Morgunblaðið - 25.02.2016, Síða 73

Morgunblaðið - 25.02.2016, Síða 73
MINNINGAR 73 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016 ✝ Birgir Jakobs-son fæddist 17. janúar 1932 í Reykjavík. Hann lést á Hrafnistu, Boðaþingi, 15. febr- úar 2016. Foreldrar hans voru Jódís Bjarna- dóttir, f. 9. sept- ember 1907, d. 20. október 1975, og Jakob Ferdinant Jakobsen, f. í Noregi 7. maí 1894, d. um 1960. Stjúpfaðir Birgis var Sigurbjarni Tómasson, f. 30. jan- úar 1908, d. 7. maí 1957. Hálf- systir Birgis, sammæðra, er Sig- urbjörg Sigurbjarnadóttir, f. 2. október 1945, stjúpsystkini aldri til starfsloka starfaði Birgir hjá Pósti og síma. Þann 15. október 1955 kvænt- ist Birgir Ragnhildi Vilhjálms- dóttur, f. í Reykjavík 22. júlí 1934. Börn þeirra eru a) Emil, f. 2. maí 1953, kvæntur Hildi Ásu Benediktsdóttur, f. 6. júlí 1948, börn: Sigurbjörn Þór, látinn, og Valdís, b) Bjarni, f. 24. október 1956, kvæntur Dóru Þórisdóttur, f. 6. júní 1963, börn: Ragnhildur Halla, Auður Dögg, Birgir og Ragnheiður, c) Jódís, f. 23. mars 1962, d) Vilhjálmur, f. 24. sept- ember 1963, kvæntur Þóreyju Halldórsdóttur, f. 6. september 1969, börn: Halldór Jens og Vil- hjálmur, barnabarnabörn Birgis og Ragnhildar eru fimm talsins. Útför Birgis fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 25. febr- úar 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. Birgis eru Þór- mundur Sigur- bjarnason, f. 6. des- ember 1931, og Helga Ólöf Sig- urbjarnadóttir, f. 13. ágúst 1934. Birgir ólst upp fyrstu ár ævi sinnar að Bjarmalandi við Laugarnesveg hjá fósturforeldrum sínum, Emil Johan Rokstad, f. 19. júní 1875, d. 25. apríl 1963, og Jóhönnu Rokstad, f. 4. nóvember 1887, d. 24. júlí 1977. Þegar Birgir er tólf ára flytur hann ásamt móður sinni, stjúpa og stjúpsystkinum að Laugavegi 27. Frá sautján ára Í dag er borinn til hinstu hvílu elskulegur tengdafaðir minn, Birgir Jakobsson, sem lést á Hrafnistu, Boðaþingi, 15. febrúar sl. Allt frá því að ég kom inn í fjölskyldu Birgis og Döddu, hefur Birgir reynst mér og börnum mínum afar vel og verið okkur góður tengdafaðir og afi. Langri og farsælli ævi er lokið og að leiðarlokum þakka ég góð- ar samverustundir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Blessuð sé minning míns kæra tengdaföður. Dóra. Afi Jakobsson, eins og við systkinin kölluðum hann, var yndislegur maður og góður afi. Við systkinin eyddum ófáum stundum hjá þeim afa og ömmu í Hófgerðinu á yngri árunum og var það hápunkturinn þegar við fengum að gista hjá þeim og eyða helginni í Kópavoginum. Við vorum alltaf velkomin og kvöddum við ávallt með bros á vör og fullt fang af sætindum. Afi var rólegur maður og var nærvera hans alltaf ánægjuleg. Ófáar stundirnar fóru í það að hlusta á útvarpið og spila olsen olsen við hann afa. Afi var ávallt forvitinn um gang mála hjá okk- ur systkinunum og studdi hann við bak okkar alla tíð og var til staðar bæði þegar vel gekk og illa. Elsku afi, við biðjum Guð að geyma þig og varðveita. Megir þú hvíla í Guðs friði. