Víkurfréttir - 14.12.1989, Síða 29
Islenskir Aðalverktakar sf.
Vikurfréttir
Jólablað 1989
sjá til þar sem hann situr niður
við gólf. Lyftarinn getur híft
1250 kíló og skynjar stýrivír
sem fræstur er í gólfið milli
rekkanna. Lítil tölva er tengd
stýrikerfi lyftarans þannig að
þegar búið er að slá inn hillu-
númerið er lyftaranum ekið
inn viðkomandi gang og skil-
ar eða sækir sjálfur réttan pal!
og leggur frá sér, hárnákvæmt.
Tveir til þrír rafmagnslyftarar
mata til og frá hillusamstæðu
og geta afgreiðslur verið allt að
60 á dag. Það gera um 12000
stykki á ári eða um 3500 tonn.
Þetta á eingöngu við um vöru
keypta erlendis frá og er því
ótalið allt það sem verslað er
innanlands svo sem málning,
einangrun, gler, þakjárn og
vörur tengdar asphalti svo
eitthvað sé tekið.
Um 9 manns starfa í
skemmu 14, þegar mest er, við
flokkun og afgreiðslu vörunn-
ar ásamt þeirri lyftaraþjón-
ustu sem veitt er við verkin.
Að iokum má geta þes að
mjög fullkomið slökkvikerfi er
í byggingunni, bæði vatns- og
duftúðun ásamt því að skynj-
arakerfi er beintengt við
slökkvistöðina á flugvellinum.
Skrifstofubygging
Frá árinu 1954 hafa íslensk-
ir Aðalverktakar hafist við í
skálabyggingum, reistum hér
til bráðabirgða af hernum og
áttu að standa í 10 ár. Þrjátíu
og þrem árum og tilheyrandi
viðhaldi seinna, í desember
Skrifstofur íslenskra Aðalverktaka eru á um 1900 ferm. gólffleti á
tveimur hæðum, í nýju húsi sem tekið var í notkun í desember 1987.
1987, var flutt í nýja og glæsi-
lega byggingu rétt austan við
gömlu skrifstofuna.
Hafist var handa við bygg-
inguna haustið 1985 og hún
kláruð eins og áður er getið
1987. Byggingin er steinhús á
tveimur hæðum, um 1900 fm.,
en til gamans má geta þess að
gömlu skrifstofurnar voru
samtals um 1600 fm. Notast
var við svokallað ,,MÁT“-
kerfi við hönnun innanhúss og
allt efni keypt af þeim til verks-
Rúmlega helmingur bygg-
ingarinnar fer undir verk-
fræðideildina, en hún skiptist í
byggingadeild, jarðvinnu-
deild, rafmagnsdeild, áætlana-
deild og pípu- og loftræstideild
ásamt teiknistofu og mælinga-
deild. Afganginum af húsnæð-
inu skipta með sér starfs-
mannahald, sem skiptist í
launadeild og tölvudeild, inn-
kaupadeild, kostnaðarbók-
hald svo og forstjórar. Nýleg
tölva frá Digital af Vax gerð er
staðsett í húsinu og sér um alla
meginþætti tölvuvinnslunnar
ásamt fjölda einmennings-
tölva. 44 vinnuherbergi eru í
húsinu og þar starfa um 52 ein-
staklingar um þessar mundir.
Unnið er við frágang lóðar og
áætlað að Ijúka þeim fram-
kvæmdum fljótlega. Öll bíla-
plön eru að fullu frágengin.
Bókun bæjarstjórnar Keflavíkur:
Veröur ekki
tekið við
Landshöfninni?
í Ijósi þeirra staðreynda, að
ekki hefur náðst samkontulag
við stjórnvöld um fjárveiting-
ar til Landshafnar Keflavík-
Njarðvík, vegna nauðsynlegs
viðhalds og framkvæmda, lýs-
ir bæjarstjórn Keflavíkur því
yfir að hún treystir sér ekki til
að veita höfninni viðtöku,
nema orðið verði við óskum
um að ríkisstjórnin útvegi fjár-
magn og greiði eftirfarandi
bráðnauðsynlegar fram-
kvæmdir:
Viðgerð á hafnargarðinum í Kellavik,
áaulaður kostnaður.. kr. 3,0 milj.
Samtenging hafnarsvtcða með vegi,
áætlaður kostnaður.. kr. 21,3 milj.
Dýpkun innsiglingar í Njarðvík, áætl-
aður kostnaður..... kr. 6,9 milj.
Innsiglingarmerki i Njarðvik, áætlaður
kostnaður.......... kr. 2,6 milj.
Alls: kr. 33,8 milj.
Ríkissjóður íslands taki að
sér greiðslu tveggja lána, þ.e.
vegna hafnsögubáts kr. 14,0
ntiljónir (gjaldfallið 1. des-
ember 1989, kr. 1,7 milj.) og
lán í Útvegsbanka Islandssem
er til þriggja ára, eftirstöðvar
ca. kr. 4,5 miljónir.
Það skal tekið frarn, að vil-
yrði hafa verið gefin fyrir yflr-
töku nefndra lána. Staðfest-
ingar er óskað á því.
Þá telur bæjarstjórn Kefla-
víkur óhjákvæmilegt að hðfn-
in njóti framlaga vegna þeirra
framkvæmda og viðhalds,sem
framundan eru á allra næstu
árum og gerð hefur verið grein
fyrir við Samgönguráðuneyt-
ið.
Keflavík, 5. desember 1989.
Guðfinnur Sigurvinsson,
Anna Margréf Guðniundsdóttir,
Gunnar/Jónsson,
Jón Ólafur Jónsson,
Hannes Einarsson,
Ingólfur Falsson,
Garðar Oddgeirsson,
Drífa Sigfúsdóttir,
Magnús Haraldsson.
ÁLAFOSSBÚÐIN
IÐAVÖLLUM 14B, KEFLAVÍK, SÍMI 12790
v
kuldaúlpur á 1200 kr.
á meðan birgóir endast.