Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 80
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
í rökkurmjúkum mosa
situr krummi
og speglar sig í augum þínum
Þannig hefst fyrsta ljóðabók
Bubba Mortens, Öskraðu gat á
myrkið, en hún kom út á dögunum.
Segja má að Bubbi hafi á sínum tíma
öskrað sig inn í íslenskt sviðsljós,
þegar hann kvaddi sér hljóðs sem
kraftmikill og iðulega ögrandi trúba-
dor og rokkari, fyrir hálfum fjórða
áratug. Hann hefur verið áberandi
listamaður allan þennan tíma, af-
kastamikill og fjölhæfur, höfundur
hundraða laga og texta sem margir
hafa greypst í kjarna þjóðarsál-
arinnar. Hann hefur líka komið að
þáttagerð í ljósvakamiðlum og á liðn-
um árum tekið að senda frá sér bæk-
ur; hefur hann þar einkum fjallað um
eina af sínum miklu ástríðum, stang-
veiðina. En nú stígur hann fram sem
ljóðskáld. Öskraðu gat á myrkrið er
bálkur 33 óbundinna ljóða, kröftugur
og myndrænn, og umfjöllunarefnið
er á köflum æði myrkt: martraðar-
kenndur heimur vímu og ótta.
Þarna er hrafninn í upphafi bálks-
ins og horfist í augu við ljóðmæland-
ann sem hefur erft myrkrið sem
streymir um æðar hans og slóðin
sem hann fetar „endar inní mjúkri
vímu / sem heldur um laskaða sál
þína / og sundurtætt taugakerfið“.
Gott fólk með beitta hnífa
„Ætli ég sé ekki að færa mig út í
ljósið með því að skrifa þessa bók,“
segir Bubbi. „Einhverjir kunna að
spyrja hvort þetta verki eigi erindi,
og hvaða geðveiki það sé í mér að
skrifa heila ljóðabók, og hvað þá
byggja á jafn erfiðu tímabili og er
þarna undir. En ég held að þannig
séð hafi ég engu um það ráðið.“
Við höfum mælt okkur mót á
ágætu kaffihúsi í Mosfellsbæ, það er
líklega ekki dæmigerður stefnu-
mótastaður ljóðskálda en kaffið er
gott, staðurinn er hentugur fyrir
okkur báða, mitt á milli borgarinnar
og heimilis Bubba í Kjósinni – og svo
hefur hann heldur ekki ímynd hins
dæmigerða ljóðskálds, þótt hann
stígi engu að síður af fullri alvöru og
miklum metnaði inn í heim ljóðsins.
Í upphafi ætlaði hann samt ekki að
skrifa ljóð heldur sjálfsævisögu.„En
ég fann ekki leiðina inn í hana,“ segir
hann. „Fann ekki röddina. Þá byrjaði
ég að skrifa einhverjar ljóðlínur og
hugsaði mér að gera seríu ljóða um
hrafninn. Hann er uppáhaldsfuglinn
minn. Ég veit ekkert íslenskara en
krumma. En þá opnaðist einhver
gátt og ég uppgötvaði að ég ætti
enga undankomuleið – ég varð að
halda áfram að skrifa.“
– Fannstu þá í ljóðunum farveg
fyrir þessa frásögn sem þú ætlaðir
að takast á við í sjálfsævisögunni?
„Já, ég opnaði einhverjar dyr, það-
an opnuðust aðrar og enn einar. Og
ég fór að skilja að ég var í rauninni
að takast á við áföll sem hafa haft
þær afleiðingar að ég endaði inni á
Vogi.
Í dag er í fíknifræðunum sagt að
áföll í æsku, sem ekki hefur verið
unnið úr, leiði til hörmunga. Ein-
hvernvegin komu þessar línur og
þessar myndir til mín.“
Bubbi hugsar sig um og segir svo:
„Það er erfitt að tala um svona
hluti … ég skrifaði grunninn að þess-
ari bók, svo lá hún í óratíma, þá byrj-
aði ég að skrifa hana aftur og lét
hana svo liggja um stund. Loks fór
ég að senda hana til fólks sem ég
treysti og sem ég vissi að hefði
smekk, getu og hugrekki til að segja
mér hvað því fannst. Það verður eng-
in list til nema maður hafi gott fólk
með beitta hnífa í kringum sig.
