Þá erum við líka með töluvert af
bókum sem fjalla um leiðir til að
gera eitthvað fallegt í höndunum.
Úrvalið verður sífellt meira og allir
ættu að finna eitthvað áhugavert
hjá okkur, enda búðin um 600 fer-
metrar.“
64
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
HEIMILI og hönnun
Námskeið
á næstunni
Það stendur ýmislegt til í
Handverkshúsinu og marg-
vísleg námskeið á döfinni. Hér
að neðan má sjá dæmi um
námskeið sem hefjast fljót-
lega.
Silfursmíði, 20.-22. október
Tálgun, grunnnámskeið, 2.-4.
nóvember
Tréskurður, 1-11 2.-4. nóv-
ember
Húsgagnasmíði, 27. okt.-4.
nóvember
Gler Tiffany’s, 24. október
Silfursmíði 6 vikna, 12.
okt.-16. nóvember
Silfurleir, 13. okt.
Víravirki, 6.-7. október
Tálgun, fuglar og fígúrur, 26.-
27. október
Hnífasmíði, 30.-31. okt.
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Ljóstæknifélagið er áhugasamtök
aðila sem vilja stuðla að betra
ljósumhverfi og betri vitund fólks
um mikilvægi góðrar lýsingar,“
segir formaður félagsins, Örn
Guðmundsson rafmagnsverkfræð-
ingur hjá VSB Verkfræðistofu.
„Þetta er orðið 60 ára gamalt fé-
lag, og gegnum tíðina hafa með-
limir mikið til verið fagmenn sem
tengjast lýsingu og sjónstarfi.
Þeir hafa verið kjarninn í þessum
félagsskap.“
Örn bætir því við að Ljóstækni-
félagið sé markvisst að reyna að
tengja sig inn á fjölbreyttari svið
eins og arkitektúr, innanhúss-
hönnun og landslagsarkitektúrinn
sömuleiðis, og þaðan ná auknum
tengslum við notendurna. „Þar
kemur þetta starf inn sem við höf-
um í auknum mæli verið að leggja
áherslu á, þessi almenna upplýs-
ing um mikilvægi lýsingar og
hvaða atriði það eru sem er mik-
ilvægt að hafa í huga þegar mað-
ur leggur drög að lýsingu, bæði
innan húss og utan.“
Örn segist hafa verið um skeið
talsmaður þess að fólk eigi að
vera vakandi fyrir möguleikunum
sem eru til staðar í sambandi við
lýsingu og í þeim efnum sé mikil-
vægt að einblína ekki alltaf um of
á raflýsinguna. „Það þarf að
horfa meira í dagsljósið og það er
nokkuð sem er mikið í umræðunni
um þessar mundir, semsé dags-
birtulýsing sem hluti af arkitektúr
og skipulagi. Þarna erum við líka
farin að tengja okkur inn á orku-
umræðuna, en þessi málaflokkur
hefur eflst mjög í tengslum við
viðleitni til að draga úr orkusó-
un,“ útskýrir Örn. „Að einhverju
leyti náum við kannski ekki að
tengja okkur við þessa umræðu,
með allar okkar vatnsaflsvirkj-
anir, en í Evrópu er lýsing stór
hluti af orkunotkuninni og mikið
af orkuframleiðslunni er með
orkugjöfum sem eru ekki góðir
fyrir umhverfið.“
Örn nefnir ennfremur að sífellt
komi betur og betur í ljós hversu
þýðingarmikil dagsbirtan sé fyrir
„rythmann“ okkar, eða líkams-
klukkuna, frá degi til dags og
hvað sveiflan í dagsbirtunni sé að
hafa mikil áhrif á okkur, tilfinn-
ingalega og líffræðilega. „Það er
því býsna fjölþætt, sviðið sem
Ljóstæknifélagið er að sinna, fylg-
ist með og reynir að miðla upplýs-
ingum um til almennings.“
Góð lýsing á heimilinu
Miðlun upplýsinga til almenn-
ings um ljósnýtingu hefur verið
snar þáttur í starfsemi Ljóstækni-
félagsins og liður í þeirri starf-
semi er útgáfa veglegs bæklings
sem nefnist „Góð lýsing á heim-
ilinu“ og kom nýlega út í tilefni af
60 ára afmæli félagsins. „Við höf-
um í gegnum tíðina unnið mikið
með sérhæfðum fagaðilum á sviði
lýsingar en erum í seinni tíð að
reyna í auknum mæli að tengja
okkur inn á almenninginn og
auka almenna vitund á mikilvægi
lýsingar. Það er einmitt tilgang-
urinn með útgáfu þessa rits,“ seg-
ir Örn en umrætt rit má nálgast
ókeypis á vefnum ljosfelag.is. Þar
má skoða það með rafrænum
hætti ellegar hlaða því niður í
heild sinni á pdf-formi og hvetur
Örn alla til að kíkja á síðu félags-
ins og nálgast þar ritið. Í því er
að finna samantektir á hagnýtum
upplýsingum og hollráðum fyrir
hverja vistarveru hússins fyrir
sig, sem öll miða að betri ljósnýt-
ingu og um leið orkunýtingu.
„Þarna má líka finna hagnýt
ráð um glampa og óþægindabirtu
(glýju), svo eitthvað sé nefnt, og
allt eru þetta ráð sem við höfum
öll í hendi okkar að fylgja. Þetta
er allt saman svo einfalt þegar
búið er að benda manni á þau,“
segir Örn að endingu og kímir
við.
Stuðlað að betra ljósumhverfi
Góð ljósnýting er mikilvæg og Ljóstækni-
félag Íslands lumar á hollráðum og fróðleik
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ljósgæði Örn segir mikilvægt að nýta dagsbirtuna sem best, líka á stöðum
sem þurfa að gegna margvíslegu hlutverki, eins og til dæmis borðstofuborð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Birta „Við erum í seinni tíð að reyna í auknum mæli að tengja okkur inn á
almenninginn og auka almenna vitund á mikilvægi lýsingar,“ segir Örn.
Nytjalist Möguleikarnir til sköp-
unar eru bókstaflega endalausir.