Morgunblaðið - 02.10.2015, Qupperneq 89
89
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Tvær kvikmyndir verða frum-
sýndar í dag í bíóhúsum landsins og
eru þær ekki á dagskrá RIFF.
Black Mass
Sönn saga mafíósans James „Whit-
ey“ Bulger, sem gerðist uppljóstr-
ari bandarísku alríkislögreglunnar
til að losna við keppinauta sína í
mafíunni, er rakin í myndinni. Bul-
ger er talinn hafa myrt a.m.k. 19
menn, slapp við handtöku árið 1994
og tókst að fara huldu höfði í rúm
16 ár. Alríkislögreglan setti tvær
milljónir dollara til höfuðs honum
og var hann handtekinn árið 2011
eftir að ábending barst lögreglunni
frá íslenskri konu, Önnu Björns-
dóttur, sem var nágranni hans. Bul-
ger hlaut í kjölfarið tvöfaldan lífs-
tíðardóm.
Leikstjóri myndarinnar er Scott
Cooper og með aðalhlutverk fara
Johnny Depp, Benedict Cumber-
batch, Dakota Johnson, Joel Edger-
ton, Kevin Bacon og Peter Sarsga-
ard. Metacritic: 68/100
The Martian
Kvikmynd í leikstjórn Ridley Scott
sem byggð er á samnefndri met-
sölubók Andy Weir. Hún fjallar um
geimfarann Mark Watney sem tal-
inn er látinn eftir að ofsafenginn
stormur gengur yfir á Mars. Fé-
lagar hans skilja hann því eftir og
snúa aftur til jarðar. Watney lifði
storminn af og er nú einn og yf-
irgefinn á rauðu plánetunni með
takmarkaðar vistir. Hann verður
því að treysta á hugvit sitt og vilj-
ann til að lifa af. Honum tekst að
koma skilaboðum til jarðar þess
efnis að hann sé á lífi.
Með aðalhlutverk fara Matt Damon,
Jeff Daniels, Jessica Chastain, Kate
Mara og Kristen Wiig.
Metacritic: 77/100
Alræmdur Johnny Depp er nær
óþekkjanlegur í hlutverki morðingj-
ans James „Whitey“ Bulger.
Marsbúi og mafíósi
Bíófrumsýningar
Tveir ungir menn rífa sig uppog halda í ferðalag fráBurkina Faso í leit aðbetra lífi. Förinni er heitið
til Evrópu. Leiðangri þeirra er lýst í
myndinni Mediterraneo eftir ungan
og efnilegan leikstjóra, Jonas Carp-
ignano.
Ungu mennirnir, Ayiva og Abas,
lenda í ýmsu á leið sinni. Arabar
ræna þá í eyðimörkinni og þeir halda
yfir Miðjarðarhafið ásamt hópi fólks
í manndrápsfleytu, sem ber þá ekki
alla leið. Nokkrir falla á leiðinni.
Ítalska strandgæslan bjargar
þeim úr sjónum og þeir hafa nokkra
mánuði til að freista þess að fá vinnu
og dvalarleyfi á Ítalíu.
Myndin fjallar um það málefni,
sem hæst ber í fréttum þessa dag-
ana. Milljónir manna eru á vergangi
vegna átaka, hamfara og fátæktar.
Flóttamenn bíða í röðum við hliðin
að Evrópu og umræða um hvernig
og hvort eigi að taka á móti þeim
magnast.
Mediterraneo er unnin upp úr
stuttmynd. Hún er ekki áróðurs-
mynd þar sem málstaðurinn verður
að kylfu, sem látlaust er keyrð í höf-
uðið á áhorfandanum. Myndavélin
fylgir sögupersónum og bakgrunnur
þeirra og vonir koma smám saman í
ljós.
Aiyva og Abas eru viðkunnan-
legir, ungir menn. Þeir eru í leit að
betra lífi, en þegar til fyrirheitnu álf-
unnar er komið blasa ekki beinlínis
við glæstar horfur. Þeir fá vinnu við
að tína appelsínur og kaupið er lágt.
Aiyva ákveður að leggja sig fram og
strita möglunarlaust í þeirri von að
eiga einhvers konar framgang, en
Abas á greinilega erfitt með að gefa
allt í vinnu, sem á meira skylt við
þrælahald og réttur hans er einskis
virtur. Þeir búa í hreysum og allar
aðstæður eru fullkomlega óboðlegar.
Innflytjendurnir hljóta litla náð fyrir
augum heimamanna. Áhorfandinn
fær á tilfinninguna að þeir hafi skilið
betra líf að baki.
Myndin gerist í bænum Rosarno
og atburðir, sem þar urðu fyrir fimm
árum eru notaðir sem bakgrunnur.
Rosarno er í Kalabríu syðst á Ítalíu
þar sem mafíusamtökin N’Drang-
heta ráða lögum og lofum. Glæpa-
hringurinn stjórnar vinnumark-
aðnum á appelsínuekrunum þar sem
fólk fær í mesta lagi fimm þúsund
krónur á dag fyrir að strita í 12 tíma.
Kveikiþráðurinn var tendraður í lok
árs 2008 þegar tveir svartir verka-
menn voru skotnir. Í upphafi árs
2010 fór allt á annan endann. Ítölsk
ungmenni réðust á svarta verka-
menn og í kjölfarið brutust átök út
milli heimamanna og aðkomumanna.
Lögregla skarst í leikinn og að end-
ingu voru svörtu innflytjendurnir
fluttir í burtu á meðan hvítir íbúar
bæjarins fylgdust með og klöppuðu
sigri hrósandi. Í fjölmiðlum á þess-
um tíma var talað um að þessir at-
burðir minntu á ástandið í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna fyrr á tímum.
