Víkurfréttir - 14.12.1989, Side 34
Viðtalið
Siyurður lnnvarsson
mun öru(*}>k'jía ekki
k'^^ja hullann á liilluna
í hráð.
I.jósm.; hbh.
Vikurfréttir
Jólablaö 1989
Keflvíkingar, Suðurnesjamenn
PÓSTUR OG SÍMI
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
PÓSTAFGREIÐSLAN
er opin frá kl. 9-18 mánudaga
til föstudaga.
Tökum á móti erlendum sem
innlendum pósti.
MUNIÐ - Beint í flugvélina.
STÖÐVARSTJÓRI
Hann er af mörgum talinn guðfaðir knattspyrnunnar í Garðin-
um, vann einna ötulast að því að endurvekja starf Knattspvrnufél-
agsins Víðis, að öðrum ólöstuðum. Eins og flestum sem eitthvað
fylgjast með íþróttum ætti að vera Ijóst eru ekki mörg ár síðan
stjarna Víðis fór að skína skært á himnum og Víðismenn stefna enn
hærra, að sögn viðmælanda okkar, sem er Sigurður Ingvarsson, raf-
virki og hreppsnefndarmaður í Garði. Nú fara flestar hans frístund-
ir í að þjálfa litlu pollana í knattspyrnunni en Siggi rafvirki, eins og
hann er yfirleitt kallaður í Garðinum, ætlar með 5. flokkinn til Fær-
eyja á komandi sumri. Blaðamaður kíkti í kaffi til Sigurðar nýverið
og tók hann tali.
Knattspyrnan
var öðruvísi
,,Við strákarnir vorum bún-
ir að leika knattspyrnu á tún-
unum hér i Garði í þrjú eða
fjögur ár áður en við létum til
skarar skríða og endurvöktum
félagsstarfið í Víði. Knatt-
spyrnan á árunum í kringum
1967 var öðruvísi en við eigum
að venjast í dag. Yfirleitt æfð-
um við bara og spiluðum þegar
veður var gott, en eftir að til
endurreisnar félagsins kom
var farið að æfa af fullri al-
vöru.
A þessum tíma var gert
aðeins meira en að spila bara
fótbolta, því við slógum einnig
völlinn þegar þess þurfti með á
knattspyrnuæfingum."
Verður að rækta
yngri flokkana
-Nú hefur þú helgað starf
þitt með knaitspyrnulélaginu
yngri flokkunum. Eru margar
framtíðarstjörnur að stíga sín
fyrstu spor á knattspyrnuferl-
inum hjá þér?
„Það verður að leggja mikla
rækt við yngri flokkana, því
annars stöndum við framrni
fyrir því eftirnokkuráraðeiga
enga meistaraflokka.
Við eigum marga ágætis
stráka í boltanum, sem eiga
eftir að láta að sér kveða í
framtíðinni. Það þurfa að vísu
fleiri aðsýna starfi yngri flokk-
anna meiri áhuga heldur en
gert er í dag og jafnvel gefa sér
meiri tíma til þjálfunar þeirra.
Eitt hefur háð okkur tals-
vert við þjálfun yngri flokka
hjá Víði. Það eru flutningar á
fólki til og frá byggðarlaginu.
Eitt sumarið finnst manni vera
kominn góður hópur stráka i
knattspyrnunni, en þegar
komið er fram á næsta sumar
eru topparnir úr hópnum jafn-
vel fiuttir í burtu og nýliðar
konmir inn í staðinn," svaraði
Sigurður.
Næsta sumar ætlar Sigurður
með strákan í 5. fiokki til Fær-
eyja. Um cr að ræðtt myndar-
legan 20 barna hóp sem ætlar<
að ælá og spila þarytra. Sagði
Sigurður foreldra krakkanna
vera mjög duglega við að fjár-
magna ferðina og nú þegar er
kominn myndarlegur sjóður.
Þá hefur unglingaráð Víðis
einnig unnið vel að þessu máli.
Siggi sagði ferðir sem þessa
vera nauðsynlegar, þær þjöpp-
uðu hópnum betur saman.
Áhrif fyrstu
deildarinnar
-Hvaða áhrif finnst þér það
hafa haft fyrir byggðarlagið,
að meistarafiokkur Víðis náði
þeim áfanga að komast í 1.
deild um árið?
„Vera Víðis í fyrstu deild
þessi þrjú sumur hafði mjög
góð áhrif fyrir byggðarlagið,
þó svo erfitt sé að nefna þau
hér. Þó má segja að Garðurinn
hafi verið með öllu óþekktur
hjá fólki af t.d. höfuðborgar-
svæðinu þar til Víðir fór að láta
að sér kveða i knattspyrnunni.
En félagið varð ekki til á einni
nóttu.
Strákarnir sem nú eru í eld-
línunni hafa í gegnum tíðina
alltaf leikið saman og oft kom-
ist í úrslit í sínum fiokkum. Við
það að félagið náði þetta langt
komu fieiri til starfa hjá félag-
inu og lögðu á sig mikla vinnu
fyrir það, sem verður seint
þakkað."
Guðfaðir
fótboltans
í Garði