Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Glæsilegir sólskálar sem lengja sumarið
og gera sælureitinn ómótstæðilegan
Yfir 40 litir í boði!
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Sólskálar
- sælureitur innan seilingar
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir
leikritið Lokaæfingu eftir Svövu
Jakobsdóttur (1930-2004) í Tjarnar-
bíói á sunnudag-
inn kemur, 4.
október, en þá
verða 85 ár frá
fæðingu höfund-
arins. Uppsetn-
ingin er hluti af
lestrarhátíð Bók-
menntaborgar nú
í október, en í ár
er hún tileinkuð
Svövu og hennar
verkum. Af því
tilefni hefur sagnasafn hennar, Sög-
ur handa öllum, verið endurútgefið.
Leikarar í Lokaæfingu eru Þor-
steinn Bachmann, Elma Lísa Gunn-
arsdóttir og Kristín Pétursdóttir.
Tinna Hrafnsdóttir er leikstjóri en
hún stofnaði Háaloftið ásamt Sveini
Geirssyni fyrir nokkrum árum.
Fyrri sýningar á vegum Háaloftsins
eru Hrekkjusvín árið 2011 í Gamla
bíó, Útundan árið 2014 í Tjarnarbíó
og Ekki hætta að anda árið 2015 í
Borgarleikhúsinu.
Leikritið fjallar um hjón á fer-
tugsaldri sem loka sig vikum saman
af niðri í heimatilbúnu neðanjarð-
arbyrgi. Fullkomin einangrunin af-
hjúpar tilveru þeirra og smám sam-
an mást út mörk raunveru og
ímyndunar.
„Það eru margar ástæður fyrir því
að við völdum að taka Lokaæfingu
til sýninga,“ segir Tinna. „Þetta er
einstaklega vel skrifað verk og á
fullt erindi við okkur í dag, miðað við
þá nálgun sem við höfum valið.
Svava skrifaði verkið um 1980 og
við lögum það nokkuð að nútíman-
um. Margt styður við þá ákvörðun
okkar að taka verkið til sýninga nú,
þetta þekktasta leikverk hennar,
meðal annars það að nú er ald-
arafmæli kosningarréttar kvenna og
Svava var ötul baráttukona fyrir
jafnrétti kynjanna og ein af okkar
fyrstu þingkonum.“
Heimur sem ferst
Tinna segir ákveðna grunnþætti
verksins ekki breytast. „Það eru
samskipti kynjanna, ábyrgðin sem
felst í því að vera hluti af samfélagi
og hvernig fólk tekst á við hana.
Heimurinn sem við búum í er alltaf
einhvernvegin við það að farast, eitt-
hvað í alheiminum ógnar sífellt ör-
yggi okkar og það er sífellt hlut-
skipti mannsins að leita öryggis í
fallvöltum heimi.“
Hún segir hjónin í leikritinu
ákveða að baktryggja sig og búa til
byrgi undir kjallaranum sem þau
geta flúið í þegar, ekki ef, heimurinn
ferst.
„En það kaldhæðnislega við það í
leikriti Svövu er það að heimurinn
uppi á yfirborðinu er ekki að farast
heldur heimur hjónanna þarna
niðri,“ segir Tinna.
„Það getur verið erfitt að vera lok-
aður inni í litlu rými með annarri
manneskju. Það reynir á þau sem
manneskjur og afhjúpunin er óhjá-
kvæmileg í þessari miklu nálægð.“
Hún segir áhersluna vera á það
hvað aðstæðurnar geri fólki frekar
en að það sé vont í sjálfu sér. „Við
erum að segja sögu af fólki og mann-
legu eðli.“
Djúpur skilningur á eðli manna
Tinnu finnst Lokaæfing vera eitt
raunsæislegasta verk Svövu sem var
þekkt fyrir nokkuð absúrd nálgun.
„Þetta verk er raunveruleikinn
eins og hann mætir manni. Sem
skáld finnst mér hún hafa haft gríð-
ardjúpan skilning á mannlegu eðli
og hvað það er sem breytist ekki í
heiminum. Við munum aldrei verða
fullkomnlega örugg og óöryggið,
ástin og afhjúpunin verða alltaf til
staðar. Þess vegna á þetta efni alltaf
erindi – með þeirri nálgun sem við
beitum er Lokaæfing tímalaust
verk.“
Aldrei alveg örugg
Raunveruleikinn Þorsteinn Bachmann og Elma Lísa Gunnarsdóttir í hlut-
verkum sínum. „Þetta er einstaklega vel skrifað verk,“ segir Tinna.
Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir Lokaæfingu eftir
Svövu Jakobsdóttur í Tjarnarbíói á sunnudagskvöldið
Tinna
Hrafnsdóttir
Myndlistarmaðurinn Arnór Bieltvedt opnar myndlistasýn-
ingu í Gallerý Bakarí, Skólavörðustíg 40, í dag föstudag milli
kl. 18 og 21.
