Víkurfréttir - 14.12.1989, Síða 21
mdar
grin ■ gagnryni
y vangaveltur ■
un^sjón:*emil páll.*»
Starfsmennirnir og y
stjórnendurnir
Nú gengur yfir sá tínri, þeg-
ar mikið er um það að starfs-
mannahópar haldi svonefnd
jólaglögg. Eins er tími árshá-
tíða vinnustaða nýafstaðinn.
Eitt virðast þessi hóf eiga sam-
eiginlegt og það er að lítið er
um það að stjórnir stofnana
láti sjá sig meðal starfsmanna
sinna. Nægir að nefna árshá-
tíðir Keflavíkurbæjar og
sjúkrahússins en fremur lítið
fór fyrir þeim mönnum og
konum sem þar ráða ríkjum.
Sjálfsagt hafa þeir ekki geð í
sér að skemmta sér með starfs-
fólkinu. Er það miður og kann
ekki góðri lukku að stýra. Sem
betur fer er slíkt háttalag ekki
tíðkað þegar einkaframtakið
skemmtir sér.
Hvað með uppákomur?
Miðbær Keflavíkur hefur
svo sannarlega tekið á sig jóla-
svip hina síðustu daga. En þó
þetta sé gott út af fyrir sig, væri
ekki vitlaust að vera með ein-
hverjar uppákomur nú síðustu
daga fyrir jól. Það myndi
draga að tleira fólk og þar með
etlaust meiri verslun. Því skor-
um við á hugmyndaríka að
auka jólastemninguna í mið-
bænum, sem þó hefur, eins og
áður segir, tekið vel við sér.
Mætti þar nefna aukna tón-
list, s.s. kynningar plötuútgef-
enda og uppákomur í formi
jólasveina sem myndu draga
að bamafólk, væri málið vel
kynnt.
Víkurfréttir
Jólablað 1989
Auglýsendur athugið!
TVEIR MÖGULEIKAR
Reykjanes á þriðjudögum og
Víkurfréttir á fimmtudögum.
Víkurfréttir Reykjanes
Sælla
er að
gefa en
þiggja
Fyrir nokkrum mánuðum
vorum við hjónin stödd í er-
lendri stórborg, nánar tiltekið
Hamborg. Þar gerðist lítið at-
vik (kannski ómerkilegt), sem
oft hefur komið upp í huga
minn síðan og valdið mér ým-
iskonar heilabrotum.
Einn daginn vorum við á
rölti um miðborgina, kíktum í
búðarglugga og versluðum dá-
lítið, eins og íslendinga er sið-
ur. Skammt frá dyrum einnar
stórverslunarinnar sat ungur
maður á gangstéttinni með
hundinn sinn hjá sér. Hjá hon-
um var spjald sem á stóð ,,At-
vinnulaus". Þessi ungi maður
var að betla. Ég veit ekki hvers
vegna hann vakti athygli mína
öðrum fremur, kannski vegna
þess að hann var hreinn og
þokkalegur til fara, kannski
vegna þess að hundurinn var
með honum. Við gengum
nokkrum sinnum þarna fram-
hjá og héldum síðan heim á
hótel, en sífellt komu ungi
maðurinn og hundurinn upp í
huga minn.
Næsta dag erum við enn á
rápi í miðborginni og enn situr
ungi maðurinn á sama stað, og
nú hugsa ég með mér að nú
skuli ég gera það sem mig i
raun langaði að gera daginn
áður, semsé gefa honum
nokkrar krónur.
Þetta gerði ég, lét fáein
mörk í skálina hans. Og þakk-
lætið sem skein úr augum
hans, þegar hann leit á mig,
var margföld borgun fyrir
þessar fáu krónur. Ég hef oft
hugsað um þetta atvik og jafn-
an glaðst yfir því að fá að
gleðja þann sem erfitt átti.
Við sem höfum nóg að bíta
og brenna þurfum svo ótrú-
lega lítið að leggja af mörkum
til að það gleðji þá sem ekkert
hafa. Það er sannarlega sælla
að gefa en þiggja.
Með jólakveðju,
Guðbjörg Böðvarsdóttir.
I R.O. finnurþú jólagjafir
fyrir alla fjölskylduna
Sjáif-
virkar
kaffivélar
frá kr.
2.190
Ljóskastarar
frá kr. 980
' Hár-
blásarar
frá kr.
. 1.590.-
dötnuri
mm
Black & Decker
handryksuga
Verð frá kr. 2.830
Halogen
lllampar í úrvali /
Jólaseríur 'V frá kr. 2.860 ji
frá kr. 665 mík
Jólastjörnur 995
Jólaenglar 995
. Aðventuljós frá 1850 Jj
V Krossar á leiði // t
Black & Decker
gufustraujárn
frá kr. 3.290 .
handverkfæri
40 ljósa útiseríur
kr. 2.290 og 80 ljósa
auðvitað með spenni.
Utbúum seríur
k eftir máli. i
Borvélar
frá kr.
w 7.190
RAFBUÐ
BARNAPASSARINN
Nauðsynlegt tæki.
í jólaskapi
Hafnargötu 52 Sími 13337