Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 74
74 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Sumarhús
Viðhaldslítil
ferðaþjónustuhús
og sumarhús til sölu
halliparket@gmail.com
sími 894 0048
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Til sölu
Springdýnur
Til sölu 2 stk. millistífar springdýnur,
danskar Comfort. 200x70 cm.
Eins og nýjar – lítið notaðar úr sumar-
bústað.
Verð 16.000 báðar.
Upplýsingar í síma 6909050.
Antík borð
Gamalt fallegt antíkborð. Mjög vel
með farið. Breidd 54 cm, hæð 58 cm.
Verð 30.000.
Sófaborð
Antilk sófaborð. Lítur mjög vel út.
Lengd 132 cm, breidd 57 cm.
Verð 35.000.
Hilla
Vegg furuhilla. Sér ekki á henni.
Verð 5.000.
Upplýsingar í síma 6909050.
Ennfremur til sölu
Kjarval, Kristján Davíðsson,
Blöndal, Scheving, Sigurbjörn
Ásgeir Smári o.fl
Ennfremur mikið
úrval gamalla og
nýrra málverka
Verð frá kr. 5000,-
Málverk
til sölu
Síðumúla 31 – Sími 533 3331
Opið virka daga kl. 08-17
Valtýr Pétursson
120 x 180
Jón Engilberts
70 x 80
Tolli
90 x 90
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
NÝTT – TÚNIKA-BUXUR
St. 12 - 22
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Tilbúin
karton og
rammar
20%
afsláttur
í október
I
N
N
R
Ö
M
M
U
N
Síðumúla 34
Sími 533 3331
Opið virka daga
kl. 10–17
Hjólbarðar
Nagladekk á felgum.
Til sölu góð nagladekk á felgum,
stærð 205-55x16.
Upplýsingar í síma 863 7656.
Húsviðhald
Ríf ryð af þökum,
ryðbletta, hreinsa
þakrennur og tek að
mér ýmis smærri
verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Smáauglýsingar 569
✝ Helga Haralds-dóttir fæddist á
Blönduósi 16. nóv-
ember 1941. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Borgarspítal-
ans 26. september
2015.
Móðir hennnar
var Kristín Indriða-
dóttir og faðir Har-
aldur Jónsson.
Systkini Helgu eru
Bragi Haraldsson, Sunnuhlíð,
Margrét Haraldsdóttir, Skaga-
strönd (látin) og Íseifur Haralds-
son, Grindavík. Börn Helgu er
Edda Rún, Björk Sigurðardóttir,
Gretar, Kristín og Bragi Guð-
laugsbörn.
Helga hóf búskap á Akureyri
með eiginmanni sínum, Sigurði
Kristjánssyni, þau skildu. Í kring-
um 1970 flyst hún
með Guðlaugi Guð-
mannssyni, f. 12. maí
1930, d. 8. feb. 1981,
að Dalsmynni á Kjal-
arnesi. Þar bjuggu
þau þangað til þau
fluttu að Hliðsnesi á
Álftanesi og síðan lá
leið þeirra í Borgar-
nes. Þar bjó Helga
næstu árin og stund-
aði ýmis störf hjá
Borgarbyggð, svo sem við heim-
ilishjálp hjá öldruðum og í Skalla-
grímsgarði, ófáir tímar fóru einn-
ig í að prjóna fyrir Handprjóna-
samband Íslands. 1995 fluttist
Helga til Hafnarfjarðar og bjó þar
til æviloka.
Útförin fer fram frá Garða-
kirkju, Garðabæ, í dag, 2. október
2015, kl. 15.
Kveðja til móður okkar
Langur dagur að kvöldi kominn er
kærar minningar ylja okkur hér.
Okkur kenndir að lífsins leyndarmál
að lífsgleðin er sótt í eigin sál.
Þá stóru brimskafla og boðaföll
sem buldu á, þú tókst á við þau öll.
Á æviskeiðinu lagðir mörgum lið
nú loks þú hvílist, öðlast ró og frið.
Senn vaknar þú á björtum betri stað
sem bíður þín, þú sagðir okkur það.
Þar læknast allt sem áður þjáði þig
þú er komin á nýtt tilverustig.
Við söknum þín en vitum það víst öll
að vegurinn í þína draumahöll
liggur beinn, þar brosir allt þér við
brátt þar finnur vini þér við hlið.
(Jón Ingi Arngrímsson.)
Takk fyrir allt, elsku mamma,
þín börn,
Edda Rún, Björk,
Gretar, Kristín og Bragi.
Elsku amma okkar.