„Arnór hefur búið erlendis um þriggja áratuga skeið.
Hann nam málaralist vid Rhode Island School of Design og
hlaut meistaragráðu i málaralist frá Washington University í
St. Louis. List Arnórs hefur verið til sýnis víða í Bandaríkj-
unum og Evrópu. Hann hefur umboðsmenn fyrir list sína í
Hollandi, Danmörku, Íslandi og Bandaríkjunum. Arnór mál-
ar í afstrakt expressjónískum stíl,“ segir meðal annars í til-
kynningu.
Þar kemur einnig fram að undanfarin tvö ár hefur Arnór
eingöngu einbeitt sér að þróun síns eigin afstraktstíls eftir
að hafa málað landslags-, manna- og kyrralífsmyndir í rúma
tvo áratugi. „Honum var boðið að taka þátt í ArtWalk
listahátíðinni í Pasadena í næsta mánuði. Málverk hans
tengjast bæði náttúru Íslands og Suður-Kaliforníu, þar sem
hann starfar við listmálun og listkennslu í dag.“ Afstrakt Arnór Bieltvedt hefur þróað eigin afstraktstíl.
Arnór Bieltvedt sýnir í Gallerý Bakarí
Tónlistar-
og hljóð-
listamað-
urinn Sam
Slater kem-
ur fram í
Mengi í
kvöld kl. 21.
„Slater, sem
er breskur,
er að öllu
jöfnu búsett-
ur í Berlín
en hefur
haft aðsetur
í Reykjavík um nokkurt skeið þar
sem hann hefur starfað innan vé-
banda Bedroom Community, út-
gáfufyrirtækis Valgeirs Sigurðs-
sonar og félaga. Í sex mánuði árið
2014 ferðaðist Slater um borgir og
lönd sem eiga það sammerkt að
eiga að baki stríð og borgarastyrj-
aldir, þetta eru Berlín, Búrma og
lönd á Balkanskaganum sem til-
heyrðu Júgóslavíu fyrrverandi. Sla-
ter safnaði hljóðum á hverjum stað
fyrir sig sem ratað hafa inn á plötu
hans Languish Barriers sem út
kemur hjá útgáfufyrirtækinu All
Female Parliament, 10. október nk.
Í október leggur Slater í tónleika-
ferðalag um Evrópu þar sem hann
fylgir plötunni eftir, upphafs-
punktur þess ferðalags verður því
hér í Mengi,“ segir í tilkynningu.
Sam Slater með
tónleika í Mengi
Beðið Kynningarmynd
með tónleikunum.
Guðmundur
Rúnar Lúðvíks-
son, Geir Ólafs-
son og Kristján
Jóhannsson
koma fram á
tónleikum á
Háaloftinu í
Vestmanna-
eyjum í kvöld.
„Allir eiga
þeir langan en
ólíkan tónlistarferil að baki og
verður gaman að sjá og heyra þá
leiða saman hesta sína hér í Eyjum
um helgina,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu frá tónleikahaldara. Þar er á
það minnt að Kristján hafi gert
garðinn frægan á Scala og Met-
ropolitan, Geir hafi „vaxið sem
söngvari með hverju árinu og eng-
inn túlkar betur stórsveitartónlist-
ina“, auk þess sem Guðmundur
Rúnar hafi komið víða við á ferli
sínum sem myndlistar- og tónlist-
armaður. Að sögn skipuleggjenda
verður tónleikunum skipt upp í
þrjá hluta þar sem hver listamað-
ur syngur með sínu nefi auk þess
sem þeir syngja líka saman. Í
hljómsveitinni eru Bjarni Svein-
björnsson á bassa, Vilhjálmur Guð-
jónsson á gítar, Birgir Nielsen á
trommur, Ástvaldur Traustason á
píanó auk þess sem Geir sér um
áslátt ásamt því að syngja.
Þríeyki kemur
fram á Háaloftinu
Kristján
Jóhannsson
Fiðluleikarinn Dan Cassidy leiðir
hljómsveit í gegnum helstu perl-
urnar á efnisskrá franska fiðlarans
kunna, Stéphane Grappelli, á tón-
leikum í Gerðubergi í dag milli kl.
12.15 og 13.00. Tónleikarnir eru
hluti af tónleikaröð sem nefnist
Jazz í hádeginu.
Gunnar Hilmarsson leikur á gítar
og Leifur Gunnarsson á kontra-
bassa. Tónleikarnir verða endur-
teknir laugardaginn 3. október
milli kl. kl. 13.15 og 14.00 í menn-
ingarhúsi Spönginni.
Tónleikaröðin Jazz í hádeginu
hóf göngu sína í Gerðubergi haust-
ið 2014 og hefur, að sögn aðstand-
enda, átt miklum vinsældum að
fagna.
Cassidy leikur
perlur Grappelli
Fiðluleikari Dan Cassidy kemur fram á
tónleikum í Gerðubergi í dag.