Morgunblaðið - 02.10.2015, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 02.10.2015, Qupperneq 76
76 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 Sunna Björk Þórarinsdóttir, bókavörður á BorgarbókasafniReykjavíkur, á afmæli í dag. „Ég hjálpa fólki að finna bækur ogkem með hugmyndir að bókum sem fólk vill mögulega lesa í kjölfar annarrar. Síðan reynir maður að stilla út ýmsu girnilegu fyrir gesti safnsins því bækurnar geta fengið endurnýjun lífdaga á að sleppa af og til úr hill- unum. Fólk er ekkert mikið fyrir að skoða hvað er í þeim. Við erum mikið í því að reyna að gera þær sýnilegri. Erum til dæmis með sérstakt út- stillingarteymi sem fylg- ist nokkuð vel með því hvað er að gerast í kring- um okkur og býr til mis- stórar bókasýningar, ef ég má orða það þannig, kringum eitt og annað sem er að gerast í sam- félaginu. Einnig hef ég tekið að mér bókmennta- göngur fyrir safnið og leshring þannig að þetta er mjög fjölbreytt starf.“ Sunna hefur einnig lært heimspeki og er að vinna að þáttum um heimspekinginn Spinoza. „Ég er búin að senda út tvo þætti á Alvarpinu en á eftir að senda út fleiri. Þetta er með því skemmtilegra sem ég hef gert en ég hef mikinn áhuga á útvarpi og þáttagerð. Þegar ég er ekki í vinnunni þá fer ég að sýsla með drengjunum mín- um þeim Degi Mána, 10 ára og Hauki Óðni 2 ára. Ég fer með þá í sund, húsdýragarðinn, heimsóknir, spilum tölvuleiki, og letikastast með þeim eitt og annað. Svo er mikilvægt að koma þeim niður svo ég fái mína einkalestrarstund. Ég er með tíu bækur á náttborðinu og það fer eftir því hvernig ég er stemmd hvort verður fyrir valinu heim- spekibók, myndasaga, fantasíur eða þrútið skáldverk. Nú er ég að lesa Foucault’s Pendulum eftir Umberto Eco og er alveg heilluð. Svo fékk ég nýlega Bach dellu og tók með mér fullt af nótum og tónlist eftir hann úr vinnunni og ætli ég ekki liggi yfir því á afmælisdaginn. Eitt af áhugamálum mínum er að reyna að nota bæði heilahvelin í einu – lesa nótur og spila eftir þeim.“ Liggur yfir Bach á afmælisdaginn Sunna Björk Þórarinsdóttir er 43 ára í dag Í vinnunni „Það er svakalega mikil hugs- un á bak við svo margt sem bókasöfnin hafa og mikil hugmyndavinna í gangi.“ B jörn fæddist á Akureyri 2.10. 1955 en flutti ung- ur til Reykjavíkur, fyrst í Laugarnesið og síðar vestast í Vestur- bæinn. Hann var í Laugarnesskóla, Melaskóla, Hagaskóla og Iðnskól- anum, fór síðan til Bandaríkjanna og lærði flugvirkjun í Tulsa í Okla- homa, lauk sveinsprófi 1981 og fékk meistararéttindi í flugvirkjun 1985. Hann lauk síðar rekstrar- og við- skiptanámi frá Endurmenntun Há- skóla Íslands 1998 og hefur auk þess aflað sér 30 rúmlesta réttinda frá Stýrimannaskólanum og lokið mat- sveinanámi frá Hótel- og matvæla- skólanum. Björn hóf störf í flugafgreiðslu hjá Flugleiðum 1975 og varð síðan flug- virki þar. Hann vann við innanlands- og millilandaflug, hér heima og einn- ig í Líbíu, Nígeríu og Lúxemborg. Gosið í Eyjum og snjóflóðin Björn varð framkvæmdastjóri Landssambands hjálparsveita skáta árið 1985 og framkvæmdastjóri Landsbjargar eftir sameiningu hjálparsveita skáta og flugbjörg- unarsveitanna 1991. Endapunkt- inum í sameiningarmálum björg- unarsveitanna var svo náð 1999 þegar Slysavarnafélagið Landsbjörg var stofnað með samrunna Lands- bjargar og Slysavarnafélags Ís- lands: „Þetta voru gríðarlega miklir grósku- og uppgangstímar í sögu björgunarsveitanna sem gaman var að taka þátt í.“ Björn er nú umsjón- armaður fasteigna hjá Sunnuhlíð- arsamtökunum í Kópavogi. Björn gekk ungur í skátahreyf- inguna og hefur verið tengdur henni allar götur síðan. Hann og fjórir aðr- ir skátabræður hafa svo haldið hóp- inn í bráðum hálfa öld, en þegar þeir höfðu aldur til gengu þeir í hjálp- arsveit skáta í Reykjavík. Að- spurður segir Björn að björgunar- aðgerðirnar vegna eldgossins í Vestmannaeyjum séu eftirminnileg- astar frá því hann var á vettvangi en snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri eftir að hann varð framkvæmda- stjóri. Björn Hermannsson, umsjónarmaður fasteigna – 60 ára Fjölskyldan Björn og Berglind ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum, við útskrift Helga Kristins í sumar. Hjálparsveitarkempa Í Washington DC Björn og hjálparsveitarfélagarnir leita að Hvíta húsinu. Guðjón Þorkels- son, fyrrv. sölu- stjóri, er sjötugur í dag. Eiginkona hans er Ingibjörg Jónsdóttir Sívert- sen. Þau verða að heiman á afmælis- daginn. Árnað heilla 70 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. LEIÐRÉTT Rangt farið með nafn Í afmælisviðtali við Hildi Krist- mundsdóttur fimmtuga, 23.9. sl., var rangt farið með nafn stjúp- ömmubarns sem heitir Viktoría Margrét Ragnarsdóttir en ekki Viktoría Rut. Beðist er velvirðingar á þessu. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.