Víkurfréttir - 14.12.1989, Side 40
líot ilrt^obcct
Víkurfréttir
Jólablaö 1989
„Piparsteiktur
steinbítur vinsæll"
- Rætt við grindvískan Keflvíking, sem rekur hótel í hjarta
Evrópu, um hótelið, flugið og bófahasar á Duustúninu
íslenskt hótel í hjarta Evr-
ópu, rétt utan við Lúxemborg,
keypt í maí 1988 af hjónunum
Ingibjörgu Sigurðardóttur og
Kristjáni Karli Guðjónssyni,
sem komu frá Akureyri. Hér
suður með sjó eru þau þekkt
sem Inga og Kalli Guðjóns.
Kalli er fæddur i Grindavík
1935, sonur hjónanna Sigrúnar
Kristjánsdóttur og Guðjóns
Klemenssonar, cn fluttist 6 ára
með foreldrum sínum og syst-
kinum til Keflavíkur og þar er
hann alinn upp á Vesturbraut-
inni.
En Karl Guðjónsson hefur
komið nærri fleiru en hótel-
rekstri. Hann hefur verið tengd-
ur fluginu, bæði á Akureyri,
Bíafra, Kanada og víðar. Um
þessi mál öll svo og árin á Vest-
urbrautinni ræðum við nú við
hann, en viðtalið var tekið er
hann dvaldi hér á landi í síðasta
mánuði.
Hótelið
Hótelið er sérstæð og falleg
bygging, byggt 1911 sem hótel
en hefur verið endurbyggt
þrisvar. A stríðsárunum her-
tóku nasistar það og gerðu að
aðsetri sínu. Eyðilagðist það
þá í skriðdrekaárás en var end-
urnýjað fljótlega eftir stríð.
A hótelinu eru 18 rúmgóð
herbergi, öll með baði.sima og
sjónvarpi. Þá er þar glæsilegur
veitingasalur er rúmar 80-100
manns, bar, setustofa og ís-
lenskt yfirbragð. Enda er allt
starfsfólkið, 8 manns auk
þeirra hjóna, Islendingar, að
einni konu undanskilinni. Þvi
er matseðillinn íslenskur og
sama er að segja með blöðin
sem liggja þar frammi og upp-
lýsingaþjónustuna.
-En hvar er hótelið staðsett?
„Það er í 3000 manna bæ,
sem heitir Grevenmacher og er
í um 20 km fjarlægð frá Find-
elflugvelli i Luxemborg og í
um 17 km fjarlægð frá Trier í
Þýskalandi, sem er verslunar-
borg sem íslendingar sækja
mikið.
Hótelið er í Moseldalnum
þó það tilheyri Luxemborg,
svo til á bökkum Moselárinn-
ar, en sá dalur er ákaflega fall-
egur. Er þarna margt að skoða
í nágrenninu."
Aðdragandinn
En hvers vegna skildu þau
hafa farið út í hótelrekstur?
Því svarar Karl með þessum
hætti:
„Það er sennilega til komið
af því að ég var búsettur i Lux-
emborg hér áður fyrr, í ein 5-6
ár. Konan hafði unnið við
hótelrekstur Edduhótelanna í
þrjú sumur og verið veitinga-
stjóri á Loftleiðum þaráðurog
hafði áhuga á að finna eitthvað
í Luxemborg. Þar sem ég var
kunnugur þarna og hún þess-
um málum tvinnaðist þetta
saman.
Vorum við búin að eyða öll-
um okkar fríum í Luxemborg
við að leita að húsnæði, sem
annað hvort mætti breyta í
hótel eða var hótel. Gekk þetta
fremur hægt, þar til að við
fengum okkuraðstoð lögfræð-
ings. Hafði hann upp á þessu
hóteli, sýndi okkurbæklingog
myndir af því, sem hann hafði
fengið hjá kunningja sínum
sem var bankastjóri. Hefur
hann jafnframt séð um fjár-
málin okkar.
Leist okkur strax vel á húsið
eftir að hafa skoðað það.
Keyptum við það síðan með
aðstoð bankans en það hafði
þá verið í leigu. Fengum við
lyklana afhenta 1. maí 1988 og
notuðum tímann fram í miðj-
an júní til að kynna okkur að-
stæður og búa okkur undir
reksturinn. En veitingasöluna
opnuðum við aðeins síðar.
Hefur þetta gengið mjög vel
hjá okkuryfirsumartímannen
dalaði síðasta vetur, enda þá
minna um ferðamenn. Höfum
við hresst upp á húsnæðið, þó
það sé allt í þeim anda er það
var síðast endurbyggt fyrir 17-
18 árum.“
íslenskt hótel
Til þessa hafa flestir gestir
hótelsins verið íslendingar,
enda hótelið rekið með ís-
lensku yfirbragði.
-En hvað þýðir þetta nafn?
„Við ákváðum að halda því
nafni sem var á því er við kom-
um þarna að. Að vísu hét það
áður GrandHotelMetropol, en
síðasti eigandi breytti því í
Hotel Le Roi Dagobert. Það
þýðir konungurinn Dagobert,
sem var franskur og var uppi á
þessu svæði sem konungur
upp úr 600 eftir Krist og þá
sem Dagobert annar.“
-Er eitthvað fyrir Islendinga
að sjá þarna?
,,Já, enda líkarfólki staður-
inn og þá ekki síður rólegheit-
in. Þetta liggur í þjóðbraut
milli Þýskalands, Frakklands
og Belgíu. Stutt er í merkar
fornminjar frá tímum Róm-
verja og á einu aðaltorginu í
bænum er nú unnið að upp-
greftri gamallar borgar. Þá er
þetta í Móseldalnum.
Hafa bæði íslenskir ferða-
menn sem og landar í öðrum
erindagjörðum sótt mikið
hótelið. Eru dæmi um að fólk
hafl pantað eina til tvær nætur
en síðan ílengst í átta til tíu
daga vegna þess hve vel því
hefur líkað.“
Skylmingar í
sjúkrahúsinu
-Ef við vendum okkar kvæði
í kross. Ertu Suðurnesjamaður
í huganum?
„Já, ég er fæddur i Grinda-
vík og fluttist til Keflavíkur 6
ára. Kalla ég mig nú alltaf
Keflvíking, enda er mitt fólk
hér og ég er alinn upp á Vest-
urbrautinni."
-Minnist þú einhvers á þess-
um árum?
„Það kemur ekkert sérstakt
fljótlega upp í huga minn. Á
þessum árum lékum við strák-
arnir okkur saman í ýmsum
leikjum á Duustúninu. Nú fót-
bolti, bófahasar og skylming-
ar í sjúkrahúsinu, sem þá var í
byggingu, er minnisstætt.“
Fórum út
í að byggja
Haustið 1953 byrjaði Kalli í
flugnámi. Til að byrja með
vann hann fyrir hverjum flug-
tíma og fór síðan um helgar til
Reykjavíkur til að reyna að
fljúga einn eða fleiri tíma.
„Þetta gekk þó rólega. Við
bræðurnir fórum út í að byggja
’56, en þá hafði ég hugsað mér
að fara erlendis og klára nám-
ið. Ég hafði lokið bóklega hlut-
anum hér og því hálfnaður. Ég
ætlaði að fara út með tveimur
félögum mínum, en gat ekki
hlaupist frá byggingunni svo
utanförinni seinkaði til vors-
ins ’57, að ég fór til Kanada.