Þessir atburðir eru ekki raktir í
þaula í Mediterraneo, en Aiyva og
Abas dragast inn í hringiðu þeirra. Í
fréttum verða flóttamenn að andlits-
lausum fjölda, sem kemur í hol-
skeflum til Vesturlanda. Carpignano
segir hins vegar sögu tveggja ein-
staklinga þar sem flóttamannavand-
inn er baksviðið, en ekki megin-
atriði. Styrkleiki myndarinnar er að
hann veltir sér ekki upp úr tilfinn-
ingum, heldur segir söguna blátt
áfram, nánast í heimildamyndastíl.
Koudous Seihon er frábær í hlut-
verki hins yfirvegaða Aiyva, sem er
tilbúinn að láta nánast hvað sem er
yfir sig ganga til að ná settu marki
og á fyrir vikið auðveldara með að
aðlagast.
Alassane Sy gefur honum lítið eft-
ir sem Abas, vinur hans, sem á erf-
iðara með að kyngja óréttlæti
heimsins og er því meira á skjön í
hinu nýja landi.
Þá verður að geta persónu ungs
sígaunadrengs, Pios, sem kemur
fyrir í þessari mynd og verður næsta
viðfangsefni Carpignanos. Þar leik-
ur Pio Amato í raun sjálfan sig, ung-
an „athafnamann“, sem stundar við-
skipti með stolna muni af miklum
móð.
Carpignano hefur sagt að fyrir sér
vaki ekki að breyta reglugerðum
enda sé „martröð skrifræðis að
reyna að breyta nokkru á Ítalíu“.
Hann sé ánægður ef „fólk hættir að
hugsa um hóp farandfólks eða inn-
flytjenda og fari að líta á fólkið sem
einstaklinga“. Hann hefur lagt sitt af
mörkum til þess með þessari mynd.
Þyrnum stráð líf í fyrirheitna landinu
Á akrinum Seihon í hlutverki Aiyva og Sy í hlutverki Abas á ítalskri appel-
sínuekru. Í Mediterranea er fjallað um einn helsta vanda samtímans.
RIFF
Mediterranea bbbbn
Leikstjóri: Jonas Carpignano. Leikarar:
Koudous Seihon, Alassane Sy, Annalisa
Pagnano, Pio Amato, Aisha og Davide
Schipilliti. Franska, ítalska, enska og ar-
abíska. Ítalía, Frakkland, Bandaríkin,
Katar, 2015. 107 mín. Flokkur: Vitranir.
KARL BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Háskólabíó: Fös 2. okt., kl. 20.00,
spurt og svarað, lau 3. okt., kl.
14.00, spurt og svarað.
RIFF býður upp á tvennar áhuga-
verðar pallborðsumræður í dag,
annars vegar um danska kvik-
myndagerð og hins vegar um ís-
lensk kvikmyndatónskáld og er
aðgangur ókeypis að báðum. Um-
ræðurnar um danska kvikmynda-
gerð fara fram í Norræna húsinu
kl. 13. Sérstök dagskrá á RIFF er
helguð dönskum kvikmyndum og
verður rætt um sérstöðu danskr-
ar kvikmyndagerðar. Stjórnandi
umræðnanna er leikkonan Char-
lotte Böving og þátttakendur Jes-
per Morthorst, framleiðandi Stille
hjerte; Mikkel Jersin, framleið-
andi Þrasta og Rúnar Rúnarsson,
leikstjóri Þrasta. Móttaka verður
haldin eftir pallborðsumræðurnar
í Norræna húsinu.
Umræðurnar um íslensk kvik-
myndatónskáld fara fram á Cent-
er Hotel Plaza við Ingólfstorg kl.
16. Íslensk kvikmyndatónskáld
hafa náð langt að undanförnu og
má þar nefna Jóhann Jóhannsson
og Atla Örvarsson sérstaklega.
Sýnd verða brot úr verkum sem
Íslendingar hafa samið fyrir ný-
lega og að því loknu mun leikar-
inn Gunnar Hansson ræða við
Atla.
Jazzkvintettinn Bananas mun
halda kvikmyndatónleika í Saln-
um í Kópavogi í kvöld kl. 20 sem
helgaðir eru tónlist úr myndum
Woody Allen sem er að mestu
djass frá fimmta, sjötta og sjö-
unda áratugnum. Leikkonan
Edda Björg Eyjólfsdóttir mun
leiða gesti í gegnum kvikmynda-
sögu leikstjórans.
Spjall Atli Örvarsson ræðir við Gunnar
Hansson á Center Hotel Plaza í dag.
Dönsk kvikmyndagerð, íslensk kvikmyndatónskáld og kvikmyndatónleikar
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Þökkum frábærar
viðtökur á Van Gogh
olíulitunum og
Amsterdam
akryllitunum, sem
seldust nánast upp.
Ný sendingmeð fullt af
nýjungum komin í sölu.
Kolibri trönur
ímiklu úrvali,
gæðaværa
á góðu verði
Ný sending af
Kolibri penslum
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði
Ný sendingfrá
Ennþámeira úrval af
listavörum
THE MARTIAN 3D 7,10
EVEREST 3D 4,8,10:30
SICARIO 8,10:30
HÓTEL TRANSYLV. 3D ÍSL 6
HÓTEL TRANSYLV. 2D ÍSL 4
HÓTEL TRANSYLV. 2D ENS 4,6 (ótextuð)
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 4
TILBOÐ KL 4