Morgunblaðið - 25.02.2016, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Við sáum tækifæri til þess að standa
faglega að þessari starfsemi, það er
okkar aðalupplegg,“ segir Helgi Ey-
steinsson, framkvæmdastjóri Elju,
nýrrar íslenskrar starfsmannaþjón-
ustu, sem var stofnuð í lok síðasta
árs, en fyrsta starfsfólkið á vegum
þess er á leiðinni til landsins von
bráðar. Helgi segir gríðarlega eft-
irspurn vera eftir vinnuafli í landinu,
sem íslenskur vinnumarkaður muni
ekki ná að anna.
Helgi segir fyrirmyndina að Elju
vera sótta að nokkru leyti til ná-
grannaríkjanna. „Starfsmannaþjón-
ustur gegna þar veigamiklu hlutverki
við að viðhalda sveigjanleika og skil-
virkni á vinnumarkaði,“ segir Helgi.
Hann nefnir sem dæmi að erlendis sé
þjónusta af þessu tagi mikið notuð af
fólki sem þarf meiri sveigjanleika á
vinnumarkaði en gengur og gerist,
s.s. skólafólki, þeim sem þurfa að
brúa bil t.d. í fæðingarorlofi eða þeim
sem þurfa eða vilja öðlast fjölbreytt-
ari reynslu í upphafi starfsferils síns.
Eins og hver annar launþegi
Starfsmannaþjónustu eins og Elju
er best lýst sem milligönguaðila á
milli notendafyrirtækis og starfs-
krafts. Notendafyrirtækið greiðir
Elju fyrir þjónustu sína, sem ræður
starfsfólkið til sín og greiðir því laun.
Jafnframt sér Elja um að ganga frá
öllum tilskildum leyfum og skjölum
sem þurfa að vera til staðar. „Við
sjáum um þetta ferli frá A til Ö,“ seg-
ir Helgi. „Unnin er þarfagreining
með notendafyrirtækinu áður en leit
að tilvonandi starfskröftum hefst.
Þannig finnum við starfsfólk sem er
sérsniðið að þörfum þeirra fyrirtækja
sem notfæra sér þjónustuna.“
Þegar fólk hefur þegið störf fyrir
notendafyrirtækið aðstoðum við fólk-
ið við komuna til landsins og skráum
það hjá Vinnumálastofnun, aðstoðum
við að stofna bankareikninga og
skráum fólkið í stéttarfélag. Við kom-
um málum þannig fyrir að viðkom-
andi starfskraftur verði eins og hver
annar íslenskur launþegi.“ Helgi tek-
ur einnig fram að Elja geti haft milli-
göngu um að útvega starfsfólkinu
húsnæði, auk þess sem fyrirtækið að-
stoði fólkið við að aðlagast lífinu á Ís-
landi. „Það er gríðarlegur mik-
ilvægur þáttur í okkar starfi að
tryggja að þessi aðlögun sé sem best,
því við teljum að það sé allra hagur að
fólkið hafi það sem best meðan það er
við störf hérlendis.“ Meðal annars er
stefnt að því að halda tungumála-
námskeið fyrir starfskraftana, auk
þess sem þeim muni einnig standa til
boða námskeið um lífið á Íslandi og
hvernig það geti notið lífsins hér. „Þá
munum við einnig skipuleggja við-
burði fyrir þá, því að það er mikilvægt
að hlúa vel að þessu fólki.“
Góð samvinna við stéttarfélög
Starfskraftar Elju koma frá ríkjum
Evrópusambandsins, einkum frá
austurhluta þess, svo sem Póllandi og
Eystrasaltslöndunum, „Við viljum út-
vega íslenskum fyrirtækjum hæft
vinnuafl sem er tilbúið til þess að
koma til Íslands og einfaldasta leiðin
til þess er í ríkjum Austur-Evrópu, en
í raun er allt Evrópska efnahags-
svæðið undir og það er mismunandi
eftir verkefnum hvar er best að nálg-
ast fólk.“ Við leggjum mikið uppúr
góðri samvinnu við stéttarfélögin og
höfum leitað mikið til þeirra eftir ráð-
gjöf, til dæmis varðandi kjarasamn-
inga og undirbúning,“ segir Helgi.
Hann bætir við að Elja hafi einnig
rætt við Vinnumálastofnun og Sam-
tök atvinnulífsins um þessi mál. „Við
finnum ekki fyrir neinni tortryggni
frá þessum aðilum, því við höfum
nálgast þá að eigin frumkvæði.“
Helgi tekur fram að gott samstarf
við Vinnumálastofnun sé lykilatriði í
rekstrinum, þar sem alla erlenda
starfsmenn þurfi að skrá hjá þeim áð-
ur en starfsemi þeirra hefst, auk þess
sem allir ráðningarsamningar séu af-
hentir stofnuninni til umsagnar og
þar sé mikil þekking á þessum mál-
um. Það sé því allt uppi á borðum sem
tryggi jafnframt öryggi fólksins sem
kemur hingað til þess að vinna og að
það greiði hér skatta og uppfylli
skyldur sínar á vinnumarkaðnum.