Þegar maður er kominn út á þenn-
an akur þá er ekki nóg að vera einn
þar úti með plóginn.“
Erfiðar minningar
Blaðamaður hefur unnið með
Bubba að öðrum bókum og viður-
kennir að það hafi þá komið sér á
óvart hvað Bubbi, sem hefur áratuga
reynslu sem áberandi tónlistar-
maður, og hefði mátt búast við því að
egóið væri fyrir vikið eitthvað bólgið
og erfitt, á í raun gott með að treysta
öðrum til að fjalla um verk sín, lesa
til að mynda skrif sín og gagnrýna
þau, og þiggur fúslega faglegar
ábendingar og tillögur.
„Ef þú leitar ekki ráða eða álits
skilar það þér venjulega verstu hugs-
anlegri niðurstöðu,“ segir Bubbi og
hlær. En var mikill munur á sköp-
unarferli ljóðanna og til að mynda
því að starfa með hópi tónlistar-
manna að plötu og kasta þá til þeirra
hugmyndum að meta og vinna með?
„Þetta snýst allt um traust,“ segir
hann. „Og gæfa mín í músíkinni hef-
ur alltaf verið sú að ég hef treyst
mönnum algjörlega. Ég hef sett lög-
in mín í hendur þeirra og sagt: komið
með ykkar hugmyndir, segið mér
hvað þið viljið, þannig getum við
fengið frábæra niðurstöðu. Ég hafði
rosalega flotta yfirlesara með mér
sem lásu þennan bálk. Og þeir sem
lásu komu allir með sínar hug-
myndir, sína punkta, og ég held að
ég hafi tekið það sem mér fannst
bitastæðast og notað, svo var annað
sem ég ákvað að breyta ekki, en nið-
urstaðan varð sú að þegar upp er
staðið þá hefði þessi bók ekki orðið
það sem hún er nema vegna þess
hvað ég hafði flott fólk í kringum
mig.“
– Þú hefur samið hundruð laga og
texta. Hvernig er nálgunin við að
semja ljóðabálk sem þennan öðruvísi
en textagerðin?
„Hún er mjög frábrugðin. Texta-
gerðin er mjög spontant og oftar en
ekki þarf að laga orðin að heimi tón-
listarinnar og þau verða einhvers-
konar litur eða partur af þeirri heild-
armynd. En í ljóðunum er maður að
yrkja sig inn í allt annarskonar
ryþma, allt annarskonar veröld. Ég
get samið dægurlagatexta á klukku-
tíma en þegar ég var að semja þessi
ljóð var ég stundum að frá kannski
sex að morgni til klukkan tíu og þess-
ir fjórir tímar skiluðu mér jafn mörg-
um línum, fjórum. Og stundum var
ég vikum saman með átta, níu línur.
Tókst aftur og aftur á við þær,
reyndi nýjan flöt, nýja mynd. Það er
allt öðruvísi nálgun – en þetta er
sami akur. Úti á þessum akri er mað-
ur að hitta allrahanda fólk: málara,
rithöfunda, djasstónlistarmenn,
heví-metal gengið. Allir listamenn-
irnir eru úti á þessum akri.
En þetta var lotuvinna. Fyrst og
fremst þurftu ljóðin mikla yfirlegu,
ég þurfti mikla kyrrð og næði, til að
skrifa þau. Á stundum saup ég hvelj-
ur, fannst ég vera staddur úti á brún-
inni … Auðvitað færi ég umfjöllunar-
efni ljóðanna til í tíma og rúmi, ég
klæði löngu liðna atburði í einhvers-
konar búning – og hvað eru minn-
ingar? Röddin sem talar í bókinni er
stödd í martröð, sem er samt raun-
veruleikinn, og hún er síðan að rifja
upp, er í óráði, í fráhvörfum, og til
mannsins koma allrahanda erfiðar
minningar og myndbrot. Þessi bálk-
ur gerist í rauninni á fimm dögum.“
Þráhyggjan er víman
Bubbi segist fljótlega hafa séð,
þegar ljóðin tóku að spretta fram, að
þau kölluðust á við aðrar bækur,
önnur ljóð. Hann segir lesendur sem
þekkja til geta fundið ýmsa „spegla“
í textanum, einhverja frá Steini
Steinari, aðra frá bandaríska skáld-
jöfrinum Herman Melville. Og eitt
meginefni bálksins sé í raun þrá-
hyggja.
„Á köflum tengist verkið annarri
bók, mögulega rosalegustu þrá-
hyggjubók sem hefur verið skrifuð,
Moby Dick eftir Melville. Þar sem
Akab skipstjóri gefur dauðann og
djöfulinn í mannskapinn um borð.
