Víkurfréttir - 14.12.1989, Side 22
Vináttutengsl
Víkurfréttir
Jólablaö 1989
I'rá undirrUun vinabæjatengslanna árið 1987. Bxjarstjóri Hem,
■lacqy Delaporte, og þáverandi bxjarstjóri i Keflavík, Vilhjálmur
Ketilsson, sýna skjölin þessu til staðfestingar.
Grunnskólinn í Sandgerði
Tónmenntakennari - Skólaritari
Tónmcnntakcnnara vantar við grunnskól-
ann frá og með næstu áramótum. Um er að
ræða stundakennslu, en gæti orðið ‘/2 starf.
Umsóknarfrestur er til 25. desember. Uppl.
veita Guðjón Þ. Kristjánsson, skólastjóri, í
síma 92-37439 og 92-37436, og Ásgeir Bein-
teinsson í síma 92-37439 og 92-37801.
Skólaritara vantar við skólann frá og með
næstu áramótum. Um er að ræða /2 starf.
Umsóknarfrestur er til 25. desember. Upp-
lýsingar veitir Guðjón Þ. Kristjánsson í
síma 92-37439 og 92-37436.
Skólastjóri
íbúð til leigu
Miðneshreppur auglýsir til leigu íbúðina
Heiðarbraut 4, frá 1. jan. til 31. júlí 1990.
Umsóknarfrestur er til 20. des. nk. Allar
frekari upplýsingar gefur undirritaður.
Sveitarstjóri
Auglýsendur ath.
Við náum augum fólks fyrstir.
Auglýsið í þriðjudagsblaðinu.
Holtaskóli - St. Paul:
Samskipti
allra bæjarbúa?
Fyrir cinum fimm árum hófst
samhund rnilli Holtaskóla í
Keflavík og St. Paul skólans í
Hem, Frakklandi. Hafa nem-
endur beggja skóla skipst á
bréfum og blöðuni með fréttum
úr skólunum og félagslífinu,
myndböndum og ýmsu öðru.
Seinna komust á gagnkvxmar
heimsóknir flestum til ánxgju
og fróðleiks. Gistu þá nemend-
urnir lijá pcnnavinum sínum og
kynntust siðum og venjum fjöl-
skyldulífs hvorrar þjóðar fyrir
sig.
Nú síðustu tvö árin hafa
frönsku unglingarnir komið
að hausti, en Keflvíkingarnir
farið að vori að loknum próf-
um.
Formleg vinabæjatengsl
voru stofnuð í Keflavík árið
1987 og ári síðar kom hópur
bæjarfulltrúa ásamt bæjar-
stjóra Hem í heimsókn til okk-
ar. Sl. vor endurguldu svo bæj-
arfulltrúar Keflavíkur heim-
sóknina.
Þessi samskipti liafa óneit-
anlega vakið athygli og áhuga
og hugmyndir skutu upp koll-
inum um að allir bæjarbúar,
ungir sem aldnir, gætu gerst
Frakklandsvinir og tekið þátt í
þessum samskiptum.
Forsvarsmenn Frakklands-
vinafélags Holtaskóla hafa að
undanförnu verið að kynna sér
möguleika á þessu og hefur nú
borist jákvætt svar frá Frakk-
landi. Hópur þaðan hefur hug
á að heimsækja Keflavík á
páskum næsta ár og eru til-
búnir að taka á móti gestgjöf-
um sínum seinni hluta maí.
Það er sem sagt allt í start-
holunum. Gaman væri ef
áhugasamir Keflvíkingar, sem
hafa góðar hugmyndir urn það
í hverju vinabæjasamskiptin
ættu að vera fólgin og hafa hug
á að fara til Frakklands í vor,
hefðu samband við annað
hvort Hildi (15597), Sveindísi
(13809) eða Guðbjörgu
(13921).
Það er margt hxgt að skoða í Hem og þangað hafa hópar úr Holta-
skóla farið i hcimsóknir.
Nemendur úr Holtaskóla ásamt Guðmundi Hermannssyni á góðri stund í frönsku blíðviðri.
REYKJANES