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra (Bubbi) Þín barnabörn, Birgir og Ragnheiður. Það er aldrei auðvelt að kveðja, þó svo aðdragandinn hafi verið langur. Í dag kveðjum við afa minn, Birgi Jakobsson, sem hefur verið stór hluti af lífi mínu alla tíð. Það eru margar ljúfar og góðar minningar sem hafa komið upp í hugann síðustu daga, þakklæti er mér efst í huga. Ég var svo lánsöm að fá að eyða ófáum stundum í fallega húsinu þeirra ömmu og afa í Hófgerðinu, þar leið mér vel. Alltaf var ég velkomin á heimilið þeirra og alltaf veittu þau mér ómetanlegan stuðning og hvatn- ingu í lífinu, fyrir það er ég þakklát. Ég gái út um gluggann minn hvort gangir þú um hliðið inn. Mér alltaf sýnist ég sjái þig. Ég rýni út um rifurnar. Ég reyndar sé þig alls staðar. Þá napurt er, það næðir hér og nístir mig. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Það er lífsglöð lítil stelpa sem heyrir bíl koma inn innkeyrsl- una, hún teygir sig upp á eld- húsbekkinn svo andlitið rétt nær upp fyrir gluggakistuna, að hús- inu rennur glæsilegur, nýbón- aður bíll. Hún stekkur af stóln- um og hleypur að útidyrahurðinni, það passar akk- úrat að þegar hún stendur við hurðina kemur hár, grannur og myndarlegur maður á móti henni sem segir brosandi. „Ertu þarna, Halla mín?“ Brosið svo stórt og fallegt. Þetta eru fyrstu minningabrotin mín af afa mín- um elskulegum. Þau eru ófá minningabrotin sem fylgja á eft- ir, sýningarvél í stofunni, Gúll- iver í Putalandi, afi kunni að búa til bíó. Ferðir á Þingvelli með nesti og kaffi í brúsa. Ófáar úti- legur í tjaldvagninum. Ferðir í pylsuvagninn, já, þennan eina sanna. Ég vil heiðra minningu þessa mæta manns með einu vinsælasta dægurlagi síðustu aldar, textinn finnst mér lýsandi um þau minningabrot sem hafa komið upp í hugann síðustu daga. Vegir liggja til allra átta, enginn ræður för, hugur leitar hljóðra nátta, er hlógu orð á vör og laufsins græna á garðsins trjám og gleðiþyts í blænum. Þá voru hjörtun heit og ör og hamingja í okkar bænum. Vegir liggja til allra átta á þeim verða skil margra’ er þrautin þungra nátta að þjást og finna til og bíða þess að birti’ á ný og bleikur morgunn rísi. Nú strýkur blærinn stafn og þil, stynjandi í garðsins hrisi. (Indriði G. Þorsteinsson) Hvíl í friði, elsku afi minn, ég mun ávallt varðveita minningu þína í hjarta mér. Þín sonardótt- ir, Ragnhildur Halla. Birgir Jakobsson ✝ Ásta Þorvarð-ardóttir fædd- ist á Siglufirði 17. júlí 1929. Hún lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, 13. febrúar 2016. Foreldrar henn- ar voru Þorvarður Tómas Stefánsson, byggingarfulltrúi á Siglufirði, f. 15. október 1900, d. 30. júlí 1979, og Guðrún Pálsdóttir, húsmóðir, f. 15. desember 1909, d. 29. desem- ber 1994. Systkini Ástu eru: Drengur, f. 13. mars 1932, d. 19. júlí 1932, Stefán Þorvarðarson, f. 9. októ- ber 1935, Vilborg Þorvarð- ardóttir, f. 18. október 1944, d. 2. ágúst 1992. Ásta giftist 25. maí 1953 Þor- valdi Vigfússyni (Bóa í Holti), f. 24. janúar 1929, d. 16. septem- ber 2002. Börn Ástu og Bóa eru Guðrún Linda, f. 3. janúar 1953, Valgerður, f. 10. júní 1955, maki Ola Ka Naa, f. 18. september 1956, Þorvarður Vigfús, f. 20. nóvember 1956, d. 9. janúar 2015, maki Guðrún Bjarný Ragnarsdóttir, f. 6. októ- ber 1959, Jóhanna Erla, f. 25. september 1960, Hannes, f. 5. júní 1969, maki Anna M. Sívert- sen, f. 26. febrúar 1966, og Björk, f. 31. desember 1973, maki Hjalti Erdmann, f. 4. sept- ember 1972. Ömmubörnin eru alls 18 og langömmubörnin 20. Útförin fer fram frá Grafar- vogskirkju í dag, 25. febrúar 2016, kl. 13. Elsku besta