Víkurfréttir - 14.12.1989, Page 20
Úr ýmsum áttum
Vikurfréttir
Jólablað 1989
Ummmm.. .
Smurt brauð og
kökur og vöfflur
með rjóma.
Kaffi og kakó.
Alla daga í des-
ember í kaffinu.
Lítið inn i
jó\aösinn»
FRI HEIMKEYRSLA
NÆTURÞJÖNUSTA
FRl HEIMKEYRSLA Á PIZZUM, FRÖNSKUM, SALATI, SÓSU OG
GOSI I KEFLAVÍK OG NJARÐVlK Á LAUGARDAGSKVÖLDUM
MILLI KL. 22 OG 02.
Eldbakaðar
Greiðslukorta-
þjónusta
og
auðvitað líka
fljót þjónusta.
ILANS
Sími 14777
1. Oregano
pizzur
9" 12"
435 575
2. Skinka, sveppir, ananas 705 840
3. Nautahakk, sveppir, pepperoni 770 905
4 Nautahakk, sveppir. paprika 705 840
5. Skinka, sveppir, iaukur. rækjur 795 930
6. „Langbest" pizza með ollu 925 1060
7. „Hot pizza". nautahakk. sveppir.
paprika. sterkur rauður pipar, lauk-
ur. pepperoni. hvítlauksolia. Ný og
hressandi pizza, ofsa góö 830 965
Sendum öllum
Suðurnesj amönnum
bestu óskir um
GLEÐILEG JÓL,
GOTT OG FARSÆLT
KOMANDI ÁR.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
GRAGAS HF.
Vallargötu 14 - Kcllavík
Símar 11760, 14760
Jölatrésfagnaður í Garði
Kvenfélagið Gefn heldur sinn árlega jóla-
trésfagnað laugardaginn 30. desember kl.
14-16 og 17-19. Hljómsveit Ólafs Gauks
skemmtir. Jólasveinar koma í heimsókn.1
Aðgöngumiðar verða seldir í Samkomu-
húsinu í Garði miðvikudaginn 27. desemb-
er nk. kl. 16-18,eftirþaðhjáMargréti ísíma
27259. Allir velkomnir.
Nefndin
Eldvarnir
um hátíðarnar
Ágætu Suðurnesjabúar! Nú
líður senn aðjólum ogáramót-
um, þeim tímaársinssem mest
er verið með óbyrgðan eld,
kerti, eldspýtur og skreytingar
allskonar. Þið farið að komast
í hátíðarskap, hugið að jóla-
haldinu með öllum þeim verk-
um sem þeim fylgja. Það er
mikið að gerast á flestum
heimilum fyrir þessa stærstu
og Ijósamestu hátíð ársins, svo
að allt verði tilbúið þegar há-
tíðin gengur í garð. En við
skulum ekki flýta okkur of
mikið. Það má ekkert koma
fyrir sem spillt getur fyrir gleði
hátíðarinnar.
Við hjá Brunavörnum Suð-
urnesja viljum biðja ykkur um
að huga vel að brunavörnum
heimilisins. Það er því miður
staðreynd að flestir eldsvoðar
verða í kringum jól ogáramót.
Ástæðan er sú að þá er mest
verið með óvarinn eld, alls-
konar jólaskreytingar og
kertaljós. Hafið því kertin í
góðum kertastjökum, þannig
staðsettum að ekkert sé nálægt
sem kviknað geti í. Aðgætið
einnig hvort rafmagnsleiðslur
og perustæði á ljósaseríum séu
ekki í lagi.
Þá ber að minnast á þá
hættu sem er samfara ára-
mótabrennum, flugeldum og
ýmiskonar blysum. Sýnið því
aðgát við störf ykkar yfir há-
tíðarnar og þá sérstaklega við
djúpsteikingu, t.d. við bakstur
á laufabrauði og slíku. Hafið
ávallt lokið af steikarpottinum
eða eldvarnateppi við hendina
þegar slík vinna fer fram, því
að kæfing er rétta slökkviað-
ferðin í slíkum tilfellum. Til að
minnka hættu á eldsvoða þarf
að vera reykskynjari af viður-
kenndri gerð á hverju heimili
staðsettur í samráði við eld-
varnaeftirlitið. Reykskynjarar
hafa fyrir löngu sannað gildi
sitt og komið í veg fyrir marga
eldsvoða. Einnig þarf að vera
til á hverju heimili slökkvitæki
og eldvarnateppi. Rétt við-
brögð, ef reykskynjari gefur
viðvörun um eld, getur skipt
sköpum um afleiðingarnar.
Rétt viðbrögð eru:
1. Að láta alla sem í húsinu
eru vita og koma öllum á
öruggan stað. (Ef fara þarf
út á fleiri en einum stað, þá
gerið manntal þegar út er
komið til að vera viss um að
allir hafi komist út).
2. Kallið á slökkviliðið, brun-
asími er 12222.
3. Reynið að slökkva eldinn,
en setjið ykkur ekki í hættu
við það.
Þegar hús er yfirgefið í elds-
voða er mikilvægt að loka eld-
inn af, með því að loka á eftir
sér hurðum og gluggum. Með
því hindrar þú útbreiðslu elds-
ins.
Ágætu Suðurnesjabúar! Við
hjá Brunavörnum Suðurnesja
vonum að við þurfum ekki að
koma í heimsókn til ykkar til
slökkvistarfa yfir hátíðarnar,
en þetta er mikið undir árvekni
ykkar sjálfra komið.
Gleðileg jól og farsælt kom-
andi ár.
Brunavarnir Suðurnesja
Eldvarnaeftirlit.
Að loknum aðalfundi SSS á hverju ári halda aðalfundarfulltrúar og gestir fagnað. Að þessu sinni var
hann haldinn í Sandgerði. Hér eru það þeir Olafur Gunnlaugsson, Finnbogi Björnsson, Eðvald Bóas-
son, Jóhann Einvarðsson, Anna Margrét Guðmundsdóttir, Eilert Eiríksson, Karl Steinar Guðnason og
Steingrímur Hermannsson að skemmta, undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar (Bróa).
Glatt á hjalla hjá SSS
,,Það er kominn tími til fvrir þingmenn að fara að
gera eitthvað", sagði Olafur Gunnlaugsson þeg-
ar hann bað Karl Steinar að halda undir nótna-
bókina.
F.v.: Sveinfríður Ragnarsdóttir, Birna Jóhannes-
dóttir, Steingrímur Hermannsson, Björgvin
Lútliersson, Bogga Sigfúsdóttir og Edda Guð-
mundsdóttir. Ljósmyndir: pket.