Víkurfréttir - 14.12.1989, Blaðsíða 17
Yíkurfréttir
Jólablað 1989
Soroptimistaklúbbur
Keflavíkur:
Jólakort
með myndum
Ástu Árna
Soroptimistaklúbbur Kefla-
víkur hefur gefið út jólakort
með vatnslitamyndum eftir
Ástu Árnadóttur listakonu.
Kortin eru seld til styrktar
sjúkum öldruðum.
Sala þeirra er í Blómastofu
Guðrúnar og Versluninni Llsu.
Listakonan Elínrós Eyjólfs-
dóttir.
Forsíðumyndin
Sá siður hefur verið hjá okk-
ur undanfarin jól að vera annað
hvert ár með málaða mynd á
forsíðu jólablaðsins. Sú mynd
sem nú prýðir forsiðuna er mál-
uð af keflvískri listakonu, Elín-
rósu Eyjólfsdóttur.
Hjördís hf. og
Stafnsíld hf.:
Tvö ný
sjávar-
útvegs-
fyrir-
tæki
í nýlegu Lögbirtingablaði
birtust tvær tilkynningar um ný
fyrirtæki í Keflavík, raunarbæði
skráð í september. Þau heita
Hjördís h.f. og Stafnsild h.f.
Hjördís er útgerðar- og fisk-
verkunarfyrirtæki er gerir út
bátinn Hjördísi KE 133 og er
stofnsett af eftirfarandi aðil-
um: Hákoni Ö. Matthíassyni,
Hilmari Hákonarsyni, Sigfúsi
A. Sigfússyni og Hildi Hákon-
ardóttur, öllum I Keflavík, og
aðila í Reykjavík.
Stafnsíld er útflutningsfyrir-
tæki á sjávarafurðum, stofnsett
af Hilmari K. Magnússyni,
Jórunni Garðarsdóttur, Oddi
Sæmundssyni, Jóninu Guð-
mundsdóttur og Magnúsi
Jónssyni, öllum í Keflavík.