Morgunblaðið - 25.02.2016, Side 53

Morgunblaðið - 25.02.2016, Side 53
53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016 Frakkastígur Húseigendur vita flestir að þeir verða að halda eignum sínum við og sumir eru lagnari en aðrir með penslana og sinna verkinu af alúð enda skiptir miklu að vandað sé til verka. Styrmir Kári Neikvæð umræða um störf sjálfstætt starfandi sér- fræðilækna á „stofu út í bæ“ er nú enn einu sinni farin af stað. Gagnrýnin kem- ur enn sem fyrr að- allega frá nokkrum heilsuhagfræðingum og forystu ASÍ ásamt ýmsum stjórn- málamönnum á vinstri vængnum, en athygli vekur að þeir sem helst njóta þjónustu þessara lækna hafa ekki tekið undir. Gagnrýnin hefur iðulega ekki byggt á mikilli þekkingu um eðli þjónustu sérfræðilækna, kostnaði við hana né á samanburði við aðra heilbrigðisþjónustu. Því langar mig til að varpa ljósi á vissar hlið- ar málsins eins og ég þekki þær best. Hafa ber í huga að þjónusta í heilbrigðisgeira lýtur sömu lög- málum og önnur þjónusta að því leyti að gæði, framleiðni og hag- kvæmni ráða miklu um val neyt- enda, sem í þessu tilviki eru bæði skjólstæðingar lækna og sjúkra- tryggingar. Mismunandi sérfræðiþjónusta Þjónusta sérfræðilækna utan spítala er með ýmsu móti. Flestir læknanna eru einyrkjar, sem vinna sem sjálfstæðir verktakar á stofu. Örfáir reka stór fyrirtæki eins og Röntgen Domus Medica eða blóðrannsóknarstofur o.fl. Enn aðrir gera allstórar og flókn- ar aðgerðir á skurðstofum utan spítala, svo sem skurðlæknar, bæklunarlæknar o.fl. Læknarnir starfa skv. þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands og er samningurinn gegnsær, allt um kostnað vegna launa og rekstrar eru uppi á borðum – ólíkt því sem er í opinberri þjónustu í heilsu- geiranum, þ.e. í heilsugæslu og á spít- ölum. Ég hef afar góða reynslu af þjónustu sjálfstæðu röntgen- og blóðrannsókn- arstofanna og tel mjög líklegt að þær séu ekki aðeins hag- kvæmar í rekstri fyrir samfélagið heldur létti þær um leið miklu álagi af Land- spítalanum um leið og gæði þjónustunnar sé sambærilegt. Það sama á við þær skurðaðgerðir, sem gerðar eru ut- an spítala, þjónustan er góð og hagkvæm. Það stendur upp á gagnrýnendur að sýna fram á ann- að. Ódýr sérfræðilæknisþjónusta Hinir eiginlegu einyrkjar sér- fræðinga á „stofu út í bæ“ eru þó langflestir. Þeir leigja litlar stofur á misstórum læknastöðvum þar sem þeir stunda lækningar sínar. Það er líklega þessi hópur, sem átt er við þegar rætt er um „dýra sérfræðilækna á stofu úti í bæ“, sem hrifsi til sín fjármuni, sem betur væru notaðir í annað og sagt að nær væri að loka á starf- semi læknanna og stýra fólki til heilsugæslulækna í staðinn. Þess- ar fullyrðingar hafa ekki verið vel rökstuddar, en spyrja má: Eru þær breytingar raunhæfar eða hagkvæmar og síðan – verður þjónustan við hina veiku þá betri? Lítum fyrst á það hvort breyt- ingar séu raunhæfar. Svarið er einfaldlega nei, hvorki heilsugæsl- an né Landspítalinn eru í stakk búin til að taka við fleiri verk- efnum og ráða raunar varla við ástandið eins og það er núna. Hvað þá með hagkvæmni út frá greiðslum vegna þjónustu lækna? Heildarkostnaður við komu ein- staklings til sérfræðinga í lyflækn- ingum er 7.891 kr. fyrir „skoðun og viðtal“ án frekari inngripa eða rannsókna, en þetta er sambæri- legt við komu til heilsugæslulækna (innifalið eru lyfseðlar, tilvísanir o.fl.). Heildarkostnaður við komu til heilsugæslulækna hefur ekki legið ljós fyrir, en vitað er að ósjúkratryggðir þurfa að greiða 9.000 kr. fyrir komu til heilsu- gæslulækna í dagvinnu (en 13.000 kr. eftir kl. 16). Þar sem ég ætla að gefa mér það að hið opinbera okri ekki á veiku fólki hljóti þess- ar tölur að endurspegla raunveru- legar kostnaðartölur á bak við hverja heimsókn. Heildarkostn- aður við komu til heilsugæslu- læknis er sem sé talsvert hærri en hjá „dýru sérfræðingunum“. Fyrir hverja komu til sérfræð- ingsins greiðir einstaklingurinn sjálfur 6.576 kr., en sjúkratrygg- ingarnar greiða aðeins 1.314 kr. Fyrir sams konar komu til heilsu- gæslulæknis greiðir einstaklingur með sama vandamál aðeins 1.200 