amma mín. Mikið á ég eftir að sakna þín. Þú varst allt- af svo góð og yndisleg. Falleg að utan sem innan og með hjarta úr gulli. Þú kenndir mér svo margt, t.d. að leita alltaf eftir því besta í fari annarra, tala fallega um náungann og koma jafnt fram við alla. Þú varst mjög trúuð og alltaf þegar ég gisti hjá þér sem barn fórum við saman með bæn fyrir svefninn. Betri manneskju hef ég ekki kynnst á minni ævi. Þú áttir alltaf til falleg og uppbyggileg orð handa öllum. Þegar ég var yngri fannst mér alltaf sem þú og afi byggjuð í höll. Heimilið ykkar var svo fallegt. Allt svo fínt og flott. Þú alltaf svo glæsileg, með uppsett hárið og fallega klædd. Þú varst alltaf svo virðuleg, gæti hafa verið konungborin. Ég á svo margar góðar minn- ingar um þig. Gleðilegu jólin á Hólagötu 43, utanlandsferðirnar okkar, fallega verðlaunagarðinn þinn, góða matinn sem þú bjóst til og frábæru kökurnar. Debbie vin- kona frá Bandaríkjunum talar ekki um annað en fallegu og góðu ömmu mína sem töfraði fram hverja kökuna á fætur annarri. Hún hefur aldrei séð aðrar eins kræsingar. Það var alltaf svo gam- an að koma til þín. Þú tókst alltaf svo vel á móti mér og fjölskyldu minni. Börnin mín dýrkuðu þig enda ekki annað hægt. Þú áttir alltaf til falleg orð í eyru og kær- leikurinn og ástin skein alltaf í gegn. Þú varst svo stolt af börn- unum þínum, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarna- börnum. Herbergið þitt á Hraun- búðum var þakið myndum af fal- legu fjölskyldunni þinni. Þú varst svo stolt. Sagðir alltaf, ekki nóg með að öll börnin mín séu góð og dugleg heldur er ég svo heppin að þau eru líka öll einstaklega falleg, sem er svo satt. Þau eru öll falleg að innan sem utan eins og þú elsku amma mín. Þú hefur gert heiminn betri með veru þinni hér. Góðvild þín, húmor og kærleikur lifir áfram í afkomendum þínum. Ástarkveðja til þín elsku amma mín. Ég mun alltaf elska þig og minningu þína. Það er við hæfi að kveðja þig með bæninni sem við fórum með saman þegar ég var barn. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Prestshólum) Minning þín mun ætíð lifa í hjarta mínu. Fjölskyldu, ættingjum og vin- um sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þitt barnabarn, Jóhanna. Kveðja til ömmu Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Við elskum þig af öllu hjarta Ásta amma og minningarnar um þig munu lifa með okkur alla tíð. Kveðja, Ísak Andri, Sara Dögg, Silja Karen, Styrmir, Sigríður Elva, Tinna Rut og Ásta Petrea. Elsku langamma. Þú varst alltaf svo falleg og góð. Við eigum eftir að sakna þín mikið en huggun okkar er sú að þú ert nú hjá langafa og Varða á himn- um. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Takk fyrir allar góðu stundirn- ar. Við elskum þig og söknum þín. Þín barnabarnabörn, Aron Yngvi , Leifur Bergmann og Lovísa Ósk. Ásta Þorvarðardóttir ✝ Lárus MikaelMagnússon var fæddur í Reykjavík 14. júní 1947. Hann lést 9. febrúar 2016 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi. Foreldrar hans voru Anna Sigurbjörg Lár- usdóttir frá Efri- Vaðli á Barða- strönd, f. 11. sept- ember 1914, d. 3. mars 1997, og Magnús Jónsson frá Selalæk, f. 8. júlí 1893, d. 19. júní 1959. Lár- us átti stóran systkinahóp. Al- systkinin voru níu og var hann sá sjötti í aldursröð þeirra, hin eru Hilmar