Víkurfréttir - 14.12.1989, Blaðsíða 26
Verslum heima - Höldum fjármagninu í heimabyggð
Víkurfréttir
Jólablað 1989
Valfrelsi í jólagjöf
- Gísli í STUDEO tekinn tali
„Þetta er í fyrsta skipti sem
við bjóðum fóiki upp á gervi-
hnattamóttakara hér í Studeo
og fólk sýnir þessum búnaði
mikinn áhuga og er mikið að
spá,“ sagði Gísli Guðfinnsson
í versluninni Studeo við Hafn-
argötu í stuttu spjalli við Vík-
urfrcttir nú eftir síðustu helgi.
Hljómtæki og örbylgjuofn-
ar eru vinsælar jólagjafir að
sögn Gísla, en nú er það spurn-
ingin hvort Suðurnesjamenn
vilja fá aukið valfrelsi í jóla-
gjöf, því með móttökubúnaði
þeim fyrir gervihnattasend-
ingar, sem Studeo býður, er
hægt að ná allt að 34 sjón-
varpsstöðvum á ýmsum
tungumálum, allt nokkuð vin-
sælar stöðvar með gott sjón-
varpsefni.
„Að sjálfsögðu stendur
smávaran einnig fyrir sínu, en
við höfum á boðstólum laser-
diska, vasaútvörp, ferðatæki
og ýmsa aðra smávöru sem
hentar vel í jólapakkann og
fyrir budduna,“ sagði Gísli
Guðfinnsson í Studeo að end-
ingu.
Hefurðu velt því fyrir þér hverjir eru
KOSHR
OG
r
þess að versla hér á Suðurnesjum?
Kostirnir er þessir:
1. Hér eru fjölmargar verslanir með nánast allan þann varning sem við
þurfum.
2. Þú sparar þér ferðakostnað. Reykjanesbrautin hefur hingað til ekki
heldur verið talin mjög „skemmtileg".
3. Verð í verslunum á Suðurnesjum er fyllilega samkeppnisfært við það sem
gerist á höfuðborgarsvæðinu. Verðkannanir eru þar órækasta vitnið.
4. Aukin verslun eykur veltuhraða og eflir verslun hér og gerir hana þar
með færari að veita góða þjónustu.
5. Þú styður ekki aðeins við bak verslananna sjálfra, heldur og alls bæjar/
sveitarfélagsins - þar með talið þitt eigið - þar sem aukin velta færir því
meiri tekjur af versluninni. Þetta kemur þérogokkur öllumtil góða,t.d.
í framkvæmdum hjá bæjar/sveitarfélaginu.
6. Vöruúrval er gott, í langflestum tilfellum ekki síðra en annars staðar. Ef
varan er ekki til staðar er hægt að útvega hana með stuttum fyrirvara.
7. Þín viðskipti halda uppi atvinnu. Þú velur hvort sú vinna er unnin í
heimahéraði eða annars staðar.
r
Okostirnir eru:
í þeirri hörðu samkeppni sem nú er í allri verslun, t.d. á höfuðborgarsvæð-
inu, er gripið til margvíslegra gylliboða. Hugleiddu nú hvers virði það
er að hafa góða verslunarþjónustu á Suðurnesjum og hvaða áhrif það hefur
á búsetu hérna, ef þessi þjqnusta flyst i auknum mæli til annarra
byggðarlaga.
Lesandi góður. Við ætlum að láta þér eftir, að tína til þá ókosti sem þér
finnst samfara því að versla hér á Suðurnesjum. Ef þú telur þig geta fengið
betri vöru, verð og þjónustu utan bæjarmarkanna, veltu því þá fyrir þér
hvort ferð þangað sé þess virði.
VERSLUM HEIMA
T’ STÆRSTA frétea-og auglysingablaðið á suðurnesjum
Víkurfréttir
Gísli Guðfinsson í Studeo við gervihnattamóttakara, sem verslunin
býður upp á. Ljósm.: hbb.
Magnús Hjörleifsson að störfum.
Ráarréttir
í Vikuna
Nú í jólamánuðinum birtast
í hinu viðlesna heimilisblaði
Vikunni, sem útgefið er af
SAM-útgáfunni, Ijósmyndir
og umsögn um rétti Sverris
Halldórssonar, kokks á Ránni
við Hafnargötu í Keflavík.
Um er að ræða ellefu rétti úr
uppskriftabók Sverris, en
einnig eru kokteilar Björns
Vífils Þorleifssonar til umfjöil-
unar. Það er hinn þekkti
ljósmyndari, Magnús Hjör-
leifsson, sem myndaði réttina.
Sverrir Halldórsson, Bryndís Kristjánsdóttir blaðakona á Vikunni,
og Magnús Hjörleifsson Ijósmyndari. Ljósm.: hbb.