Hann er haldinn þessari sturluðu
þráhyggju, að þurfa að ná hvíta
hvalnum, og steypir við það öllum í
glötun með sér. Moby Dick er stór-
kostleg saga, kannski sú mesta sem
hefur verið skrifuð um þráhyggju.
Ljóðin mín kallast á við hluti í henni;
í þeim er líka mikil þráhyggja en það
er víman.“
– Það er víman og svo flótti frá
veruleikanum. Og persónulegar
hörmungar og mikið myrkur.
„Þú verður fyrir áfalli sem rekur
þig af stað. Óttinn og kvíðinn sem
barn þarf að takast á við verður þess
valdandi að eina leiðin sem virðist
fær, eina lausnin við kvíðanum, ótt-
anum og áföllum, er flótti. Flótti inn í
annan heim, heim sem er samt alveg
jafn raunverulegur og hinn heim-
urinn; á einfaldan hátt má segja að
þeir séu samt hvítt og svart. Þú velur
að fara inn í veröld sem er svört með-
an aðrir dvelja í veröld sem er hvít.
Svo lendirðu á milli tveggja heima og
þá byrjar helvítisgangan. Um það er
ég að fjalla í þessum bálki. Maðurinn
sem talar er staddur milli tveggja
heima og reynir að brjóta sér leið úr
heimi tortímingar, dauða og þrá-
hyggju, inn í ljósið.“ Bubbi þagnar.
Segir svo: „Annars er mjög erfitt að
útskýra þennan bálk. Líklega er það
ógerlegt.“
Lykill að kenndum
– Getur ein ástæða þess að þú
fannst þig betur með þessa frásögn í
ljóðum en sjálfsævisögu verið að ljóð
er óræðara? Og kannsi meira á til-
finningasviðinu en sú hlutlæga frá-
sögn sem ævisagan kallar frekar á?
„Ljóðið er snarpara, að einhverju
leyti, og býður upp á þagnir. Býður
up á vinkla sem ævisaga eða skáld-
saga býr ekki yfir. Og býður jafnvel
frekar upp á ósagðan veruleika, mað-
ur leiðir lesandann inn í rými og seg-
ir: Gjörðu svo vel, hér eru fjórar lín-
ur og þú getur síðan bætt við eins og
liggur á þér. Ljóð er oft bara lykill að
kenndum, myndum og tilfinningum
sem lesandinn nýtir sér. Skáldsagan
skilur minna eftir ósagt. Skáldsagan
málar miklu stærri flöt. Svo held ég
að henti mér betur að fara leið ljóðs-
ins. Þetta er að einhverju leyti ná-
lægt textaforminu, sem ég þekki
auðvitað vel, en engu að síður tölu-
vert öðruvísi.
Ljóðið býður upp á myndir. Öðru-
vísi myndir en skáldsagan.“
Les gríðarlega mikið
– Bubbi, þú lest mikið og hefur
alltaf gert. Og mikið ljóð. Í hvað sæk-
irðu einkum þegar þú lest? Ertu að
leita að einhveru óvæntu?
„Það má segja að ég sé marg-
þættur hvað þetta varðar. Ég er með
nördaáhuga á veiðibókum og hef les-
ið gríðarmikið um veiði; sérstaklega
póetískar veiðisögur. Ég les gríð-
arlega mikið af ævisögum sem fjalla
um liðna tíð. Krimma hef ég ekki les-
ið í tuttugu ár, það er svipað og að ég
borða ekki lengur hamborgara nema
endrum og eins. Nú er ég að lesa
nýja ljóðabók Lindu Vilhjálms-
dóttur, Frelsi, það er ein magnaðasta
ljóðabók sem ég hef lesið undanfarin
ár. Ég er svo glaður því Linda hefur
lengi verið í uppáhaldi. Ég var að
klára Mamúsku eftir Halldór Guð-
mundsson og hún kemur mér næst-
um því jafn mikið á óvart.“ Bubbi
heldur áfram að telja upp bækur sem
Fyrir mér er stöðnun dauði
„Ég þurfti að finna mér aðrar leiðir en hinir sem eru ekki skrifblindir,“ segir Bubbi Morthens í
samtali um sína fyrstu ljóðabók, 33 ljóða bálk sem hann kallar Öskraðu gat á myrkrið
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjölhæfur „Textagerðin er mjög spontant og oftar en ekki þarf að laga orðin að heimi tónlistarinnar … En í ljóð-
unum er maður að yrkja sig inn í allt annarskonar ryþma, allt annarskonar veröld,“ segir Bubbi um skrifin.