Mikið er sárt að kveðja þó svo
við systkinin höfum oft rætt um
hversu gott það yrði fyrir þig að
fá að hvíla þig á veika líkamanum
þínum. Þú varst ótrúlega dugleg,
sterk og skemmtileg kona. Hafðir
svo einstakan og svartan húmor
sem gat fengið okkur til þess að
veltast um úr hlátri með þér. Þú
tókst alltaf á móti okkur opnum
örmum í Borgó þó svo lífið væri
ekki alltaf auðvelt hjá þér. Öll
göngum við í dag stolt um Skalla-
grímsgarð og segjum það hverj-
um sem vilja heyra að hér hafi
hún amma okkar lagt mikið til og
átt þátt í að gera garðinn falleg-
an. Og í hverri ferð um Borgar-
nesið er tekinn rúntur framhjá
Þorsteinsgötu 19, litla, fallega,
gula húsinu þínu. Okkur fannst
samt gott að fá þig í bæinn til
okkar og það sem var oft gaman
hjá okkur á „ömmu mánudögun-
um“, mikið hlegið og borðað hálft
kíló af súkkulaðirúsínum á með-
an, því þær voru þitt uppáhald.
Við sóttum öll í að vera heima
þessa daga. Minningarnar um
tímann sem við áttum með þér
eru okkur dýrmætar og verða vel
geymdar í hjörtum okkar.
Þú átt stóran stað í hjarta okk-
ar allra, þín barnabörn,
Helga, Þrúða, Ína,
Olga og Yngvi.
Elsku amma, stóra tuðra. Það
er skrítin og erfið tilfinning að
setjast niður og ætla að reyna
koma einhverju í orð en líka gott
að rifja upp allar góðu og
skemmtilegu minningarnar sem
við áttum því ég varð þeirra for-
réttinda aðnjótandi að vera elst af
systkinum mínum og fá því að
njóta samveru þinnar lengst áður
en þú varðst veik. Og það að fá að
bera nafnið þitt fyllir mig enda-
lausu stolti. Það sem við brölluð-
um saman nöfnurnar. Höfuðið
fyllist af skemmtilegum myndum
og ég brosi í gegnum tárin. Ég
átti nú alltaf frekar auðvelt með
að suða um að fá að vera eftir hjá
þér á Þorsteinsgötunni eða fá að
taka rútuna. Sæmundur lofaði að
passa Helgu litlu á leiðinni og svo
beið amma við hótelið að taka á
móti mér. Ég gat endalaust
skottast í kringum þig á meðan
þú vannst í Skalló þar sem þú
varst snillingur í að gera fallegt.
Þú varðst reyndar ekkert rosa
ánægð með mig þegar ég „gróð-
ursetti“ lúpínu í garðinum þínum
sem dreifðist svo um allt. Við gát-
um nú aldeilis sankað að okkur
steinum, eins og þegar við fórum
á Kjalarnesið og tíndum helling
af baggalút í safnið okkar. Svo
kemur alltaf Græni tuddi upp í
hugann, Escortinn, sem þú brun-
aðir um göturnar á eins og amma
dreki. Ég sýni alltaf krökkunum
mínum „leyni hanann“ okkar sem
við fundum í hverri ferð suður,
hann er orðinn frekar lúinn en
engu að síður leita ég því hann er
„okkar“, elsku amma. Það var
alltaf sport þegar þú sagðir
„jæja, nú er mæling“, það þýddi
nýtt strik í kústaskápinn.
Frændsystkinunum fannst nú
ekki alltaf gaman þegar ég kom,
þeim fannst matseðillinn breyt-
ast eftir mínu höfði og allt í einu
til Kókópuffs í skápnum sem ann-
ars var aldrei keypt. Já, þeim
fannst þú ofdekra mig sem þú
náttúrlega gerðir, ég sá það bara
ekki þá svo þeim fannst ég bara
lítil frek frænka. Ferðalagið okk-
ar að Snorralaug og Barnafoss-
um kemur alltaf upp í hugann. Þú
gafst mér myndavél og flasskubb
til þess að festa minningarnar á
filmu, það þótti mér merkilegt og
þessar myndir eru oft skoðaðar
enn. En eftir að þú fluttir í Hafn-
arfjörðinn urðu mánudagarnir
fljótlega heilagir því þá komstu út
á nes. Þá var sko hlegið því fáir
höfðu eins skemmtilegan og
svartan húmor og þú og húmor-
inn yfirgaf þig aldrei heldur
fylgdi þér allt fram á síðustu
stundu. Ég er svo glöð yfir því að
börnin mín hafi fengið að kynnast
þér og ég les fyrir þau Ástarsögu
í fjöllunum eins og þú last hana
fyrir mig. Allt í einu er þessi bók
orðin fjársjóður því hún minnir
svo á þig. Þegar ég hugsa til baka
fyllist ég aðdáun því þú varst svo
dugleg, stolt og sterk kona. Lífið
fór ekkert sérstaklega blíðum
höndum um þig, elsku amma, en
alltaf stóðstu teinrétt og horfðir
fram á við og fórst í gegnum lífið.
Við áttum svo mörg skemmtileg
samtöl í gegnum tíðina og það var
svo gott að finna alltaf hversu
stolt þú varst af mér. Ég veit þú
munt vaka yfir okkur og ég mun
hugsa til þín svo lengi sem ég lifi
og segja börnunum mínum frá
þér og hlakka svo til að knúsa þig
aftur þegar að því kemur. Elska
þig til tunglsins og aftur heim
elsku amman mín, þín litla tuðra,
Helga.
Helga Magndís
Haraldsdóttir