Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 69
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ævintýri Svanhvít Friðriksdóttir leggur til að fólk noti sömu ferðina til að skoða San Francisco og Los Angeles. Má
fljúga til annarar borgarinnar og aftur heim frá hinni og margt skemmtilegt að sjá þegar ekið er á milli borganna.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það þóttu mikil tíðindi þegar WOW
air tók að fljúga vestur um haf. Svan-
hvít Friðriksdóttir, upplýsinga-
fulltrúi flugfélagsins, segir að með
nýju flugleiðunum hafi t.d. verð á
flugmiðum til Boston lækkað um
30%. „Aukin samkeppni hefur
greinilega komið sér vel fyrir land-
ann,“ segir hún og bætir við að flogið
sé á Airbus A321 vélum til austur-
strandarinnar og Airbus A330 breið-
þotum til vesturstrandarinnar.
Sætanýtingin í Ameríkuflugi WOW
air var um 90% á síðasta ári og búist
er við svipaðri nýtingu á þessu ári.
Núna bætast við fleiri áfanga-
staðir í Bandaríkjunum. Mun WOW
air fljúga til San Francisco og í
fyrsta skipti verður boðið upp á beint
flug frá Keflavík til Los Angeles.
Svanhvít segir báðar vesturstrand-
arborgirnar mjög skemmtilegar
heim að sækja og upplagt að haga
ferðinni þannig að flogið sé út til San
Francisco og heim frá Los Angeles
eða öfugt.
Matur, menning og dular-
fullur íslenskur þjónn
„San Francisco hefur á sér ann-
an brag en aðrar bandarískar borgir,
með sporvagnana á götunum, evr-
ópskt yfirbragð á byggðinni og þekkt
kennileiti eins og hafnarhverfið og
Golden Gate-brúna. Þetta er líka
áfangastaður fyrir matgæðingana,
og mannlífið frjálslegt og litríkt.“
Umhverfis San Francisco er
hægt að heimsækja vínræktarhéruð
á borð við Napa Valley og Sonoma.
„Síðan er upplagt að aka eftir þjóð-
vegi nr. 1 meðfram ströndinni og nið-
ur til Los Angeles, kannski með við-
komu í kastala dagblaðarisans
William Randolph Hearst. Þessi
kastali hefur tengingu við Ísland eins
og fram kom í bók Páls Benedikts-
sonar sjónvarpsmanns, Loftklukkan,
sem kom út um síðustu jól. Föðurafi
Páls hvarf einn daginn vestur um
haf, frá konu og fimm börnum, og
fannst ekki aftur fyrr en nær tveim-
ur áratugum síðar þar sem hann
starfaði sem einkaþjónn á þessu
merka hefðarsetri,“ útskýrir Svan-
hvít. „Í Los Angeles er síðan um
margt að velja, hvort sem leiðin ligg-
ur á ströndina í Santa Monica, í fjör-
ið á Venice Beach eða á Sunset Bou-
levard þar sem aldrei er að vita nema
einhver stórstjarnan láti sjá sig.“
Fótbolti og franskar strendur
Af öðrum nýjum áfangastöðum
má nefna Nice í Frakklandi og Edin-
borg í Skotlandi. Nice er á besta stað
á frönsku rivíerunni og býður líka
upp á góðar samgöngur á marga
leiki EM í knattspyrnu í sumar.
„Edinborg er síðan með fallegri
borgum Evrópu og á heims-
minjaskrá UNESCO. Er þar að
finna fagran kastala og skemmtilegt
mannlíf, og Skotarnir afskaplega al-
mennilegir gestgjafar.“
Í fyrra bauð WOW air í fyrsta
sinn upp á beint flug til Rómar og
mun endurtaka leikinn í sumar.
WOW air flýgur einnig til tískuborg-
arinnar Mílanó norðar á Ítalíu. „Róm
er borg sem allir ættu að heimsækja, í
það minnsta einu sinni á lífsleiðinni.
Þar eru sögufrægar byggingar og
fornminjar við hvert fótmál og auðvit-
að fátt sem jafnast á við matinn,
kaffið, vínið og lífsins lystisemdir sem
Ítalirnir kunna svo vel að gera skil.“
Vill Svanhvít líka hampa
áfangastöðum WOW air í Litháen
og Póllandi: Vilníus og Varsjá, sem
virðast jafnvel falla í skuggann af
öðrum WOW-borgum þegar land-
inn skipuleggur sumarfríið sitt.
„Það er margt hægt að uppgötva í
þessum sjarmerandi borgum, og
báðar mjög skemmtilegar, hvor á
sinn máta.“
Þeir sem eru að leita að mak-
indalífi á hvítri strönd geta valið úr
fjölda beinna flugferða með WOW
air á spænska sælureiti á borð við
Alicante, Barcelona og Tenerife. „Í
samvinnu við ferðaskristofuna Gam-
anferðir bjóðum við upp á hótel- og
flugpakka fyrir þá sem vilja ferðalag
þar sem hugsað hefur verið fyrir
öllu.“
Með stjörnum og lífskúnstnerum
á vesturströnd Bandaríkjanna
Þetta árið bætir WOW air m.a. við flugi til Los Angeles, San Francisco, Nice og Edinborgar Margir fara oftar
en einu sinni og oftar en tvisvar til útlanda ár hvert Nice er góður staður til að upplifa Frakkland og fara á EM
Vestrið San Francisco á engan sinn líka.Rómó Sagan hefur sett mark sitt á Róm, þessa fyrrum höfuðborg heimsins.
Turnar Edinborg í Skotlandi þykir með fegurstu borgum Evrópu.
Perla Nice stendur undir nafni.
Flæmi Los Angeles skiptist í marga hluta, hver með sín sérkenni.
69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Í dag segir Svanhvít algengt
að Íslendingar fari fleiri en
eina og jafnvel fleiri en tvær
ferðir á ári til útlanda. Margir
skella sér þá í eina lengri ferð,
t.d. á sólarströnd, og skjótast í
borgarferðir þar sem þeir
taka sér langa helgi til að
skoða einhverja stórborgina,
heimsækja verslanir, söfn og
sækja menningarviðburði. „Ís-
lendingar eru líka orðnir opn-
ari fyrir því að skipuleggja
sínar eigin ferðir, og bóka
bæði flug og hótel á eigin spýt-
ur í gegnum heimasíðu WOW
air eða aðrar leitarélar. Er
þetta ólíkt mörgum öðrum
þjóðum þar sem hinn almenni
ferðalangur velur frekar
pakka- og hópferðir. Íslend-
ingar hafa greinilega lært vel
á bókunarvélarnar, eru lunkn-
ir við að finna upplýsingar um
áfangastaði og þykir gott að
ferðast eftir eigin höfði.“
Íslendingar
lunknir við að
skipuleggja
eigin ferðir