Thorberg (látinn), Aðalheiður, Ágústa Jóna (látin), Magnús, Jóhanna, Jónína Rann- veig, Kristinn Janus og Hrafn- hildur Bergljót. Auk þeirra ól- ust upp á heimilinu fjögur börn Magnúsar af fyrra hjónabandi hans og Aðalheiðar Jennýjar Lárusdóttur, móðursystur Lár- usar sem látist hafði 1937, þau eru: Sigurður A., Sverrir, Lára Jónína og Rafn (látinn). Önnur systkini Lárusar samfeðra sem upp komust voru Birgir Thor- berg, Magnea Hulda, Bergþóra, Hlín, Óskar Bert- els, Garðar Norð- fjörð, Axel Hólm (öll látin). Þrír hálf- bræður samfeðra létust í frum- bernsku. Sonur Lárusar er Gunnar Már Lárusson, f. 3. maí 1991. Lárus gekk í Laugarnesskóla sín barna- og unglingsár og var svo tvo vetur í framhaldsskóla. Íþróttir stundaði hann nokkuð á yngri árum. Lárus varð snemma áhugamaður um hesta, enda átti faðir hans þá ófáa, og varð þeim handgenginn, enda mikill dýra- vinur og náttúrubarn í eðli sínu. Lárus stundaði sjómennsku um tíma, bæði á togurum og minni bátum. Síðustu störf hans voru meðal annars í fyrirtækjum sem þjónuðu ökutækjum. Útför Lárusar Mikaels fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Í dag kveð ég vin minn og frænda, Lárus Mikael Magnús- son. Hann hafði átt við erfið veik- indi að stríða í nokkurn tíma, þrátt fyrir þá vitneskju kom kall- ið mér á óvörum. Ég hafði heim- sótt hann á líknardeildina daginn fyrir andlátið, þá var af honum dregið en Lárus gerði að gamni sínu, við horfðum saman á fót- bolta í sjónvarpinu, flettum bók- um og rifjuðum upp ýmislegt frá æskuárum okkar í húsi ömmu og afa við Suðlandsbraut og síðar á Skúlagötunni. Lárus hafði gaman af að segja sögur, hann hafði yndi af góðri tónlist og átti um tíma magn af plötum með Elvis Presley og Bítlunum og fleiri. Oft var það svo ef maður heyrði í honum í síma að ómurinn af Presley náði í gegn. Hann hafði ágæta kímni- gáfu og gerði grín að sjálfum sér. Lárus var barngóður maður og var vinmargur. Systkini Lárusar hafa verið honum hjálpleg í veik- indum hans og kunni hann vel að meta kærleika þeirra og hjálp- semi. Ég vil þakka Lárusi fyrir samfylgdina, veit að vel verður tekið á móti honum eins og hann orðaði sjálfur við mig, þau bíða mín öll þarna og taka á móti mér. Við Jón Konráð sendum systk- inum hans og öðrum ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Lárusar Mikaels Magnússonar. Sigurborg Sveinbjörnsdóttir (Sísí). Lárus Mikael Magnússon Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein“, valinn úr felli- glugganum. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG ÓSKARSDÓTTIR, Gullsmára 9, Kópavogi, lést á Landspítalanum við Fossvog fimmtudaginn 11. febrúar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 26. febrúar klukkan 14. . Hreinn Sveinsson Svanhildur Sigurjónsdóttir Bylgja Björk Guðmundsd. Bragi Ingvason Óskar Karl Guðmundsson Helga Guðný Jónsdóttir Vilhelm Guðmundsson Gunnbjörn Guðmundsson Kristjana Möller Sigurbjörn L. Guðmundsson Halldóra S. Sigurþórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur bróðir minn, AXEL WILHELM CARLQUIST eðlisfræðingur, lést 17. febrúar síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til starfsfólks 13E á Landspítala við Hringbraut fyrir alúð og umönnun. . Kristín Salóme Karlsdóttir og fjölskylda.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.