Víkurfréttir - 14.12.1989, Page 15
þeyttu flautur bifreiða sinna
sem tákn um nýfengið ferða-
frelsi.
Þá fyrst varð okkur ljóst að
þetta var raunverulegt og það
sem ef til vill var merkilegast,
við vorum þátttakendur í
þessu eftir að hafa átt hér
heima í hartnær fimm ár og
ekki órað fyrir atburðum af
þessu tagi.
Er við komum að hliðinu
blasti við okkur sjón sem við
munum aldrei gleyma. Þús-
undir manna streymdu í gegn-
um hlið múrsins og hrópuðu:
„Die Mauer ist weg und Berlin
ist wieder Berlin,“ sem út-
leggst á íslensku: „Múrinn er
fallinn og Berlín lifir á ný.“
Þarna sáum við fjölskyldur
hittast eftir 28 ára aðskilnað.
Fólk faðmaðist og grét af gleði
sem svo sannarlega var ekki að
ástæðulausu. Þessi helgi var
líkust allsherjar fjölskylduhá-
tíð í Vestur-Berlín og ánægja
og gleði var svo ríkjandi í við-
móti fólks. Krárnar gáfu frían
bjór og voru opnar undir
morgun."
28 ára innilokun
„Eitt atriði er mér þó minn-
isstæðara en annað þetta um-
rædda kvöld, en það átti sér
stað við hliðið. Eldri maður
kom í gegnum hliðið og hróp-
aði um leið og hann grét, að
þyngsta refsing í siðmenntuð-
um löndum fyrir glæp væri 25
ár en Austur-Berlínabúar
hefðu verið lokuð inni í 28 ár.
Að sjá þennan mann gráta
endurspeglaði á áhrifaríkan
hátt þær þrengingar sem þetta
fólk hefur þurft að lifa við, sem
við Vesturlandabúar eigum
erfitt með að skilja."
Stórfréttir á
hverjum degi
Hlutirnir hafa gerst hratt
undanfarna daga og segir
Guðmundur að það séu stór-
fréttir á hverjum degi. „Borgar-
stjórar Austur- og Vestur-Ber-
línar hittust í dag og ræddu
m.a. sameiginlegar áætlanir í
vegagerð og umhverfisvernd.
Það er mikil mengun í Austur-
Berlín og þeir hafa ekki notað
neinar mengunarvarnir á verk-
sntiðjur sínar. I stilltu veðri má
sjá mengunarþoku yfir borg-
inni. En það eru mörg vanda-
málin sem eru óleyst, og leys-
ast ekki á einum degi. Hag-
kerfið er í rúst og erfiðleikar í
peningamálum. Það er stefnt
að því að stofna sameiginlegan
gjaldeyrissjóð, en það er eitt af
mörgum málum sem verða
erfið viðureignar. Spennan í
kringum atburði dagsins er
mikil. Maður kaupir 2-3 blöð á
hverjum degi til að fylgjast
með. Blöðin hafa grætt á þessu
og sala þeirra stóraukist",
sagði Guðmundur og bætti við
að lokum, að hann hlakkaði til
koma heim til Kefiavíkur um
jólin. „Munurinn á því að vera
í svona stórborg og litlum bæ
er mikill. Hér skiptir sér eng-
inn af náunganum og kurteisi
er ekki mikil. Mannleg'sam-
skipti eru afskornumskammti
og það er sennilega stærsti
munurinn á stóru þjóðfélagi
og litlu eins og við eigum að
venjast heima".
Yikurfréttir
Jólablaö 1989
Guðmundur og Ásta Vala við ána Spree, sem rennur með múrnum
að hluta. Þarna hafa nokkrir drukknað er þeir liafa freistað þess að
komast í frelsið.
I)E>BÓK
-09
allar hinar jólabækumar
Heba hefur fyrir löngu ákveðiö að
segja sögu sina og telur að með
því að segja allan sannleikann geri
hún þjóðfélagslegt gagn. Hún hlif-
ir engum - heldur ekki sjálfri sér.
Verð: 3875 kr.
HEIMSMETABÓK
Heimsmetabók Guinness nýtur
mikilla vinsælda um allan heim, og
líkast til ber að líta á hana öðru
fremur sem skemmtiefni, enda er
margt i henni skemmtilegt aflestr-
ar.
Verð: 2990 kr.
Kiddi á sér stóra drauma og stefnir
að því að ná langt sem knatt-
spyrnumaður.
Verð: 1490 kr.
Sandkorn timans segir frá fjórum
nunnum sem skyndilega neyðast
til að flýja verndað umhverfi klaust-
ursins i miskunnarlausan heim,
sem þær höfðu yfirgefið.
Verð: 2675 kr.
Þetta er óvenjuleg ferðabók. Þor-
björn og Unnur smiðuöu skútu og
sigldu á henni yfir hálfan hnöttinn.
Hér segja þau feröasöguna á fjör-
ugan og skemmtilegan hátt.
Verð: 3880 kr.
Skáldsaga um unga stúlku sem líf-
ið hefur leikið nokkuð grátt, þótt
um siðir birti til og hamingjan brosi
við henni á nýjan leik. Athyglis-
verð bók sem tekur á viðkvæmum
vandamálum.
Hér sþinnur höfundur á listrænan
hátt útrúlega örlagasögu ungrar
stúlku úr þeim margslungnu þráð-
um er leynast í mannlegu eðli.
Ástin og hatrið, sektin og sakleys-
ið hljóta enn á ný djúþa og óvænta
merkingu i huga lesandans.
Verð: 2980 kr.
Einhvers staðar í Evrópu er lest á
ferð. ( einum vöruvagni hennar
leynist banvænn farmur sem gæti
haft örlagarikar afleiðingar fyrir
alla heimsálfuna um ókomna tima.
Verö 1980 kr.
Kannist þið við Sollu Bollu og Tá-
mínu? Þegar þær verða vinkonur
lifnar nú heldur yfir Sollu litlu, því
að saman eignast þær dálítið
leyndarmál sem enginn veit . . .
Verð 980 kr.
Inga Huld Hákonardóttir ræöir við
Guörúnu Ásmundsdóttur um ást
og trú, gleði og sorg, hjónabönd
og tilfinningar. Þjóðin þekkir
hana á leiksviöinu.
Verð 3280 kr.