kr., en hið opinbera greiðir mis- muninn eða 7.800 kr. Það er rúm- lega fimm sinnum meira en fyrir komu til sérfræðings! Því má bæta við að greiðslur til sérfræðilækna hækka ekki eftir kl. 16, en hjá heilsugæslulæknum hækkar gjald- ið úr 9.000 kr. í 13.000 kr. eins og áður sagði. Af þessari úttekt á kostnaði við komur til heilsugæslulækna ann- ars vegar og til sérfræðilækna hins vegar má sjá að hið opinbera sparar miklar fjárhæðir vegna hverrar komu einstaklings til sér- fræðings „á stofu út í bæ“ miðað við það að hinn sami leiti til heilsugæslulæknis. Með því að stýra fólki meira til heilsugæslu- lækna – eins og sumir kalla eftir – myndi heildarkostnaður hins op- inbera vegna heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa því aukast mikið. Sú stýring á sér þó stað nú þegar með því að hið opinbera nið- urgreiðir komur til sérfræðilækna margfalt minna en komur til heilsugæslulækna. Þetta var um hagkvæmnina, en hvað þá um gæðin? Er líklegt að einstaklingur með verk í maga fái betri þjónustu á heilsugæslu en hjá meltingarsérfræðingi? Hvað um augnvandamál, bakverki, hjartveiki, geðsjúkdóma o.fl. Ætli þjónustan sé betri hjá heilsu- gæslulækni en hjá sérfræðingi á viðkomandi sviði (sem eins og áð- ur sagði er þar að auki ódýrari fyrir samfélagið)? Ég tek það þó fram að það er fjarri mér að gera lítið úr menntun og þjónustu ís- lenskra heilsugæslulækna, sem vinna mikið og gott starf á sínu sviði. Mikil eftirspurn En þótt fólk sé neytt til að greiða miklu hærra gjald fyrir þjónustu sérfræðilækna vegna lé- legra sjúkratrygginga fyrir hana, þá leita samt margir beint til sér- fræðilæknanna. Fólk virðist sem sé tilbúið til að greiða heilmikið aukalega fyrir þjónustu þeirra. Af hverju skyldi það nú vera? Jú, vit- að er að heilsugæslan er víða vanbúin vegna læknaskorts og biðtími er oft langur, en hluti skýringarinnar gæti líka legið í því að fólk treystir því að sér- fræðilæknirinn hafi meiri þekk- ingu á sínu sérsviði en heilsu- gæslulæknirinn. Um leið mun viðkomandi einnig vita hvaða læknir muni sinna þeirra vanda, sem því miður er ekki alltaf raun- in við komur á heilsugæslustöðvar þar sem einn læknir leysir annan af, – „maður hittir næstum aldrei þann sama og síðast“ er sagt. Annar valkostur Annar valkostur til að veita Ís- lendingum sérfræðilæknisþjónustu er sá að þvinga sérfræðinga til að vinna eingöngu á göngudeildum sjúkrahúsanna eins og liggur í orðum landlæknis, sem gert hefur harða hríð að sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum. Litlar líkur eru á því að það myndi auka skilvirkni eða gæði þjónustunnar – hvað þá að gera hana fjárhagslega hag- kvæmari. Mér er ekki kunnugt um raunkostnað fyrir hverja komu til lækna á göngudeildum Landspít- alans, en tel víst að hann sé langt- um hærri en 7.891 kr. Vandi sérfræðilæknis- þjónustunnar Eins og sjá má hér að ofan felst vandi þjónustu sérfræðilækna ekki í miklum kostnaði, lélegum gæð- um né lítilli skilvirkni. Þvert á móti. Eins og áður sagði – al- menningur hefur ríkulega viljað notfæra sér þjónustu sér- fræðilækna á stofu þótt hún kosti hann meira vegna lítillar nið- urgreiðslu sjúkratrygginga. Vand- inn liggur hins vegar í því – eins og á Landspítalanum og í heilsu- gæslunni – að það eru alltof fáir læknar í boði og því hafa biðlistar eftir þjónustu sérfræðilækna auk- ist óhóflega og í sumum sér- greinum horfir það til mikilla vandræða. Það skýtur því skökku við að Sjúkratryggingar hafa nú tekið fyrir það að nýir sér- fræðilæknar fái að hefja störf á þessum vettvangi og að land- læknir skuli vega að starfsemi sjálfstætt starfandi sérfræðilækna í kór með heilbrigðishagfræð- ingum, forystu ASÍ og ýmsum fulltrúum vinstriflokkanna. Eftir Árna Tómas Ragnarsson » Vandinn liggur hins vegar í því ... að það eru alltof fáir læknar í boði og því hafa biðlistar eftir þjónustu sér- fræðilækna aukist óhóf- lega og í sumum sér- greinum horfir það til mikilla vandræða. Árni Tómas Ragnarsson Höfundur er sjálfstætt starfandi sérfræðilæknir. Sjálfstæðir sérfræðilæknar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.