Morgunblaðið - 02.10.2015, Qupperneq 92

Morgunblaðið - 02.10.2015, Qupperneq 92
FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 275. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Pamela Anderson lýsir villtu … 2. „Pyntuðu til að drepa“ 3. Ræddu opið samband 4. Hundraða milljarða tjón af … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Þjóðleikhúsið frumsýnir Heimkom- una eftir nóbelsverðlaunaskáldið Harold Pinter, í leikstjórn Atla Rafns Sigurðarsonar, á afmælisdegi Pint- ers, 10. október. Í verkinu segir af Teddy sem snýr óvænt heim á æsku- heimili sitt í Lundúnum með eigin- konu sinni Rut sem uppgötvar áður óþekktar hliðar á eiginmanni sínum þegar hún kynnist föður hans, föður- bróður og tveimur bræðrum. Þeir fara að bítast um athygli Rutar og samskiptin á heimilinu verða æ ofsa- fengnari. Meðal leikara í verkinu er Ingvar E. Sigurðsson sem fer með hlutverk föðurins. Frumsýning á afmæl- isdegi Harolds Pinter  Oskar Vistdal hlaut í gær eftir- sóttustu þýðing- arverðlaun Nor- egs, Bastian- prisen, fyrir þýðingu sína á skáldsögu Gyrðis Elíassonar Suður- glugganum. Nefn- ist sagan Utsyn frå sørglaset í þýð- ingu Vistdal. Dómnefnd segir þýðinguna afar vandaða og fanga vel ljóðrænan og hrífandi texta Gyrðis. Verðlaunaður fyrir að þýða sögu Gyrðis  Samsýning myndlistarkvennanna Arngunnar Ýrar, Dóru Emils og Huldu Vilhjálmsdóttur, Paradís, verður opn- uð í Stúdíói Stafni, Ingólfsstræti 6, í dag kl. 17. Myndlistarkonurnar takast á við hugmyndir um hið seiðandi og ótvíræða, dulúðuga og ógnvekjandi, ævintýralega og blákalda. Paradís opnuð í dag Á laugardag Fremur hæg breytileg átt, skýjað með köflum og víða dálitlar skúrir eða él, en þurrt að mestu um landið austanvert. Á sunnudag Vaxandi suðaustan- og austanátt með talsverðri rign- ingu, úrkomulítið um landið norðaustanvert. Heldur hlýnandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og dálitlar skúrir eða slydduél, en él fyrir norðan. Hiti 1 til 10 stig. VEÐUR Alexander Petersson, landsliðs- maður í handknattleik, glímir nú á ný við meiðsli í nára sem hann vonaðist til að jafna sig á með því að gangast undir að- gerð snemma síðasta sumar. Hann spilar nú færri leiki en ella með liði sínu Rhein- Neckar Löwen, í von um að jafna sig, en óvíst er hvaða árangri það skil- ar og hvort hann getur þá gefið kost á sér á EM í janúar. »1 EM er í hættu hjá Alexander Skipulagsnefnd Ólympíuleikanna í Tókýó 2020 leggur til að fimm íþróttagreinum; brimbrettafimi, kar- ate, hafnabolta/mjúkbolta, klifri og hjólabretta- og línuskautaíþróttum, verði bætt við sem aukagreinum til að laða að ungt fólk á viðburði á leik- unum. »4 Leggja til að fimm greinum verði bætt við Haukar og Valur tróna á toppi Olís- deildar karla í handknattleik en 6. umferð hófst í gærkvöld með fjórum leikjum. Valur vann toppslaginn á móti ÍR í Austurbergi og Haukar gerðu góða ferð á Nesið og lögðu Gróttuna. Akureyri fékk sín fyrstu stig þegar liðið vann sigur á Fram og FH marði Víking í Krikanum. »2-3 Akureyringar komust loks á blað ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Mamma er farin að tala stöku sinn- um við mig á