Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður | Sími 560 4300 | saltkaup.is
Sorppokar, Hnútapokar og Burðarpokar
fyrir verslanir og önnur fyrirtæki
Plastpokar
Salt - Umbúðir - Íbætiefni
Ný heim
asíða
Kaos og kraftur. Þetta eru fyrstu orð-
in sem koma í huga hollenska ljós-
myndaranum Martin Roemers þegar
hann er beðinn um að lýsa fjölmenn-
ustu stórborgum jarðar.
Á undanförnum árum hefur Roe-
mers ferðast milli þessara borga og
myndað mannlífið, í raun mann-
þröngina og umferðina, á sérstakan
hátt – á tíma. Því eru hlutar mynd-
efnisins ætíð á fleygiferð meðan sum-
ir vegfarendur staldra við og eru
frosnir í tíma og minna þannig á
fyrstu þekktu ljósmyndina af manni;
sá stóð nógu
lengi hjá skó-
burstaranum á
Boulevard du
Temple í París
árið 1838 til að
mynd hans
greyptist á plötu ljósmyndarans,
L.J.M. Daguerre, sem ári síðar
kynnti uppfinningu sína opinberlega
og er fyrir vikið kallaður faðir tækn-
innar, á meðan allir aðrir kringum
hann á strætinu voru á svo mikilli
ferð að þeir enduðu sem einskonar
reykur í fortíðinni.
Þótt lögmálin að baki ljósmyndun
séu enn þau sömu og hjá Daguerre er
tæknin orðin meðfærilegri og Roe-
mers beitir þeirri stafrænu og setur
vél sína upp á þrífæti á mannmörgum
stöðum stórborganna; á gatnamót-
um, lestarstöðvum, í almennings-
görðum, rammar vel inn, horfir, bíður
og smellir af. Svona líta stórborgirnar
út – verða þær líka svona í framtíð-
inni? Kaos og kraftur?
Meirihlutinn í borgum
Að mati spámanna Sameinuðu
þjóðanna munu um sjötíu prósent
jarðarbúa vera búsett í borgum árið
2015. Í því úrvali ljósmynda Roemers
sem birtist í nýrri bók hans í stóru
broti, Metropolis, sem þýska forlagið
Hatje Cantz gefur út, getur að líta
mannþröngina á mörkuðum í Djak-
arta í Indónesíu, Karachi í Pakistan
og Dhaka í Bangladess; fólk bíður á
gatnamótum þar sem bílar bruna hjá
í New York, Rio de Janeiro í Brasilíu
og Beijing í Kína; og athyglisvert er
að sjá í ösinni í Lagos í Nígeríu og
Kaíró í Egyptalandi hvar hópar
manna krjúpa við bænir, og láta
hamaganginn ekkert trufla. Þá sýnir
ein rólegasta ljósmyndin, þar sem
hvorki farartæki né menn eru að
þjóta neitt, nokkuð sem blasir við
þeim sem ferðast um með ströndum
Indland snemma morguns: hún sýnir
fjöru við Mumbai og þegar vel er
skoðað má sjá hér og þar menn á
hækjum sér, að hægja sér.
Skynjað frekar en séð
Við gerð þessarar áhugaverðu
myndraðar ákvað Martin Roemer að
ljósmynda aðeins í borgum með
meira en tíu milljónir íbúa, þar sem
fólk býr iðulega við afar erfiðar að-
stæður í miklum þrengslum. Í ljós-
myndunum birtast ákveðnar öfgar
þessara aðstæðna, þar sem farartæki
og fólk á ferð breytast í hálfgerð ský,
eru skynjuð frekar en séð. Sums
staðar sefur fólk milli þeirra sem
þjóta hjá, situr og spjallar, falbýður
vörur eða þjónustu; þetta fólk er í
sínu daglega lífi í mannþrönginni og
er lesið inn í minniskort myndavél-
arinnar, rétt eins og maðurinn var
greyptur í málmplötuna í ljósmynd
Daguerre þar sem hann valdi að láta
bursta hjá sér skóna þær mínútur
þegar ljósmyndarinn opnaði linsu
sína, svo hann festist á mynd og steig
á þann hátt inn í eilífðina, fyrstur
manna. efi@mbl.is
Augnablik úr mannmergðinni
Hollenski ljósmyndarinn Martin Roemers fangar hraðann og þrengslin í stórborgum jarðar
Ljósmyndir/Martin Roemers
Bangladess Nýi markaðurinn í Dhanmondi-hverfinu í Dhaka Argentína Á torginu Plaza de Mayo í Barrio de Monserrat í Buenos Aires.
Japan Einhver fjölförnustu gatnamót á jörðinni eru þessi í Shibuya-ku hverfinu í Tókýó, það sem Roemers myndaði árið 2013.
Katalónsk-spænski rithöfundurinn
Jordi Pujolá spjallar í dag,
fimmtudag kl. 16.30, um bók sína
Necesitamos un
cambio. El sueno
de Islandia á
Icelandair hótel
Marina Reykja-
vík við Mýr-
argötu. Bókin
gerist að hluta
til á Íslandi og
nefnist hún á ís-
lensku Við þurf-
um breytingu.
Íslenski draumurinn. Jordi, sem er
hagfræðingur að mennt, skrifaði
hana eftir að hann flutti hingað til
lands fyrir þremur árum. Hann
mun spjalla um bókina, ritstörf sín
og lífið á Íslandi. Einnig mun
hann lesa stuttlega úr bókinni.
Viðburðurinn fer fram á ensku og
spænsku.
Jordi Pujolá fjallar
um skáldsögu sína
Jordi Pujolá
Stockfisk-kvikmyndahátíðin stendur
nú yfir í Bíó Paradís við Hverfisgötu.
Í dag, fimmtudag klukkan 13.30-15,
verður dagskráin „verk í vinnslu“ og
er frítt inn. Þar gefst aðstandendum
kvikmyndaverka sem ekki eru tilbú-
in til sýningar tækifæri til að kynna
verk sín fyrir innlendum og erlend-
um fjölmiðlum og fagaðilum í kvik-
myndagerð. Fimm til 15 mínútna
myndbrot úr verkum verða sýnd og
að því loknu taka aðstandendur
myndanna við spurningum úr sal.
Klukkan 16 til 17 verða pallborðs-
umræðurnar „Big stories – little
countries: How to reach the world
with stories in a language spoken by
few?“ Þátttakendur eru tvær eist-
neskar kvikmyndagerðarkonur,
tveir baskneskir kollegar þeirra og
íslenskur framleiðandi.
Á föstudag verða aftur pallborðs-
umræður kl. 14 til 15: „Meet the
Estonians“. Þátttakendur eru hópur
eistneskra kvikmyndagerðarmanna
og munu þau ræða um reynslu sína í
kvikmyndagerð í Eistlandi og við ís-
lenska framleiðendur um þeirra
reynslu. Kl. 18 til 19 verður síðan
dagskráin „Masterklass: Midpoint“,
masterklassi um handritaskrif með
reyndum handritshöfundum frá
Mið- og Austur-Evrópu.
Umræður og kynning á
nýjum verkum á Stockfisk
Son of Saul Leikmyndahönnuður
ræðir við áhorfendur annað kvöld.