Víkurfréttir - 14.12.1989, Qupperneq 41
Viðtalið
Vikurfréttir
Jólablaö 1989
Karl Guðjónsson, hóteleigandi
Ljósm.: cpj.
Þar gerðist ég innflytjandi,
lærði þar og vann síðan við
flugskóla. Þarna var ég í tvö og
hálft ár. Annars var erfitt að fá
vinnu hjá flugfélögum þar, svo
ég hélt heim á Ieið en þá var
uppgangur hjá Loftleiðum.
Fór ég fyrst niður til New
York, nam þar blindflug og
siglingafræði og var þar í um
hálft ár. Kom síðan heim og
fékk vinnu hjá Loftleiðum.“
Bíafra og Cargolux
„Var ég hjá Loftleiðum til
1969, en þá var Bíafra-ævin-
týrið í gangi og endaði það með
því að ég fór niður til Afríku og
dvaldi þar í tvo og hálfan mán-
uð. Flugið hafði þá legið niðri
eftir að vél frá Rauða krossin-
um hafði verið skotin niður.
Fór flugið aldrei i gang aftur
og því varð þetta bara hangs
hjá okkur þarna niðri í Afríku.
Kom ég síðan heim, en í
millitíðinni flugum við með
vörur frá Evrópu og niður til
Nígeríu eftir að Bíafrastríðinu
lauk. Voru vélarnar, sem
Hjálparstofnun kirkjunnar og
Loftleiðir voru með, síðan
gefnar til Perú og fór ég með í
áhöfn fyrstu vélarinnar sem
fór til Perú.
Þá var komin upp staða hjá
Cargolux, sem var að byrja að
þreifa fyrir sér. Var þegar orð-
ið talsvert að gera og því vor-
um við tveir beðnir um að
koma strax til baka og leysa af
áhöfn hjá Cargolux í óákveð-
inn tíma. Þetta var sumarið
1970 og við urðum þar áfram.
Byrjaði þetta fyrst á því að
flytja vínber frá Kýpur og til
nágrennis Londonar. Síðan
þróaðist þetta úr einni Cargo-
luxvél í fleiri, en þær komu
eins og á færibandi og flugfél-
agið stækkaði mjög ört.“
Flugfélag
Norðurlands
„Síðan kom ég heim og
flaug eitt sumar hjá Vængj-
um.“ Þetta var árið 1978. Arið
eftir fór hann til Flugfélags
Norðurlands á Akureyri og
var þar í 9 ár, en hefur nú feng-
ið launalaust leyfi meðan verið
er að skoða hótelmálið.
-En hvort skildi nú vera
meira gaman, að fljúga á litl-
um vélum eins og á Akureyri
Úr borðsal hótelsins. Ljósm.: Oddur Sigurðsson
eða þeim stóru?
„Það er nú erfitt að segja til
um það. I innanlandsfluginu
eru styttri flug og meira um
flugtök og lendingar og í góðu
veðri lærir maður mikið um
landið. En á stærri vélunum er
þetta lengra flug, en að vísu
kemur maður víða um heim-
inn og því ekki hægt að bera
þetta saman. Þó að vísu sé
mest um flugvelli og hótel sem
maður sér á þessum lengri leið-
um gefst þó stundum tækifæri
til að skoða sig aðeins um.“
Urðum að koma
fólki annars
staðar fyrir
Þegar þau hjónin fóru út í
hótelrekstur reiknuðu þau
alltaf með að þurfa 2-3 ár til að
koma hótelinu í það horf sem
þau vildu hafa það og ná að
auglýsa það upp. „En ég held
að nú sé þetta komið vel á rek-
spöl og því erum við bjartsýn á
framhaldið.
Nágranni okkar er læknir en
hann býr í næsta húsi við
hótelið. Segist hann ekkert
skiija í því, að sá sem rak þetta
á undan okkur talaði frönsku
og þýsku en samt var ekkert að
gera hjá honum. Síðan kom-
um við frá íslandi og tölum
hvorki þýsku ná frönsku en
samt er fullt að gera hjá okkur.
Fannst það merkilegt.
Enda hafa sumrin verið
mjög góð hjá okkur og við höf-
um oft þurft að koma fólki fyr-
ir á öðrum hótelum í nágrann-
abæjum. T.d. kom það fyrir í
sumar, að á sama tíma og allt
var fullt hjá okkur þurfti ann-
að hótel í nágrenninu, sem var
minna og bauð upp á minni
þægindi, að loka vegna þess
hve lítið var að gera hjá þeim.“
Piparsteiktur
steinbítur
-Nú segist þið vera með ís-
lenska kokka og íslenskan
matseðil. Hvað er það sem þið
bjóðið héðan?
„Við erum með allan okkar
fisk frá Vogum h.f. í Vogum
og hann líkar mjög vel. Flytj-
um við hann beint héðan frá
Keflavík. Þó landinn sæki
kannski ekki í fisk á ferðalög-
um eru það ferðamenn frá öðr-
um löndum sem sækja í hann.
Annars er allur matur mjög
vinsæll hjá okkur en pipar-
steiktur steinbítur er þó allra
vinsælasti rétturinn. Það er
bara verst að ekki skuli vera
hægt að kaupa héðan íslenskt
lambakjöt, en það fáum við
ekki,“ sagði Karl Guðjónsson
að lokum.
Eigendur og starfsfólk. lnga og Kalli fyrir miðju. Ljósm.: Skatti Hailgrímsson
Sendum íbúum á Suðurnesjum okkar bestu óskir um
gleðileg jól og farsœlt nýtt ár, - með þökk fyrir ánœgju-
leg viðskipti á liðnu ári.
Aðalstöðin hf.
- þjónusta í 40 ár!_
K