finnsku. Hún talar ekki mjög góða finnsku svo ég vil frekar tala íslensku við hana. Hún talaði alltaf íslensku við mig þegar ég var barn og ég lærði íslenskuna áður en ég fór að tala finnsku þótt ég hafi aldrei lært hana í skóla,“ segir Ant- ero Vartia, 35 ára gamall þingmaður á finnska þinginu. Hann á íslenska móður og finnskan föður og hefur ís- lenskan ríkisborgararétt ásamt finnskum en hefur búið í Helsinki allt sitt líf. Móðir Anteros, Erna Einarsdóttir, var flugfreyja hjá Loftleiðum og vann síðar hjá Flugleiðum og Ice- landair í Finnlandi. „Mamma fékk frímiða og við fórum oft til Íslands þegar ég var ungur. Þegar ég var orðinn fimmtán ára vildi ég heldur eyða fríunum hér. Eftir 2000, þegar ég fékk aftur áhuga á að fara til Ís- lands, var landið orðið svo dýrt að það var skynsamlegra að fara í ferða- lag til New York en helgarferð til Ís- lands. Ég hef farið meira seinni árin og vona að ég geti gert meira af því á næstunni,“ segir Antero. Hann á mikinn frændgarð á Ís- landi og heldur sambandi þótt afi hans og amma á Íslandi séu fallin frá. Áhyggjur af loftslags- breytingum Antero hafði ekki verið lengi í stjórnmálum en alltaf haft áhuga á samfélagsmálum þegar hann bauð sig fram til setu á Evrópuþinginu fyrir Græna flokkinn í Finnlandi snemma á þessu ári. Hann náði ekki kjöri þá en var kjörinn á finnska þingið í kosningum í apríl. Hann er í hópi 15 þingmanna Græna flokksins í stjórnarandstöðu en alls eru 200 fulltrúar á finnska þinginu. Áhugi á umhverfismálum kallaði hann til þessara starfa. Aðaláhuga- mál hans er að vinna að aðgerðum til að draga úr útblæstri gróðurhúsa- lofttegunda og tilheyrandi breyt- ingum á loftslagi. „Það skiptir engu máli hvernig Finnland verður eftir tuttugu ár ef þetta verður ekki lag- að,“ segir hann. Antero telur að Finnar viti al- mennt að hann er af íslenskum ætt- um. Segist oft nota reynslusögur frá Íslandi til að skýra mál sitt. Samtalið fer fram á kynningu á ís- lensku skyri í Helsinki. Því er Antero spurður að því hvort hann borði skyr. Ekki stendur á svarinu: „Ég er alinn upp á íslensku skyri og lýsi.“ „Alinn upp á skyri og lýsi“  Antero Vartia, þingmaður í Finn- landi, er hálfur Íslendingur Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Litla Ísland Antero Vartia í hálfíslensku umhverfi á eyjunni „Íslandi“ á skyrhátíð sem haldin var í Helsinki. Antero Vartia er þekktur maður í Finnlandi og það hjálpaði honum í kosningunum í apríl. Hann er við- skiptafræðingur og viðskiptalög- fræðingur og rekur nokkur fyrir- tæki. Hann hóf starfsferilinn raunar á því að selja minjagripi í tjaldi við höfnina í Helsinki. Nú rekur hann vinsæla vínstúku við höfnina í Suður-Helsinki. Þar eru biðraðir við innganginn flest kvöld. Vel- gengnin er slík að hann er að koma sér upp öðrum veitingastað og hyggst opna hann með vorinu. Áður en Antero fór út í stjórn- málin var hann þó þekktastur fyrir að leika í sápuóperu í sjónvarpi og síðar fyrir að vera kynnir í sjón- varpsþætti þar sem fjölskyldum var hjálpað til að finna týnd skyld- menni. Sjónvarpsmaður og bareigandi ÞEKKTUR MAÐUR Í FINNLANDI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.