Geti aukið sveigjanleikann
Helgi segir að starfsmannaþjón-
usta eins og Elja geti og eigi að vera
nauðsynlegt tól til þess að auka
sveigjanleika á íslenskum vinnu-
markaði. „Við sjáum fyrir okkur að
áður en langt um líður þá getum við
verið með nokkur hundruð manns á
okkar vegum hið minnsta sem starfi
þvert á allar atvinnugreinar.“
Hæft vinnuafl er allra hagur
Helgi Eysteinsson, framkvæmdastjóri starfsmannaþjónustunnar Elju, segir gríðarlega eftirspurn
eftir vinnuafli Mjög mikilvægt að tryggja að aðlögun erlends starfsfólks að lífinu hér sé sem best
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinna Helgi Eysteinsson, framkvæmdastjóri Elju, segir starfsmannaþjónustur auka sveigjanleika á vinnumarkaði.
Helgi segist ekki hafa áhyggjur af
því að hið nýlega mansalsmál
sem kom upp í Vík muni hafa nei-
kvæð áhrif á starfsmannaþjón-
ustur eins og Elju. „Þetta er mjög
öfgafullt dæmi sem hefði að öll-
um líkindum ekki komið upp ef
þjónusta vinnumiðlunar eða
starfsmannaþjónustu hefði verið
nýtt.“ Hann segir þessa atburði í
raun endurspegla mikilvægi fyr-
irtækja eins og Elju, þar sem allt
sé unnið fyrir opnum tjöldum í
samstarfi við opinbera aðila hér á
landi eins og Vinnumálastofnun
og verkalýðsfélög. Við getum haft
forgöngu um að snúa málum til
betri vegar á vinnumarkaðnum,
meðal annars til að draga úr
svartri atvinnustarfsemi og
sporna gegn því að svona nokkuð
fái þrifist hér á landi.
Allt sé unnið
fyrir opnum
tjöldum
MANSALSMÁLIÐ Í VÍK
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins hefur falið Jóni Viðari Matt-
híassyni slökkviliðsstjóra að ræða
við skipulagsyfirvöld í Reykjavík og
Kópavogi um lóð fyrir nýja slökkvi-
stöð. Nauðsyn
þykir að á næstu
árum verði útbú-
in stöð, þaðan
sem væri fljótfar-
ið til dæmis í
Árbæ og Breið-
holt í Reykjavík
og efri byggðirn-
ar í Kópavogi.
Mál þetta hefur
verið í deiglu í
langan tíma, en á
spýtunni hangir að slökkvistöðinni
við Tunguháls í Reykjavík verði þá
lokað og þjónustan þar veitt frá stöð
á nýjum stað.
„Að tryggja að útkallstími frá stöð
að ákveðnum svæðum fari ekki yfir
tiltekin mörk er útgangspunkturinn
í þessu máli. Einnig þarf slökkvistöð
að vera vel staðsett gagnvart greið-
förnum stofnbrautum. Ýmsir staðir
og lóðir geta hentað samkvæmt
þessu,“ sagði Jón Viðar Matthíasson
í samtali við Morgunblaðið í gær. Í
þessu sambandi nefnir hann til
dæmis Stekkjarbakka í Mjódd,
Jafnasel í Kópavogi og einnig þykir
Smárahverfið í Kópavogi koma til
greina.
Tekur tvö til þrjú ár
Fyrir hrun var bygging slökkvi-
stöðvar í Mjóddinni komin á dag-
skrá, en í ljósi aðstæðna hafi málið
verið lagt til hliðar þá. Nú sé þráð-
urinn tekinn upp að nýju og eðlilegt
sé þá að aðrar staðsetningar, sem
betur gætu hentað, séu skoðaðar nú,
enda hafa aðstæður breyst. Ætla má
að frá því að lóð er fastsett og
ákvörðun um framkvæmdir tekin
líði tvö til þrjú ár þar til ný slökkvi-
stöð er tekin í gagnið. „Ef við mynd-
um hins vegar finna hús á góðum
stað sem hentaði með tilliti til sam-
ganga tæki þetta skemmri tíma,“
segir slökkviliðsstjóri.
Í dag eru fjórar slökkvistöðvar á
höfuðborgarsvæðinu, það er við
Skarhólabraut í Mosfellsbæ, Skútu-
hraun í Hafnarfirði og í Reykjavík
eru stöðvarnar tvær; það er við
Skógarhlíð og Tunguhálsinn – en
þeirri stendur til að loka og færa
starfsemina annað, rétt eins og segir
hér að framan.
Skoða Smára, Mjódd og
Seljahverfi fyrir slökkvistöð
Verði í efri
byggðum nærri
stofnbrautum
Morgunblaðið/Júlíus
Mosfellsbær Nýja slökkvistöðin við Skarhólabraut var tekin í notkun í fyrra.
Liðið þar sinnir útköllum í efstu og nyrstu hverfunum á höfuðborgarsvæðinu.
Jón Viðar
Matthíasson
HVAÐ HENTAR
ÞÍNU STARFSFÓLKI?
Hjá okkur færðu ljúffengan mat
úr fyrsta flokks hráefni.
• Fjölbreytta rétti úr fiski, kjöti og grænmeti.
• llmandi og nýbökuð brauð, rík af korni og fræjum.
• Gómsætar súpur, lagaðar með hollustu að leiðarljósi.
• Brakandi fersk salöt og ávexti.
• Við komum til móts við ykkar óskir
Hringdu og leitaðu tilboða
Sími 515 0702 og 515 0701
kryddogkaviar@kryddogkaviar.is