Víkurfréttir - 14.12.1989, Síða 2
Jólahugvekja
Sr. Þorvaldur Karl
Helgason:
„Fríður,
fríður,
frelsar-
ans ...
U
Þorvaldur Karl Helgason
Yíkurfréttir
Jólablaö 1989
Það var mikið umstangfyrir skrásetningu þegna hins stóra Rómaríkis. Hver þurfti aðfara á
sinn stað og svo var einnig um Maríu og Jósef sem héldufrá borginni Nasaret til Betlehems. Þar
fæddist hinn himneski Jesús, mitt í skarkala hins jarðneska ríkis keisarans í Róm. Fáir vissu um
fæðingu þessa barns til að byrja með. Aðeins nokkrir fjárhirðar og svo englarnir á himnum sem
sungu mikinn lofsöng eins og greinirfrá í jólaguðspjallinu hjá Lúkasi: „Dýrð sé Guði í upphæð-
um og friður á jörðu með þeim mönnum sem hann hefur velþóknun á“.
Það er mikið umstang fyrir þessi jól hjá okkur hér á landi, nú sem endranær. Sérhver verður
þess áskynja, enginn er víst undanskilinn þátttöku. Og svo renna upp friðsöm jólin og við reynum
í öllum hávuðanum og látunum að minnastfæðingar Jesú. Flestum lýðum er nú Ijósfæðingþessa
barns og lofsöngur er sunginn um gjörvallan heim af börnum og fuUorðnum:
Friður, friður frelsarans,
Jinni leið til sérhvers manns“
En margt hefur gerst í millitíðinni sem truflarþessi einföldu frásögu. Sí og æ verðum við að
rifja upp sögunaJráfyrstujólunum, afþvíað okkur hættir til að gleymaþungamiðju hennar, mis-
skilja eða skilja ekki, og um hver jól hjálpumst við að að gera okkur hana Ijósa á ný.
Það sem gerir söguna svona erfiða en um leið heillandi, er að mitt í einfaldleika hennar leynist
annað og dýpra. Fögnuður Maríu og Jósefs yfir fæðingu barnsins er um leið líka gleðiefni alls
mannkyns. Ungbarnið sem fjárhirðarnirfundu liggjandi íjötu, er líkafrelsari heimsins. Ágústus
keisari, veraldlegur höfðingi, var að vinna mikilvægt verk í ríki sínu, að skrá alla skattborgara
stna. Guð á himnum valdi þennan heimsatburð til þess að gefa honurn annað og meira innihald,
nefnilega upphafnýs ríkis, nýs samfélags, í kringum þetta litla barn íjötunni. Og við sveiflumst
til frá trausti okkar á nýjustu fréttunum af heimsins höfðingjum ogfrásagna guðspjallanna um
hann sem hvergi átti höfði sínu að halla.
Það er vissulega meira öryggi að finna hjá veraldarinnar höfðingjum, sem eiga sitt landssvæði
eða hafa eignað sér það og tryggja þegnum sínum öryggi í skjóli hervalds og auðs, heldur en um-
komulausu reifabarni sem ekki einu sinni getur lyft hendi til að skipafyrir, hvaðþá boðið upp á
fullkomnar ratsjárstöðvar. Þegar barnið óx úr grasi hljómuðu orð hans frekar sem góðlátlegt
tilboð til manna: „Fylg þú mér“. Og þeir sem tóku sig upp og héldu í humátt á eftir honurn
kynntust því að samfylgdin var í senn ánægjuleg en líka krefjandi. Þeir sáu sjúkafá bót meina
sinna, daufa heyra og dauða upp rísa, en jafnhliða voru þeir spurðir um hverhann væri í raun og
áhyggjur morgundagsins hurfu ekki, þrátt fyrir nærveru hans ogfögur hvatningarorð um hið
gagnstæða. Og þegar á reyndi og valdsmenn ríkisins kröfðu þá sagna, afneituðu þeirþessu sam-
félagi við þennan hógværa kærleikskrefjandi mann, sem í sífellu talaðiílíkingum um hinn himn-
eska föður og rtki hans.
Við upplifum þessa dagana að valdahlutföll nútímans breytast og múrar yfirráðasvæða her-
velda eru brotnir niður, og það af þeim sem fæstir bjuggust við að létu undan. Viðfögnumþvíer
sýnilegir og ósýnilegir veggir tortryggni víkja fyrir vilja til samstarfs og sameiningar. Öðrum
megin þessa veggjar eru menn að rísa upp til ennfrekariþjóðarvitundar og hinum megin er gagn-
stætt að gerast er þjóðir Vestur-Evrópu stíga innan tíðar skref til enn frekari sameiningar. Öðr-
um megin dró kannski matarskortur ráðamenn til þess að opna hliðið, okkar megin er það
kannski offramboð matvæla og alls kyns varnings sem knýr okkur til róttækra aðgerða. Við er-
um að kafna í smjöri og plasti, mengun og ómenningu.
„Mitt ríki er ekki afþessum heimi“, sagði Kristur við lærisveina sína. Höfðingjarþessa heims
koma og fara. Skammt er milli gleði og ótta í skjóliþeirra. Múrinn ntilli austurs og vesturs var
reistur á einni nóttu. Kristnir menn verða sífellt að hafa hugfast að hvenærsem erkann nýrmúr
að verða hlaðinn og ekkert ætti að koma okkur á óvart íþeim efnum. Stuttur tími leið millifagn-
aðarláta pálmasunnudags og þeirra stundar er krossinn var reistur á Golgatahæð. Mannlegur
breiskleiki er algjör, hann hefur ekki horfiðþótt einhver hlið hafi verið opnuð. Raunveruleg hjálp
handa hungruðum virðist ekki vera megin markmið smjörfjallsþjóðanna í vestri. Kærleikurinn á
enn í vök að verjast. Réttlætið er enn fótum troðið.
Þörfin er ætíð sú sama hjá okkurfyrir bæn fyrir miskunn, fyrirgefningu, sáttargjörð við Guð
og menn. Vitanlega fögnum við öll er vopnsjúkar stórþjóðir leggja frá sér byssurnar og opna leið
til sátta og samtals. En hinn endanlegi friður á jörðu er ekki kominn, hann felst aðeins t þeim
orðum sem englarnir sungu um ájólanótt. Sáfriður snýst um dýrð Guðs, ogþá himnesku birtu er
hvergi annars staðar að finna en við fótskör frelsarans Jesú Krists. Von okkar er ætíð bundin
veruleika hans nú um fæðingarhátíð hans og endranæsr.
„Friður sé um fold og haf,
friðarboðskap Jesú gaf‘.
Fögnuður alls heimsins um frið á foldu leynist í frásögunni frá Betlehemsvöllum. Þangað
skulum við snúa okkur til leitar að nýju UJi, lausn og líkn. Guði einum sé dýrð að eilífu.
Gleðilega jólahátíð í skjóli Guðs friðar.
stærsta frétia-QG auglysiNGABLAÐip a suðurnesjum Utgefandi: Víkurfréttir hf.
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, simar 14717,15717, Box 125, 230 Keflavík. - Ritstjórn: Emil Páll
Jónsson, heimas 12677, bílas. 985-25916, Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-25917. - Fréttadeild: Emil Páll
Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson. - Auglýsingadeild: Páll Ketilsson. - Upplag: 5600eintök sem dreifter ókeypis um
öll Suðurnes. - Aöili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun,
hljóðritun. notkun Ijósmynda og annað er ólieimilt nema heimildar sé getið.
__________________________________Setning. filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF.. Keflavík